Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mið 08. september 2010 20:35
Hannes Daði Haraldsson
Heimild: Sky sport 
Owen stefnir á að spila fyrir landsliðið
Michael Owen neitar að gefa upp von sína um að bæta við þá 89 leiki sem hann hefur spilað fyrir Englendinga.

Owen spilaði síðast fyrir landsliðið í mars 2008 en hefur átt erfitt með að vinna sér inn sæti í liðinu undir stjórn Fabio Capello.

Owen vonar þó að meiðsli Darren Bent og Jermaine Defoe verði til þess að Capello vilji reynslumikla menn inn í hópinn og stefnir Owen á að græða á því.

,,Ég hef þurft að eiga við meiðsli en í miðað við þá leiki sem ég hef náð að spila fyrir bæði landsliðið og þau félagslið sem ég hef spilað fyrir þá get ég varla kvartað." sagði Michael Owen.

Slapp
banner