Mjölnismenn, stuðningsmannafélag Þórs, stendur fyrir hópferð á leik liðsins gegn HK á laugardag.
Lagt verður af stað klukkan 07:00 frá Hamri og kostar einungis 1000 krónur.
45 manns hafa skráð sig í ferðina en engin fjöldatakmörk eru á það hversu margir geta farið með.
Þeir sem hafa áhuga á að slást í för með er bent á að að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 863-4560 (Óðinn).
Upphitun verður svo á Players fyrir alla Þórsara klukkan 12:15 og verða ýmsar uppákomur en það verður betur auglýst síðar.




