Magni Þór Óskarsson skrifar frá Dalvík
Dalvík/Reynir 2-2 KB (Samanlagt 3-2, Dalvík/Reynir upp)
0-1 Stefán Ingi Gunnarsson
1-1 Jóhann Himar Hreiðarsson
2-1 Markús Darri Jónasson
2-2 Davíð Teitsson
0-1 Stefán Ingi Gunnarsson
1-1 Jóhann Himar Hreiðarsson
2-1 Markús Darri Jónasson
2-2 Davíð Teitsson
Leikurinn hófst klukkan 17:15 í fínu veðri á Dalvík. Vallaraðstæður voru fínar og ekkert þar að vanbúnaði.
Gestirnir í KB mættu gríðarlega ákveðnir til leiks, greinilega staðráðnir í að gera mun heldur en í tapinu á laugardaginn. Fyrstu mínútur leiksins voru þeir mun sterkari aðilinn og virtust koma leikmönnum Dalvíkur/Reynis í opna skjöldu með góðu samspili, stuttum sendingum og skyndisóknum. En það var einmitt eftir eina slíka sem fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós. KB menn létu boltann ganga vel á milli sín í vel útfærðri skyndisókn sem endaði með því að Stefán Ingi Gunnarsson setti boltann örugglega í hornið.
Skömmu eftir þetta virtust heimamenn vakna til lífsins og áttu fína spretti en voru oftar en ekki flaggaðir rangstæðir í sínum sóknaraðgerðum sem fór nett í taugarnar á taugatrekktum áhorfendum á vellinum sem voru fjölmennir þar og létu vel í sér heyra.
Gunnar Már Magnússon var óheppinn að jafna ekki leikinn en þrumuskot hans fyrir utan teig endaði í stönginni. En heimmönnum tókst loksins að jafna leikinn og þar var að verki Jóhann Hilmar Hreiðarsson eftir góða baráttu og frábæran undirbúning Ragnars Haukssonar. Staðan í hálfleik var 1-1
Heimamenn mættu mun ákveðnari til seinni hálfleiks heldur en þess fyrri og komust yfir með marki frá Markúsi Darra Jónassyni. Staðan var þá 2-1 og 3-1 samtals og útlitið vænlegt fyrir Dalvík/Reyni en leikurinn var langt í frá að vera búinn. Leikurinn varð mjög hraður, bæði lið sóttu hratt fram og var greinilegt að hvorugt ætlaði að gefa eftir.
Ragnar Hauksson var næstum búinn að gera út um leikinn eftir að Markús Darri Jónasson hafði sloppið einn í gegn, en í stað þess að skjóta sjálfur gaf hann boltann til hliðar til Ragnars sem átti skot að marki en varnarmaður KB bjargaði meistaralega.
Síðustu mínúturnar lágu leikmenn KB hressilega á heimamönnum og áttu nokkur ákjósanleg færi. Þeim tókst að jafna og þar var að verki Davíð Teitsson, en hann skoraði með skoti fyrir utan teig. Markvörður og þjálfari Dalvíkur/Reynis, Atli Már Rúnarsson rann þegar hann var í þann mund að skutla sér á boltann og náði því ekki til hans og staðan því orðinn 2-2 og áhorfendur með hjartað í buxunum.
Gestirnir bættu enn frekar í sóknina og markmaður þeirra kom hvergi nálægt sínum eigin teig síðustu mínúturnar, en allt kom fyrir ekki, úrslitin urðu 2-2 og Dalvík/Reynir því komið í 2. deild eftir samtals 3-2 sigur á vel spilandi liði KB.



