Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 09. september 2010 09:37
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Jagielka býst við að Rooney fái að heyra það
Phil Jagielka, varnarmaður Everton, býst við að Wayne Rooney framherji Manchester United muni fá að heyra það í leik liðanna á Goodison Park á laugardag.

Rooney er að heimsækja sitt gamla félag en einkalíf hans hefur verið mikið til umfjöllunar í enskum fjölmiðlum að undanförnu.

Jagielka býst við að Rooney fái óblíðar móttökur hjá stuðningsmönnum Everton en hann telur þó að það muni lítið trufla leikmanninn.

,,Ég er viss um að Wayne getur átt við þetta. Hann er harður og mun láta verkin inni á vellinum tala," sagði Jagielka.

,,Ég mun njóta þess að berjast við hann. Ég kann vel við að spila gegn góðum leikmönnum og Wayne er klárlega góður leikmaður."
Slapp
banner
banner
banner
banner