Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 09. september 2010 10:31
Hörður Snævar Jónsson
Delap: Að sjá leikmann eins og Eið koma til Stoke er frábært
Delap er sáttur með komu Eiðs Smára.
Delap er sáttur með komu Eiðs Smára.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Rory Delap leikmaður Stoke er afar ánægður með þá leikmenn sem liðið fékk á lokadegi félagaskiptagluggans.

Liðið kræki í Eið Smára Guðjohnsen, Jermaine Pennant og Marc WIlson.

Þetta gæti orðið til þess að Delap þyrfti að fara á bekkinn.

,,Það er undir stjóranum komið hvaða lið hann velur, það er ekki tilgangur að hugsa um það. Að sjá leikmann eins og Eið Smára Guðjohnsen koma hingað er frábært fyrir Stoke," sagði Delap.

,,Ég vil auðvitað byrja en allir leikmenn hafa fallið vel inn í þetta og allir eru spenntir að sjá þá spila."
Slapp
banner
banner
banner