,,Þetta er stórkostleg tilfinning," sagði Magni Þór Óskarsson formaður stuðningsmannafélagsins Brúans, stuðningsmanna Dalvíkur/Reynis eftir að liðið tryggði sér sæti í 2. deild karla í gærkvöld.
,,Við erum búnir að fara austur og suður og gera allan fjandann af okkur á leiðinni."
,,Við erum búnir að missa röddina oftar en einu sinni og trylla áhorfendur oftar en tvisvar."
,,Peningalega séð er þetta svolítið dýrt, en það skiptir engu máli. Það eru ómetanlegar minningar sem eru þarna á bakvið."
Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.





















