Marseille hefur greint frá því að félaginu mistókst að fá Didier Drogba í sínar raðir í sumar.
Drogba gekk í raðir Chelsea frá Marseille árið 2004 og hefur átt góðu gengi að fagna.
Marseille reyndi fyrst að fá Luis Fabiano í sumra en þegar það gekk ekki upp reyndu þeir við Drogba.
,,Við reyndum að fá Drogba en það var ekki möguleiki," sagði Jean-Claude Dassier forseti Marseille.
,,Við sjáum tli, þú átt aldrei að gefast upp í líifnu."


