Sævar Þór Gíslason, framherji Selfyssinga, er tæpur fyrir leik liðsins gegn FH á sunnudag.
Sævar Þór meiddist í æfingaleik Selfyssinga og KR í gær þegar hann lenti illa á öxlinni en hann er þó ákveðinn í að ná leiknum gegn FH.
,,Ég ætla að verða klár í næsta leik," sagði Sævar Þór við Fótbolta.net í dag.
Selfyssingar eru sem stendur í næstneðsta sæti í Pepsi-deildinni og hörð fallbarátta er framundan hjá liðinu í síðustu fjórum umferðunum.


