Heimild: Sky
John Toshack er hættur sem landsliðsþjálfari Wales eftir sex ár í starfinu en eftir nokkurra daga vangaveltur um þetta var það staðfest nú í dag.
Vangaveltur um framtíð hans í starfi hófust eftir 1-0 tap gegn Svartfjallalandi í opnunarleik Wales í undankeppni EM 2012 á föstudag en Toshack mun hafa þótt hann ekki geta náð lengra með liðið.
Hann er 61 árs gamall og fyrrverandi stjóri Real Madrid. Hann hefur átt í viðræðum við knattspyrnusamband Wales undanfarna daga og staðfesti svo í dag að hann sé hættur.
Hann tók við starfinu af Mark Hughes í nóvember árið 2004 en hefur ekki náð að koma liðinu á stórmót síðan þá.
Ryan Giggs fyrrverandi fyrirliði Wales og leikmaður Manchester United hefur verið orðaður við starfið en auk hans þeir Chris Coleman, Mark Bowen, John Hartson og Brian Flynn þjálfari U21 árs landsliðsins.


