Heimild: Goal
Andrea Ranocchia er 22 ára gamall varnarmaður Genoa í ítölsku deildinni. Hann sagði í viðtali fyrir stuttu að hann sé öruggur á því að vera á leið til Inter annað hvort í janúar viðskiptaglugganum eða júní glugganum.
Inter á helminginn af samningi leikmannsins og Genoa á hinn helminginn.
Inter á helminginn af samningi leikmannsins og Genoa á hinn helminginn.
,,Ég er að fara til Inter," sagði Ranocchia í viðtali við Gazzetta Dello Sport. ,,Í janúar eða júní verð ég leikmaður Inter."
,,Ég skulda Genoa mikið en Moratti [Forseti Inter] gaf mér loforð. Ég var sendur til Genoa til að spila eftir að hafa jafnað mig almennilega á meiðslum. Ég gæti farið til Inter í janúar en það veltur á báðum félögum."
,,Draumurinn minn er svo að spila með A-landsliði Ítalíu en fyrst langar mig að klára ævintýrið með U-21 árs liðinu þar sem við erum komnir í umspil fyrir sæti á EM."
Ranocchia var talinn með betri varnarmönnum deildarinnar síðasta tímabil þar sem hann lék á láni hjá Bari en hann meiddist og er núna byrjunarliðsmaður Genoa.




