Heimild: Soccerway
FC Bayern hefur sent Real Madrid skilaboð um að láta Bastian Schweinsteiger í friði.
Real hefur verið orðað við þennan sjalla miðjumann frá Þýskalandi.
Hann myndi þar hitta fyrir Mezut Özil og Sami Khedira sem komu til Real í sumar.
,,Hann er ekki til sölu," sagði Christian Nerlinger stjórnarmaður hjá Bayern.
,,Það skiptir ekki máli hvaða félag það er, það sama á við um Philipp Lahm og alla okkar leikmenn."



