Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 09. september 2010 14:56
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Defoe frá keppni næstu sex vikurnar
Jermain Defoe, framherji Tottenham, verður frá keppni næstu sex vikurnar vegna ökklameiðsla.

Þessi 27 ára gamli leikmaður meiddist í 3-1 sigri Englendinga á Sviss í vikunni.

Defoe mun meðal annars missa af tveimur leikjum með Tottenham í Meistaradeildinni sem og af fjórum til fimm leikjum í ensku úrvalsdeildinni.

Defoe hefur verið í fínu formi að undanförnu en hann skoraði þrennu gegn Búlgaríu í síðustu viku.
Slapp