Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 09. september 2010 16:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Soccernet 
Theo Walcott frá í fjórar til sex vikur
Theo Walcott verður ekki með Arsenal næstu fjórar til sex vikurnar vegna ökklameiðsla.

Walcott meiddist í 3-1 sigri Englendinga á Sviss síðastliðið þriðjudagskvöld.

,,Tæklingin leit nokkuð illa út," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal.

,,Þegar ég á hvernig ökklin hans snérist þá hugsaði ég að þetta yrðu þrír til fjórir dagar eða fjórar til sex vikur. Því miður verða þetta fjórar til sex vikur."

Meiðslin koma á slæmum tíma fyrir Arsenal en Nicklas Bendtner og Robin van Persie eru einnig frá keppni sem stendur. Bendnter ætti að snúa aftur eftir þrjár til fjórar vikur en van Persie verður frá keppni þar til í síðari hluta október.
Slapp
banner
banner
banner