Arsenal hefur áhuga á Barcola - Mbeumo færist nær Man Utd - Konate hafnaði tilboði Liverpool
   fim 07. október 2010 14:02
Magnús Már Einarsson
Kjartan Sturluson hættur í Val
Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson
Markvörðurinn reyndi Kjartan Sturluson mun ekki leika áfram með Valsmönnum næsta sumar en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net í dag.

Kjartan verður samningslaus síðar í mánuðinum en hann býst við að halda áfram í boltanum.

Kjartan, sem verður 35 ára síðar á árinu, hefur leikið með Val frá því árið 2005.

Í sumar lék hann alla 22 leiki liðsins í Pepsi-deildinni en áður en Kjartan kom til Vals lék hann lengi með Fylkismönnum.

Valsmenn hafa innan sinna raða markvörðinn unga Ásgeir Magnússon auk þess sem U21 árs landsliðsmarkvörðurinn Haraldur Björnsson er kominn aftur til félagsins eftir að hafa verið í láni hjá Þrótti í sumar.
banner
banner