Tonny Mawejje, leikmaður ÍBV og landsliðsmaður Úganda, er þessa dagana við æfingar hjá norska liðinu Molde FK.
Tonny hefur verið lykilmaður hjá ÍBV síðan hann kom til landsins árið 2009 en hann hefur yfirleitt spilað hægra megin á miðjunni.
Í sumar lék Tonny alla leiki ÍBV í Pepsi-deildinni og skoraði í þeim tvö mörk.
Úganda hefur verið á hraðri uppleið á heimslista FIFA en þar spilar Tonny á miðri miðjunni og stjórnar spili liðsins.