Vefurinn Fótbolti.net var fyrst opnaður þann 15. apríl árið 2002 og verður því átta  ára í ár.

Vefurinn hefur stóraukið á vinsældir sínar allt frá fyrsta degi en  í dag lesa um 50 þúsund gestir efni vefsins vikulega. 

Flettingar eru um 1,3 milljón svo hver lesandi les um það bil 26 fréttir á viku hverri. Þær tölur gera vefinn meira lesinn en íþróttafréttir á helstu samkeppnisvefjunum, mbl.is og Vísi.is til samans.

Við vefinn starfa tveir starfsmenn í fullu starfi auk fjölda starfsmanna í hlutastarfi.  Yfir sumartímann nær starfsmannafjöldinn hæst hæðum, í kringum 75 starfsmenn.

Hafliði Breiðfjörð stofnaði vefinn og rekur enn í dag.  Hlutafélagið Fótbolti ehf er utan um rekstur vefsins en það að öllu leyti er í eigu starfsmanna vefsins.

Vefurinn er þvi algjörlega óháður og sjálfstæður fjölmiðill.

Fótbolti.net
Fótbolti ehf
Kt: 600907-0180
Stórhöfða 15
112 Reykjavík
Sími: - GSM: 894 9200
Netfang:
fotbolti@fotbolti.net