Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Valur
0
1
Breiðablik
0-1 Jonathan Glenn '38
10.08.2015  -  19:15
Laugardalsvöllur
Pepsi-deild karla 2015
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 992
Byrjunarlið:
33. Anton Ari Einarsson (m)
2. Thomas Guldborg Christensen
7. Haukur Páll Sigurðsson ('45)
8. Kristinn Ingi Halldórsson ('77)
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
19. Emil Atlason
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
22. Mathias Schlie
23. Andri Fannar Stefánsson

Varamenn:
1. Ingvar Þór Kale (m)
3. Iain James Williamson ('45)
4. Einar Karl Ingvarsson
14. Gunnar Gunnarsson
16. Tómas Óli Garðarsson
17. Andri Adolphsson ('77)
19. Baldvin Sturluson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Haukur Páll Sigurðsson ('32)
Thomas Guldborg Christensen ('87)
Sigurður Egill Lárusson ('90)

Rauð spjöld:
@ Jóhann Ingi Hafþórsson
Skýrslan: Ljótasta sigurmark tímabilsins réði úrslitum
Hvað réði úrslitum?
Í nokkuð jöfnum leik þar sem varnirnar voru betri en sókninar þá tókst Blikum að skora eina markið er Guðjón Pétur Lýðsson tók hörkuskot sem fór í Jonathan Glenn og lak þaðan í markið. Ekki fallegt mark en Blikar taka því fegnir að sjálfsögðu.
Bestu leikmenn
1. Elfar Freyr Helgason
Gjörsamlega át sóknarmenn Vals hvað eftir annað. Emil Atlason, komst lítið áleiðis í kvöld gegn Elfari.
2. Bjarni Ólafur Eiríksson
Bjarni var langbesti maður Vals í kvöld. Hann var síógnandi með flottum sprettum upp völlinn og fyrirgjafirnar hans voru virkilega góðar. Hann varðist einnig vel og skilaði heldur betur sínu.
Atvikið
Kristinn Ingi Halldórsson fékk algjört dauðafæri til að jafna í seinni hálfleik en hann hitti boltann afar illa. Þar átti hann að jafna og hver veit hvað hefði gerst í stöðunni 1-1.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn geta farið að kyssa titilbaráttuna bless eftir þrjá tapleiki í röð þar sem þeir hafa aðeins skorað eitt mark. Blikar gera aftur á móti ekkert slíkt á næstunni, þeir líta vel út þessa dagana og virðast ætla að vera með í baráttunni til enda.
Vondur dagur
Emil Atlason og Kristinn Ingi Halldórsson voru ekki góðir í dag. Sigurður Egill Lárusson og Kristinn Freyr Sigurðsson héldu uppi sóknarleik Vals í kvöld ásamt Bjarna Ólafi Eiríkssyni en Emil Atlason og Kristinn Ingi áttu alls ekki sinn besta dag. Emil virðist eiga í erfiðleikum með að leysa hinn frábæra Pedersen af á meðan Kristinn Ingi klúðraði dauðafæri og sást voða lítið þess fyrir utan.
Dómarinn - 6
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson var fínn í dag, það var lítið um vafadóma og hann komst ágætlega frá sínu.
Byrjunarlið:
Gunnleifur Gunnleifsson
Höskuldur Gunnlaugsson
3. Oliver Sigurjónsson ('60)
4. Damir Muminovic
5. Elfar Freyr Helgason
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson ('80)
8. Arnþór Ari Atlason
17. Jonathan Glenn
19. Kristinn Jónsson
22. Ellert Hreinsson
45. Guðjón Pétur Lýðsson ('77)

Varamenn:
24. Aron Snær Friðriksson (m)
10. Atli Sigurjónsson ('77)
15. Davíð Kristján Ólafsson
21. Guðmundur Friðriksson ('80)
21. Viktor Örn Margeirsson
30. Andri Rafn Yeoman ('60)

Liðsstjórn:
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Arnór Sveinn Aðalsteinsson ('34)
Oliver Sigurjónsson ('53)
Atli Sigurjónsson ('89)
Höskuldur Gunnlaugsson ('90)

Rauð spjöld: