Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
Keflavík
0
1
Stjarnan
0-1 Halldór Orri Björnsson '5 , víti
14.05.2012  -  19:15
Netto-völlurinn
Pepsi-deildin
Aðstæður: Kalt og vindur
Dómari: Kristinn Jakobsson
Maður leiksins: Halldór Orri Björnsson - Stjarnan
Byrjunarlið:
Haraldur Freyr Guðmundsson
Ómar Jóhannsson
Jóhann Birnir Guðmundsson
6. Einar Orri Einarsson
25. Frans Elvarsson
- Meðalaldur 3 ár

Varamenn:
12. Bergsteinn Magnússon (m)
11. Magnús Sverrir Þorsteinsson ('78)
11. Bojan Stefán Ljubicic ('78)

Liðsstjórn:
Sigurbergur Elísson

Gul spjöld:
Einar Orri Einarsson ('60)
Jóhann Birnir Guðmundsson ('45)
Guðmundur Steinarsson ('20)
Gregor Mohar ('15)
Ómar Jóhannsson ('4)

Rauð spjöld:
@elvargeir Elvar Geir Magnússon
Þrjú stig í hús hjá Stjörnunni í kvöld
Eftir jafntefli í fyrstu tveimur leikjum sínum í Pepsi-deildinni náðu Stjörnumenn að innbyrða þrjú stig í baráttuleik í Keflavík í kvöld. Þrátt fyrir kulda og smá vind var vel leikfært á Nettó-vellinum.

Leikurinn byrjaði fjörlega. Kristinn Jakobsson dæmdi viðureign þessara liða í Keflavík í fyrra og þá voru Stjörnumenn ósáttir við hann. Þeir kvörtuðu ekkert í kvöld þegar hann benti á vítapunktinn eftir aðeins fjögurra mínútna leik.

Ómar Jóhannsson markvörður Keflavíkur var dæmdur brotlegur og leyndi ekki vonbrigðum sínum með þessa ákvörðun sem hann var ekki sammála. Halldór Orri Björnsson steig á punktinn og skoraði.

Stjörnumenn byrjuðu leikinn mun betur en svo náðu Keflvíkingar að vinna sig aðeins inn í hann og Guðmundur Steinarsson fékk dauðafæri þegar hann slapp einn í gegn. Hann hitti ekki markið.

Stjörnumenn leiddu 1-0 eftir nokk fjörugan fyrri hálfleik. Seinni hálfleikurinn var hinsvegar drepleiðinlegur, fátt um færi og reyndist vítamark Halldórs eina mark leiksins.

Það voru ekki margir leikmenn sem risu hátt í þessum leik í kvöld. Á heildina litið var Stjörnuliðið betra. Halldór Orri skilaði sínu, Ingvar var öruggur í markinu og hinn ungi Snorri Páll Blöndal sem lék sinn fyrsta leik á miðjunni var öflugur.
Byrjunarlið:
Hilmar Þór Hilmarsson
4. Jóhann Laxdal
7. Atli Jóhannsson ('46)
8. Halldór Orri Björnsson
21. Snorri Páll Blöndal
27. Garðar Jóhannsson

Varamenn:
13. Arnar Darri Pétursson (m)
14. Hörður Árnason

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Halldór Orri Björnsson ('81)
Alexander Scholz ('26)

Rauð spjöld: