Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
KR
3
2
ÍBV
Kjartan Henry Finnbogason '35 , víti 1-0
Kjartan Henry Finnbogason '45 , víti 2-0
2-1 Aaron Spear '47
2-2 Tonny Mawejje '67
Kjartan Henry Finnbogason '76 , víti 3-2
15.05.2012  -  20:00
KR-völlur
Pepsi-deildin
Dómari: Magnús Þórisson
Áhorfendur: 1500
Maður leiksins: Kjartan Henry Finnbogason
Byrjunarlið:
Viktor Bjarki Arnarsson ('46)
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
3. Haukur Heiðar Hauksson
8. Baldur Sigurðsson
9. Kjartan Henry Finnbogason ('81)
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)

Varamenn:
5. Egill Jónsson ('46)
6. Gunnar Þór Gunnarsson
8. Þorsteinn Már Ragnarsson ('81)
11. Emil Atlason ('81)
23. Atli Sigurjónsson
- Meðalaldur 35 ár

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Egill Jónsson ('90)

Rauð spjöld:
@elvargeir Elvar Geir Magnússon
Vítakeppni í Vesturbæ
Kjartan Henry Finnbogason náði því sjaldgæfa afreki í kvöld að skora þrennu úr vítaspyrnum þegar Íslandsmeistarar KR unnu 3-2 sigur á ÍBV. Fyrsti sigur KR-inga í Pepsi-deildinni þetta sumarið.

Eyjamenn hefðu getað krækt í stig í uppbótartíma þegar Matt Garner steig á punktinn. Hann virkaði mjög stressaður og Hannes Þór Halldórsson kom KR til bjargar og varði.

KR leiddi 2-0 í hálfleik en seinna vítið var rangur dómur hjá Magnúsi Þórissyni dómara. Eyjamenn lágu til baka í fyrri hálfleiknum en komu út úr skelinni í þeim síðari.

KR-ingar voru ekki á tánum og skyndilega höfðu Eyjamenn jafnað. Varnarlína heimamanna nötraði og skalf í hvert skipti sem boltinn nálgaðist mark þeirra. Sigurmarkið kom á 76. mínútu eftir að brotið var á Óskari Erni Haukssyni.

Kjartan var ískaldur á vítalínunni og skoraði af feykilegu öryggi úr öllum þremur spyrnum sínum, Hann ásamt Bjarna Guðjónssyni var besti leikmaður KR í leiknum.

Varnarleikurinn er mikið áhyggjuefni hjá KR. Sjö mörk fengin á sig í þremur leikjum er ekki vænlegt til útflutnings. Rhys Weston hefur átt dapra byrjun í KR-búningnum og alveg ljóst að hann þarf að fara að finna sig sem allra fyrst í íslenska boltanum.

Stígandi var í spilamennsku ÍBV en liðið er aðeins með eitt stig eftir þrjár umferðir. Of margir veikir hlekkir eru í liðinu og ljóst að stórt verk er framundan fyrir Magnús Gylfason og hans aðstoðarmenn.
Byrjunarlið:
1. Abel Dhaira (m)
11. Víðir Þorvarðarson ('83)
- Meðalaldur 34 ár

Varamenn:
22. Gauti Þorvarðarson

Liðsstjórn:
Guðjón Orri Sigurjónsson

Gul spjöld:
Matt Garner ('80)
Tonny Mawejje ('67)
Rasmus Christiansen ('62)

Rauð spjöld: