Keflavík
1
0
ÍBV

Jóhann Birnir Guðmundsson
'64
1-0
Jóhann Ragnar Benediktsson
'94

24.05.2012 - 19:15
Nettóvöllurinn
Pepsi-deild Karla
Aðstæður: SSV 9 m/sek og skýjað.
Dómari: Garðar Örn Hinriksson
Áhorfendur: 930
Maður leiksins: Haraldur Freyr Guðmundsson

Byrjunarlið:
Haraldur Freyr Guðmundsson
Ómar Jóhannsson
Jóhann Birnir Guðmundsson

6. Einar Orri Einarsson
('29)

11. Bojan Stefán Ljubicic
('79)

25. Frans Elvarsson
- Meðalaldur 3 ár
Varamenn:
12. Bergsteinn Magnússon (m)
9. Daníel Gylfason
11. Magnús Sverrir Þorsteinsson
Liðsstjórn:
Sigurbergur Elísson
Gul spjöld:
Jóhann Ragnar Benediktsson ('58)
Grétar Atli Grétarsson ('48)
Magnús Þór Magnússon (f) ('36)
Rauð spjöld:
Jóhann Ragnar Benediktsson ('94)
Vinnusigur heimamanna
Það var ekki boðið uppá neinn glansleik þegar Keflavík tók á móti drengjunum frá Vestmannaeyjum á Nettóvellinum í Keflavík í kvöld. Fyrstu 45 mín voru afspyrnu leiðinlegar ef undan eru skilinn örfá færi sem liðin sköpuðu sér.
Fyrsta færið átti Arnór Ingv á 11.míni þegar hann átti skot að marki Eyjamanna en himinnhátt yfir.
Tveimur mín síðar kom ágæt sókn Eyjamanna sem endaði með skoti frá Ian Jeffs, en Ómar vel staðsettur í marki Keflvíkinga
Á þessum tímapunkti og lengstum fyrri hálfleiks voru Eyjamenn heldur sprækari en allar þeirra sóknaraðgerðir voru máttlitlar og því skapaðist sjaldan hætta uppvið mark heimamanna eins og á 17, mín þegar Aron Spear komst í gott skotfæri en hitti boltann illa og skotið vel yfir markið.
Besta færi hálfleiksins kom svo á 20.mín þegar Brynjar Gauti, miðvörður gestanna, kom sér í dauðafæri í markteig heimamanna en hitti ekki boltann.
Keflvíkingar urðu svo fyrir blóðtöku á 29. mín þegar Einar Orri Einarsson, sem lék í stöðu miðvarðar í kvöld, þurfti að yfirgefa leikvöllinn vegna meiðsla.
Það sem eftir lifði hálfleiksins áttu Eyjamenn tvö ágætis marktækifæri þegar Arnór Eyvar og Víðir Þorvarðarson misnotuðu ágætis möguleika á að koma ÍBV yfir áður en Garðar Örn, sem var yfirburðarmaður á vellinum í fyrrihálfleik, flautaði til leikhlés.
Fátt markvert gerðist fyrstu tæpar 20 mín seinni hálfleiks, eða þar til að Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði eina mark leiksins á 64.mín.
Keflvíkingar áttu þá langt innkast frá hægri. Eyjamenn voru eitthvað annars hugar og virtust ekki hafa nokkurn áhuga á að koma boltanum út úr teignum. Boltinn barst því án vandræða til Jóhanns Benediktssonar sem lagði hann út á nafna sinn Guðmundsson. Skot Jóhanns Birnis virtist þó stefna beint í hendur Abel Dhaira markmanns ÍBV, en á einhvern óskiljanlegan hátt lak knötturinn úr höndum hans og yfir marklínuna.
Eftir þetta var leikurinn vægast sagt hundleiðinlegur á að horfa og ekkert sem gerðist markvert fyrr en 5sek fyrir leikslok.
Þá fengu Keflvíkingar aukaspyrnu rétt aftan við miðlínu þegar brotið var á Hilmari Geir. Hann lagðist í grasið , beint fyrir aftan boltann sem Haraldur Guðmundsson hafði styllt upp fyrir Jóhann Benediktsson. Garðar dómari gaf Jóhanni þrisvar flaut til merkis um að taka spyrnuna strax, en án árangurs. Því næst kom flaut um gult spjald til handa Jóhanni, sem hafði fyrr í leiknum hlotið annað slíkt og því fylgdi það rauða í kjölfarið. Menn virtust hissa á þessari ákvörðun Garðars en að mati fréttaritara hafði hann enga aðra kosti í stöðunni.
Rautt spjald og Garðar Hinriksson er ekki eitthvað sem ekki hefur sést áður, en að þessu sinni sem og oftast áður, hafði drengurinn rétt fyrir sér og kórónaði góðan leik sinn á viðeigandi hátt.
Maður leiksins er Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði Keflvíkinga. Hann batt vörn sinna manna saman og stjórnaði leik þeirra sem sannur fyrirliði.

1. Abel Dhaira (m)
11. Víðir Þorvarðarson
('87)
- Meðalaldur 3 ár

Varamenn:
Liðsstjórn:
Guðjón Orri Sigurjónsson
Gul spjöld:
Rasmus Christiansen ('89)
Tonny Mawejje ('73)
Rauð spjöld: