Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Mjólkurbikar karla
Keflavík
28' 1
0
Breiðablik
Mjólkurbikar karla
Víkingur R.
LL 4
1
Víðir
Mjólkurbikar karla
KA
LL 2
1
ÍR
Mjólkurbikar karla
ÍA
LL 3
0
Tindastóll
Mjólkurbikar karla
Afturelding
LL 4
1
Dalvík/Reynir
Mjólkurbikar karla
Grótta
LL 0
3
Þór
Mjólkurbikar karla
Höttur/Huginn
LL 0
1
Fylkir
Mjólkurbikar karla
ÍBV
LL 1
2
Grindavík
Mjólkurbikar karla
Árbær
LL 0
3
Fram
Höttur
5
2
Víkingur R.
Elvar Þór Ægisson '19 1-0
1-1 Sigurður Egill Lárusson '24
Friðrik Ingi Þráinsson '54 2-1
2-2 Hjörtur Júlíus Hjartarson '59
Elvar Þór Ægisson '62 3-2
Davíð Einarsson '87 4-2
Óttar Steinn Magnússon '89 5-2
25.08.2012  -  14:00
Vilhjálmsvöllur
1. deild karla
Aðstæður: Skin og skúrir, kjör veður
Dómari: Gunnar Sverrir Gunnarsson
Áhorfendur: rúmlega 200
Maður leiksins: Elvar Þór Ægisson
Byrjunarlið:
1. Veljko Bajkovic (m)
Þórarinn Máni Borgþórsson
2. Birkir Pálsson
4. Óttar Steinn Magnússon
6. Davíð Einarsson
8. Friðrik Ingi Þráinsson
8. Stefán Þór Eyjólfsson ('63)
10. Högni Helgason
11. Jónas Ástþór Hafsteinsson ('78)
23. Elmar Bragi Einarsson ('92)
23. Elvar Þór Ægisson

Varamenn:
12. Anton Loftsson (m)
5. Runólfur Sveinn Sigmundsson ('78)
7. Jóhann Valur Clausen
14. Kristófer Örn Kristjánsson
19. Bjarni Þór Harðarson ('92)
20. Bjartmar Þorri Hafliðason ('63)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Elmar Bragi Einarsson ('90)
Friðrik Ingi Þráinsson ('83)
Jónas Ástþór Hafsteinsson ('56)

Rauð spjöld:
@https://twitter.com/#!/Dullarinn Guðmundur Bj. Hafþórsson
Mikilvægur sigur Hattar í skemmtilegum leik!
Þetta var alveg bráðskemmtilegur leikur að horfa á og fengu áhorfendur svo sannarlega sitt fyrir peninginn ef hægt er að tala um slíkt. Veðrið lék við leikmennina fyrstu klst, sól og úði en það fór að rigna gríðarlega og völlurinn blotnaði mjög mikið, engu að síður skemmdi það svo sem lítið fyrir því leikmenn beggja liða lögðu hart að sér í dag.

Í fyrri hálfleik fengu Víkingar þónokkur hálffæri sem jafnvel væri hægt að telja sem hin ágætustu færi, alla vegana sum þeirra. Þeir náðu ekki að nýta þau og voru það heimamenn sem komust yfir í leiknum eftir 19 mín leik. Þar var að verki maður leiksins, Elvar Þór Ægisson sem hamraði boltann viðstöðulaust fyrir utan teig, boltinn lennti fyrir framan Magnús Þormar í marki Víkings og þaðan í hornið fjær. Ég gæti skrifað margt og mikið um frammistöðu Elvars í þessum leik, en stysta útgáfan er sennilega sú að hann stóð sig frábærlega og var í úrvalsdeildarklassa í dag, stór orð en engu að síður mín skoðun á drengnum eftir daginn. Jæja, höldum áfram með leikinn...

...Sigurður Egill Lárusson var ekki lengi að jafna leikinn, lék á varnarmann úta hægri kannti, slengdi honum svo föstum með vinstri fæti í fjær vinkilinn, frábært mark hjá Sigga þarna og algjörlega óverjandi fyrir Bajkovic í marki Hattar.

Það sem eftir lifði fyrri hálfleiks fengu bæði lið algjör dauðafæri. Fyrst Friðrik Ingi Þráinsson og Davíð Einarsson hjá Hetti, í sömu sókninni þar sem Davíð setti boltann í hliðarnetið þar sem hann stóð til vinstri í markteig og enginn í marki. Aaron Spear fékk svo algjöran slátrara hinu megin eftir frábæran undirbúning hjá Sigurði Agli, en hann hitti boltann illa þar sem hann stóð einn og óvaldaður á fjærstöng og skaut framhjá, staðan því 1-1 í hálfleik.

Gestirnir byrjuðu mun ferskari en það voru heimamenn sem skoruðu næsta mark þegar 10 mín voru búnar af seinni hálfleik, Elvar Þór gaf þá á Friðrik Inga sem snéri af sér varnarmann og setti hann þéttingsfast stöngin inn frá vítateigslínu, frábærlega að verki staðið af beggja hálfu.

Aftur tóku Víkingar 5 mínútur í að jafna og var það nú maskínan sjálf, Hjörtur Júlíus sem sá um að koma knettinum í netið. Hann var einn og óvaldaður í miðjum teig Hattar og stangaði boltann óverjandi framhjá Bajkovic í markinu, 2-2.

Elvar Þór var þó ekki á þeim buxunum að hætta í dag, hann tók boltann lék á 2 varnarmenn og smellti honum í þann þriðja með góðri spyrnu, boltinn fór þaðan niður í jörðina og skaust yfir Magnús í markinu og kom heimamönnum aftur í forystu. Ákveðið kjaftshögg fyrir gestina og Eysteinn Húni, þjálfari Hattar gerði þá taktíska breytingu og fjölgaði í vörninni hjá sér í 5 leikmenn sem átti svo sannarlega eftir að reynast þeim vel.

Höttur skoraði svo 3 mörk á stuttum tíma sem öllu voru dæmd af, fyrst Högni Helgason, svo Friðrik Ingi sem var mjög tæpur dómur og að lokum Jónas Ástþór. Þessar ákvarðanir Gunnars dómara virtist þó hafa lítil áhrif á heimamenn því þeir settu tvö góð mörk síðustu 5 mínútur leiksins. Fyrst Davíð Einarsson eftir góða sendingu frá Tóta Borgþórs og svo Óttar Steinn fyrirliði eftir hornspyrn Elvars Þórs.

Gestirnir gerðu lítið eftir að Höttur breytti í 5 manna vörn og heimamenn notuðu skyndisóknir sínar vel og virkuðu oft hættulegir í þeim. Eins og fyrr sagði þá var Elvar Þór maður leiksins, Högni spilaði vel í vörn Hattar, Friðrik Ingi var mjög sterkur og einnig vann Davíð Einars vel allan leikinn. Hjá Víkingi átti Sigurður Egill góðan leik og einnig Tómas Guðmundsson í vörninni, stór og stæðilegur drengur. Svo skilar Hjörtur alltaf sínu í sókninni. Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Hött í baráttunni um að halda sæti sínu í deildinni, Óli Þórðar væntanlega ósáttur með síðari hálfleik sinna manna þar sem þeir voru nánast meter á eftir síðasta hálftímann eða svo.
Byrjunarlið:
12. Halldór Smári Sigurðsson
21. Aron Elís Þrándarson
27. Tómas Guðmundsson

Varamenn:
Helgi Sigurðsson ('71)
9. Viktor Jónsson ('58)
29. Agnar Darri Sverrisson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Halldór Smári Sigurðsson ('27)

Rauð spjöld: