Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
Þór
0
3
FH
0-1 Guiseppe P Funicello '64 , sjálfsmark
0-2 Ingimundur Níels Óskarsson '72
0-3 Guðmann Þórisson '90
12.05.2013  -  17:00
Þórsvöllur
Pepsi deild karla
Aðstæður: Sæmilegar
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: Rúmlega 800
Byrjunarlið:
Sveinn Elías Jónsson
Orri Freyr Hjaltalín
5. Atli Jens Albertsson
9. Jóhann Helgi Hannesson (f)
13. Ingi Freyr Hilmarsson ('5)
14. Hlynur Atli Magnússon
20. Jóhann Þórhallsson ('66)

Varamenn:
10. Sigurður Marinó Kristjánsson ('78)
15. Janez Vrenko ('5)
18. Jónas Sigurbergsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Jóhann Helgi Hannesson ('57)
Orri Freyr Hjaltalín ('57)
Hlynur Atli Magnússon ('53)

Rauð spjöld:
@jedissson Jóhann Óli Eiðsson
Þægilegur sigur Íslandsmeistaranna á Akureyri
Aðstæður voru sæmilegar þegar nýliðar Þórs og Íslandsmeistarar FH mættust á Þórsvelli í dag í 2. umferð Pepsideildar karla. Grænari vellir hafa þó sést og ekki batnaði hann eftir því sem á leikinn leið.

Fyrri hálfleiks verður seint minnst fyrir nokkuð nema helst hversu oft Ingimundur Níels Óskarsson var rangstæður. Hættulegasta færi Þórsara átti fyrirliðinn Sveinn Elías Jónsson en hann slapp í gegn strax á fyrstu mínútu leiksins. Vippa hans fór framhjá. FH-ingum tókst að koma boltanum einu sinni í netið en Emil Pálsson var dæmdur rangstæður. Gullskórinn Atli Guðnason átti síðan dauðafæri en skot hans hafnaði í stönginni.

Þórsarar byrjuðu fyrri hálfleikinn líkt og þann fyrri og fengu dauðafæri strax í upphafi. Þá átti Jóhann Helgi skalla sem Róbert varði vel. Skömmu síðar átti Jóhann Þórhallsson ágætt skot sem var varið.

Fyrsta mark leiksins kom á 64. mínútu þegar Atli Guðnason fékk boltann inn í teig og lagði hann fyrir markið. Þar mætti Guiseppe Funicello og setti boltann örugglega í eigið mark. Annað mark FH-inga var svipað því fyrra, aftur fékk Atli boltann og lagði hann fyrir markið en í þetta sinn skoraði Ingimundur Níels Óskarsson. Undir lokinn náði Guðmann Þórisson að skora eftir sendingu frá Viktori Erni Guðmundssyni.

Maður leiksins var Atli Guðnason en sóknarleikur FH var mikið til frá honum kominn. Fast á hæla hans fylgdi Guðmann Þórisson sem var eins og klettur í vörninni og laumaði inn einu marki í lokin. Íslandsmeistararnir eru því með fullt hús stiga eftir tvær umferðir en Þórsarar án stiga.
Byrjunarlið:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
Ólafur Páll Snorrason
Emil Pálsson ('75)
3. Guðjón Árni Antoníusson
4. Sam Tillen
7. Ingimundur Níels Óskarsson ('85)
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
11. Atli Guðnason ('90)
21. Guðmann Þórisson
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson
- Meðalaldur 36 ár

Varamenn:
9. Kristján Flóki Finnbogason ('90)
13. Kristján Gauti Emilsson
16. Jón Ragnar Jónsson
18. Einar Karl Ingvarsson
- Meðalaldur 32 ár

Liðsstjórn:
Daði Lárusson

Gul spjöld:
Björn Daníel Sverrisson ('71)
Emil Pálsson ('65)
Guðmann Þórisson ('57)
Ólafur Páll Snorrason ('26)

Rauð spjöld: