Keflavík
0
2
KR

0-1
Baldur Sigurðsson
'30
0-2
Baldur Sigurðsson
'55
12.05.2013 - 19:15
Nettóvöllurinn
Pepsi-deildin
Aðstæður: Andvari og Heiðskýrt
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 1.600
Maður leiksins: Baldur Sigurðsson
Nettóvöllurinn
Pepsi-deildin
Aðstæður: Andvari og Heiðskýrt
Dómari: Þorvaldur Árnason
Áhorfendur: 1.600
Maður leiksins: Baldur Sigurðsson
Byrjunarlið:
Haraldur Freyr Guðmundsson
Jóhann Birnir Guðmundsson
('85)
('85)
Sigurbergur Elísson
10. Hörður Sveinsson
('71)
('71)
20. Magnús Þórir Matthíasson
('64)
('64)
25. Frans Elvarsson
- Meðalaldur 40 ár
Varamenn:
12. Bergsteinn Magnússon (m)
5. Magnús Þór Magnússon (f) (f)
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Ray Anthony Jónsson ('37)
Rauð spjöld:
Keflvíkingar andlausir
Það var aðeins fyrstu andartök fyrsta heimaleiks Keflvíkinga sem þeir sýndu eitthvað lífsmark sem lið. Það sem bjargaði þeim frá enn stærra tapi en 0-2 gegn KR var sú staðreynd að í byrjun voru gestirnir lítt skárri og eftir að þeir náðu 0-2 forskoti þá héldu þeir boltanum innan liðsins og sættu sig við stöðuna eins og hún var.
Fyrstu 15.mín leiksins voru heimamenn heldur sprækari án þess að skapa sér neitt nema eitt hálffæri og fá þrjár hornspyrnur án árangurs.
Það varsvo téðri 15.mín að fyrsta dauðafæri leiksins leit dagsins ljós. Þorsteinn Már fékk þá góða sendingu frá Gary Martin og átti gott skot að marki en Preece varði vel í marki Keflavíkur.
Gestirnir héldu svo áfram að þjarma að heimamönnum og á 27.mín komst Óskar Örn í tvö dauðafæri. Fyrst varði Preece glæsilega frá honum og svo hitti Óskar knöttinn illa í seinna færinu og þrumaði himinhátt yfir markið.
Heimamenn fengu svo gott færi í sinni næstu sókn þegar Frans Elvarsson átti skalla að marki KR en rétt framhjá.
Á 30.mín má svo segja að úrslitin hafi ráðist. Bjarni Guðjónsson tók þá aukaspyrnu frá vinstri, skrúfaði boltann inná teiginn. Þar var mættur Baldur Sigurðsson, kastaði sér fram og skallaði boltann í mark Keflavíkur af miklum glæsibrag.
Baldur fékk svo annað færi skömmu síðar en þá skallaði hann aukaspyrnu Bjarna framhjá markinu.
Á 33. mín kom svo besta færi Keflvíkinga. Eftir ágæta sókn virtist allt vera að renna heimamönnum úr greipum þar til Bjarni Guðjónsson lagði knöttin fyrir fætur Frans Elvarssonar sem lét vaða á markið, en þar hitti hann fyrir Hannes nokkurn Halldórsson sem sýndi mögnuð tilþrif og varði með mikklum stæl.
Á 37.mín var svo Grindvíkingurinn knái, Ray Antony, stálheppinn að sleppa með gult spjald þegar hann hennti sér í tveggja fóta tæklingu sem hefði að margra mati verskuldað rautt spjald, en góður dómari leiksins Þórvaldur Árnason lét gula spjaldið duga.
Á 43.mín fékk svo Njarðvíkingurinn í liði KR, Óskar Örn Hauksson, dauðafæri en Preece bjargaði heimamönnum enn og aftur með magnaðri markvörslu.
Staðan í hálfleik því 0-1 fyrir gestina.
Seinni hálfleikurinn var svo eign KRinga og með ólíkindum hversu andleysið var mikið hjá heimamönnum og virtust leikmenn liðsins ekki hafa nokkra trú á verkefninu ef undan er skilinn Frans Elvarsson sem var sá eini sem sýndi alvöru baráttu.
Þetta andleysi kom þeim svo í bobba á 55.mín. Eftir ´goða sókn KR og klafs inn í vítateig barst boltinn fyrir fætur áðurnefnds Baldurs Sigurðssonar sem gaf sér góðan tíma til að stýra knetinum með hnitmiðuðu skoti í stöngina og inn og klára leikinn fyrir gestina. Því hafi trú heimamanna verið lítil fyrir þetta mark þá hvarf hún endanlega.
Það vakti furðu manna að Arnór Ingvi Traustason skildi byrja á bekknum hjá Keflavík og virtist sem sú furða væri ekki ástæðulaus því eftir að hann kom inná á 64.mín þá kom smá lífsmark upp hjá heimamönnum. Arnór átti t.a.m ágætt skot að marki á 75. mín en Hannes Halldórsson sýndi enn og aftur ástæðuna fyrir því að hann sé landsliðmarkmaður númer eitt.
Fleira gerðist ekki markvert í leiknum og sigur Vesturbæjardrengja fyllilega sanngjarn.
Aðstæður á Nettóvellinum voru allar hinar bestu til knattspyrnuiðkunar og því synd að fá ekki betri leik.
Góður dómari leiksins var Þorvaldur Árnason og steig hann vart feilspor í leiknum og hélt leiknum í heljargreipum og fær toppeinkun fyrir sín störf.
1.600 áhorfendur lögðu leið sýna á völlinn og vonandi að þetta hafi ekki verið fyrirboði um það sem koma skal hjá heimamönnum því þá er nokkuð ljóst að svona áhorf næst ekki mjög oft í sumar.

2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
8. Baldur Sigurðsson
8. Þorsteinn Már Ragnarsson
('77)
('77)
8. Jónas Guðni Sævarsson
11. Emil Atlason
18. Aron Bjarki Jósepsson
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
Varamenn:
3. Haukur Heiðar Hauksson
23. Atli Sigurjónsson
('77)
- Meðalaldur 35 ár
('77)
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld: