KR
3
0
Þór

Baldur Sigurðsson
'7
1-0
Gary Martin
'52
2-0
Þorsteinn Már Ragnarsson
'88
3-0
16.05.2013 - 18:00
KR-völlur
Pepsi-deildin
Aðstæður: Prýðilegar
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
KR-völlur
Pepsi-deildin
Aðstæður: Prýðilegar
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Byrjunarlið:
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
8. Baldur Sigurðsson
('55)
('55)
8. Jónas Guðni Sævarsson
11. Emil Atlason
18. Aron Bjarki Jósepsson
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson
('55)
- Meðalaldur 35 ár
('55)
Varamenn:
8. Þorsteinn Már Ragnarsson
('55)
('55)
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Sigur KR á Þór aldrei í hættu
Hlutskipti þeirra liða sem mættust á KR-velli í kvöld hefur verið ansi ólíkt. Þórsarar mættu í heimsókn með tvo stóra ósigra á bakinu og flestir buggust við auðveldum vinnudegi fyrir KR-inga. Sú varð raunin.
KR-ingar kláruðu þó verkefnið fagmannlega, mættu ekki með neitt vanmat í leikinn og eru með fullt hús stiga að loknum þremur umferðum.
Páll Viðar, þjálfari Þórs, lék með fimm manna varnarlínu í kvöld enda mörkin verið að leka inn hjá þeim. Leikurinn hófst með stórsókn heimamanna og vörn gestana ekki búin að finna taktinn þegar Smalinn sjálfur, Baldur Sigurðsson, stangaði inn hornspyrnu Atla Sigurjónssonar.
Baldur kominn með þrjú mörk í tveimur síðustu leikjum.
Þór náði svo aðeins meira jafnvægi á sinn varnarleik en KR-ingar héldu áfram að stjórna leiknum. KR var með eins marks forystu í hálfleik og komu svangir til leiks eftir hlé, Gary Martin bætti við marki og eftir það var þetta aldrei ein einasta spurning.
Þorsteinn Már Ragnarsson rak síðasta naglann í kistu Þórsara í lok leiks. KR-ingar einfaldlega á öðrum klassa en Þórsarar og nú þegar er maður farinn að tala um fallfnyk. Það er þó algjörlega of snemmt að dæma strax. Það má ekki gleyma því að Þórsarar gátu varla fengið erfiðari andstæðinga í byrjun móts.
Í næsta leik leika þeir gegn Ólafsvíkingum og þurfa nauðsynlega að sýna úr hverju þeir eru gerðir. Þórsliðið er alls ekki ódýrt og metnaður manna meiri en sá að vera að berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Of margir leikmenn hafa verið að leika langt undir getu og verður afskaplega fróðlegt að sjá hvernig menn svara kallinu í næsta leik.
KR-liðið var jafnt og gott í kvöld en maður leiksins er Gary Martin sem skoraði annað markið og lagði það þriðja upp. Hann hefur ekki verið iðinn við markaskorun í ár en þetta ætti að geta komið sjálfstraustinu í lag og fengið hann til að finna taktinn.

Sveinn Elías Jónsson
Orri Freyr Hjaltalín
5. Atli Jens Albertsson
9. Jóhann Helgi Hannesson (f)
('73)
('73)
14. Hlynur Atli Magnússon
15. Janez Vrenko
('73)
('73)
Varamenn:
6. Ármann Pétur Ævarsson
('73)
('73)
18. Jónas Sigurbergsson
20. Jóhann Þórhallsson
('73)
('73)
21. Kristján Páll Hannesson
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld: