Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Stjarnan
7
0
FH
Írunn Þorbjörg Aradóttir '25 1-0
Danka Podovac '28 2-0
Danka Podovac '45 3-0
Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir '56 4-0
Rúna Sif Stefánsdóttir '85 5-0
Harpa Þorsteinsdóttir '87 6-0
Danka Podovac '93 7-0
18.05.2013  -  14:00
Samsung-völlurinn
Pepsi-deildin
Dómari: Frosti Viðar Gunnarsson
Byrjunarlið:
1. Sandra Sigurðardóttir (m)
Harpa Þorsteinsdóttir
4. Glódís Perla Viggósdóttir ('46)
5. Írunn Þorbjörg Aradóttir ('67)
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (f)
8. Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir
10. Anna María Baldursdóttir (f)
11. Elva Friðjónsdóttir
17. Rúna Sif Stefánsdóttir
19. Anna Björk Kristjánsdóttir ('55)
27. Danka Podovac
- Meðalaldur 31 ár

Varamenn:
9. Kristrún Kristjánsdóttir
16. Kristín Ösp Sigurðardóttir
18. Heiðrún Ósk Reynisdóttir
23. Eyrún Guðmundsdóttir ('46)
24. Bryndís Björnsdóttir ('55)
25. Megan Manthey ('67)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
@antonleifs Anton Ingi Leifsson
Stjarnan valtaði yfir FH
FH mætti í Garðarbæinn í dag á Samsung-völlinn og varð leikurinn algjör einstefna, nánast frá fyrstu mínútu. FH-stúlkur mættu ofjörlum, þó Stjarnan hafi ekki spilað frábærlega voru þær þó mun betri aðilinn.

Fyrsta markið kom þó ekki fyrr en eftir 25. mínútu en þá opnaði Írunn Þorbjörg Aradóttir og fjórum mínútum síðar skoraði Danka Podovac eitt af sínum þrem mörkum. Eftir það var ekki snúið og Danka bætti við tveim mörkum, auk þess sem Soffía Arnþrúður Gunnarsdóttir, Harpa Þorsteinsdóttir og Rúna Sif Stefánsdóttir skoruðu sitthvort markið.

FH gekk illa að byggja upp sinn sóknarleik. Margrét Sveinsdóttir byrjaði frammi, enda margar frá vegna meiðsla - en Guðrún Jóna, þjálfari FH, gerði svo breytingar í hálfleik og þá fór Margrét Sveinsdóttir sem hafði spilað frammi í miðvörðinn. Ekki oft sem maður sér það!

Ekki gekk betur hjá FH í síðari hálfleik og því fór sem fór. Stjarnan spilaði ágætis bolta, en vindurinn gerði báðum liðum mjög erfitt fyrir. Rúna Sif Stefánsdóttir átti virkilega flotta leik og átti flotta spretti upp kantinn. Einnig var Danka Podavac virkilega öflug á miðsvæðinu og stjórnaði því vel.

Lokatölur 7-0 fyrir Stjörnuna sem er með níu stig eftir þrjá leiki, en FH liðið er með eitt stig eftir þrjá leiki - en á tvo mikilvæga leiki framundan; gegn Aftureldingu og HK/Víking.
Byrjunarlið:
Sigmundína Sara Þorgrímsdóttir
Sigrún Ella Einarsdóttir
Halla Marinósdóttir ('91)
4. Guðrún Höskuldsdóttir
5. Margrét Sif Magnúsdóttir
7. Elísabet Guðmundsdóttir ('46)
8. Viktoría Valdís Guðrúnardóttir ('63)
14. Margrét Sveinsdóttir
15. Teresa Marie Rynier
18. Nanna Rut Jónsdóttir (m)
26. Ashlee Hincks

Varamenn:
2. Hugrún Elvarsdóttir
6. Heiða Dröfn Antonsdóttir ('63)
17. Guðrún Björg Eggertsdóttir ('46)
17. Alda Ólafsdóttir ('91)

Liðsstjórn:
Hafdís Erla Gunnarsdóttir
Elva Björk Ástþórsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld: