Keflavík
2
2
Fylkir

Arnór Ingvi Traustason
'13
1-0
Andri Fannar Freysson
'41
1-0
Viðar Örn Kjartansson
'42
, misnotað víti
Jóhann Birnir Guðmundsson
'53
, misnotað víti
1-0
1-1
Tryggvi Guðmundsson
'56
Hörður Sveinsson
'78
2-1
2-2
Ásgeir Eyþórsson
'84
20.05.2013 - 19:15
Nettóvöllurinn
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Dásemdar veður.
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 1049
Maður leiksins: Arnór Ingvi Traustason
Nettóvöllurinn
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Dásemdar veður.
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 1049
Maður leiksins: Arnór Ingvi Traustason
Byrjunarlið:
Haraldur Freyr Guðmundsson
Jóhann Birnir Guðmundsson
('85)
('85)
Sigurbergur Elísson
20. Magnús Þórir Matthíasson
('44)
('44)
25. Frans Elvarsson
- Meðalaldur 40 ár
Varamenn:
5. Magnús Þór Magnússon (f) (f)
10. Hörður Sveinsson
('75)
('75)
11. Bojan Stefán Ljubicic
Liðsstjórn:
Ómar Jóhannsson (MÞ)
Gul spjöld:
Arnór Ingvi Traustason ('73)
Jóhann Birnir Guðmundsson ('44)
Rauð spjöld:
Andri Fannar Freysson ('41)
10-11 Rán í Keflavík
Það voru margir á því að Fylkismenn hafi rænt stigi er þeir mættu Keflvíkingum á Nettóvellinum í kvöld.
Fyrri hálfleikur var algjör einstefna að hálfu heimamanna og engu líkara en gestirnir hafi fengið rangan leiktíma uppgefinn. Þeir mættu einfaldlega ekki til leiks.
Keflvíkingar byrjuðu aftur með miklum látum og strax á 4.mín slapp Arnór Ingvi innfyrir vörn Fylkis en Bjarni Þórður var á undan að handsama knöttinn. En Bjarni kom litlum vörnum við á 11.mín. Magnús Þórir Matthíasson átti þá góða sendingu fyrir markið og Fylkismenn náðu ekki að koma boltanum almennilega frá og hann barst til Arnórs Ingva sem skoraði með góðu skoti og heimamenn komnir með sanngjarnt forskot.
Keflvíkingar héldu áfram að ráða lögum og lofum á vellinum og ekki batnaði ástandið fyrir gestina þegar Pablo Punyed þurfti að yfirgefa völlinn vegna meiðsla á 20.mín.
Heimamenn þjörmuðu látlaust á gestunum og það voru í raun ótrúlegir yfirburðir án þess að þeir næðu að auka forskotið. Sigurbergur Elísson átti skot yfir markið á 25.mín. Jóhann Birnir skot sem Bjarni Þórður varði á 28. mín. Þá var komið að Marjan Jugovic. Hann átti fyrst skot sem hafnaði ofaná þverslá Fylkismarksins á 30.mín og svo varði Bjarni skot hans af löngu færi á 37.mín. Það var því ekki skrítið að menn biðu bara eftir að heimamenn bættu við forskotið og fátt sem benti til annars.
En á 41.mín gerðist umdeilt atvik sem átti eftir að reynast ákveðin vendipunktur í leiknum. Tryggvi Guðmundsson fékk þá sendingu innfyrir vörn Keflavíkur og háði mikið kapphlaup við Andra Fannar Freysson. Þeir reyndu báðir að ná til knattarins og erfitt að sjá hvor væri á undan í boltann en við baráttuna féll Tryggvi við og dómarinn benti á vítapunktinn og rak Andra af leikvelli. Eftir leik sagði Tryggvi að þetta hefði verið "soft" en vildi ekki meina að um "dýfu" væri að ræða.
Viðar Örn Kjartansson fór á vítapunktinn en David Preece varði meistaralega.
Heimamenn höfðu því yfir að loknum fyrri hálfleik en ljóst að róðurinn gæti orðið erfiður í þeim seinni, einum færri.
Viðar Örn hóf seinni hálfleikinn á því að reyna að bæta fyrir misnotuðu vítaspyrnuna þegar hann átti gott skot að marki á 50.mín en boltinn hafnaði í stönginni. Keflvíkingar snéru vörn í sókn og uppskáru vítaspyrnu á 52.mín. Jóhann Birnir fór á punktinn en Bjarni Þórður gat ekki verið minni maður en kollegi sinn í Keflavíkurmarkinu og varði spyrnuna frá Jóhanni. Heimamenn virtust lítið ætla að slaka á klónni og þeir félagar Frans Elvarsson og Arnór Ingvi gerðu Fylkisvörninni lífið leitt hvað eftir annað en náðu ekki að klára færin.
Það var svo þvert gegn gangi leiksins að Fylkismenn jöfnuðuá 56.mín.
Viðar Örn fékk þá boltann, lagði hann fyrir sig og skaut að marki. David Preece varði vel en náði ekki að halda knettinum. Hann barst til Tryggva Guðmundssonar og hann gerði það sem hann gerir betur en flestir, lagði knöttinn af öryggi í netið og staðan orðin jöfn.
Tryggvi var svo aftur á ferðinni á 63.mín þegar hann fékk sendingu frá Viðari Erni en skaut boltanum rétt framhjá markinu.
Á 65.mín fengu svo heimamenn tvö dauðafæri. Fyrst komst Jóhann Birnir innfyrir vörnina en Bjarni Þórður gerði vel og kom boltanum afturfyrir endalínu. Uppúr hornspyrnunni barst svo knötturinn útfyrir vítateiginn þar sem Sigurbergur Elísson þrumaði að marki. Boltinn fór í varnarmann og yfir Bjarna í markinu en varnarmanni Fylkis tókst að bjarga á marklínu.Á 68. mín tekurJóhann Birnir aukaspyrnu við vítateigshorn og boltinn dettur ofaná slá Fylkismarksins.
Á 75.mín kom Hörður Sveinsson inná í liði Keflavíkur og hann var ekki lengi að stimmpla sig inn. Arnór Ingvi fór þá enn og aftur illa með vörn Fylkis, átti gott skot að marki sem hafnaði í stönginni. Þar var svo mættur téður Hörður Sveinsson og honum brást ekki bogalistinn og náði forystu fyrir heimamenn á nýjan leik.
Eftir markið hjá Herði virtist sem fátt myndi breytast. Heimamenn virtust orðnir þreyttir eftir að hafa spilað einum færri allann seinni hálfleikinn og Fylkismenn dottnir í andleysið á nýjan leik. Það var því óvænt að gestirnir náðu að jafna metin á 84.mín þegar Ásgeir Eyþórsson kom boltanum í netið eftir sendingu frá Elís Rafni Björnssyni.
Jafntefli þ´vi niðurstaðan í mjög kaflaskiptum leik og geta gestirnir hrósað happi með að hafa náð einu stigi.

Árni Freyr Guðnason
('78)
('78)
Bjarni Þórður Halldórsson
Oddur Ingi Guðmundsson
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
4. Finnur Ólafsson
16. Tómas Joð Þorsteinsson
17. Davíð Þór Ásbjörnsson
('57)
- Meðalaldur 33 ár
('57)
Varamenn:
4. Andri Þór Jónsson
24. Elís Rafn Björnsson
('57)
('57)
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Árni Freyr Guðnason ('44)
Heiðar Geir Júlíusson ('38)
Sverrir Garðarsson ('33)
Rauð spjöld: