Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Breiðablik
0
1
FH
0-1 Emil Pálsson '17
Árni Vilhjálmsson '90 , misnotað víti 0-1
21.05.2013  -  20:00
Kópavogsvöllur
Pepsi-deildin
Aðstæður: Smá gola, annars sól og blíða
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Maður leiksins: Róbert Örn Óskarsson (FH)
Byrjunarlið:
Andri Rafn Yeoman
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
18. Finnur Orri Margeirsson
19. Kristinn Jónsson
22. Ellert Hreinsson
27. Tómas Óli Garðarsson ('12)
44. Damir Muminovic ('64)
45. Guðjón Pétur Lýðsson
- Meðalaldur 35 ár

Varamenn:
24. Arnór Bjarki Hafsteinsson (m)
10. Árni Vilhjálmsson ('64)
16. Ernir Bjarnason ('75)
17. Elvar Páll Sigurðsson ('12)
26. Páll Olgeir Þorsteinsson
77. Þórður Steinar Hreiðarsson

Liðsstjórn:
Olgeir Sigurgeirsson

Gul spjöld:
Damir Muminovic ('14)

Rauð spjöld:
@brynjarerluson Brynjar Ingi Erluson
Róbert Örn hetja FH-inga á Kópavogsvelli
FH-ingar sóttu þrjú stig í Kópavog í kvöld er liðið heimsótti Breiðablik í Pepsi-deild karla, en það var sól og blíða á Kópavogsvelli, þó nokkuð kalt.

Íslandsmeistararnir byrjuðu leikinn töluvert betur og áttu mörg hættuleg færi í leiknum, en ljóst var að eitt mark skildi liðin að. Emil Pálsson skoraði það eftir frábæra sókn gestanna þar sem Jón Ragnar Jónsson átti innkast á Björn Daníel Sverrisson, sem gaf hann fyrir á Emil. Ísfirðingurinn gat ekki annað gert en að setja boltann í netið.

FH-ingar voru líklegir til að bæta við fleiri mörkum í fyrri hálfleik, en Gunnleifur Vignir Gunnleifsson sá við sínum gömlu félögum með frábærum markvörslum. Það var hinsvegar maðurinn sem satt á bekknum hjá FH síðasta sumar sem lét ljós sitt skína í kvöld.

Róbert Örn Óskarsson verður á milli tannanna á fólki á kaffistofum landsins, en hann varði oft á tíðum meistaralega í marki FH og tryggði liðinu þrjú stig undir lok leiksins er Breiðablik fékk vítaspyrnu á 90. mínútu.

Róbert varði frá Árna Vilhjálmssyni og kórónaði þar með frábæran leik. Lokatölur 0-1 fyrir FH á Kópavogsvelli sem er með tíu stig eftir fjórar umferðir, en Breiðablik aftur á móti með sex stig eftir jafnmargar umferðir.
Byrjunarlið:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
Ólafur Páll Snorrason
Emil Pálsson
4. Sam Tillen
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
11. Atli Guðnason ('72)
16. Jón Ragnar Jónsson
17. Atli Viðar Björnsson ('80)
21. Guðmann Þórisson
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson
- Meðalaldur 36 ár

Varamenn:
7. Ingimundur Níels Óskarsson ('72)
9. Kristján Flóki Finnbogason
13. Kristján Gauti Emilsson ('80)
18. Einar Karl Ingvarsson
21. Böðvar Böðvarsson
- Meðalaldur 32 ár

Liðsstjórn:
Daði Lárusson

Gul spjöld:
Ólafur Páll Snorrason ('78)
Björn Daníel Sverrisson ('57)
Guðmann Þórisson ('41)

Rauð spjöld: