Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Í BEINNI
Undankeppni HM kvenna
Ísland
19:00 0
0
Spánn
Þróttur R.
1
2
Tindastóll
0-1 Elvar Páll Sigurðsson '30
0-2 Steven Beattie '36
Oddur Björnsson '55 1-2
23.05.2013  -  19:15
Valbjarnarvöllur
1. deildin
Aðstæður: Blautur völlur
Dómari: Sigurður Óli Þórleifsson
Byrjunarlið:
Hallur Hallsson ('67)
1. Ögmundur Ólafsson (m)
9. Arnþór Ari Atlason
11. Halldór Arnar Hilmisson
14. Hlynur Hauksson
21. Sveinbjörn Jónasson
24. Guðjón Gunnarsson
27. Oddur Björnsson

Varamenn:
30. Trausti Sigurbjörnsson (m)
5. Haukur Hinriksson
9. Andri Björn Sigurðsson ('84)
15. Davíð Sigurðsson
22. Andri Gíslason ('80)
23. Aron Bjarnason ('67)

Liðsstjórn:
Erlingur Jack Guðmundsson

Gul spjöld:
Sveinbjörn Jónasson ('78)

Rauð spjöld:
@elvargeir Elvar Geir Magnússon
Stólarnir hlupu um allan völl og skildu Þrótt eftir í sárum
Baráttuglaðir og vinnusamir leikmenn Tindastóls náðu í þrjú stig á Valbjarnarvelli. Þeir nýttu sín færi, voru svo skipulagðir og hlupu um allan völl. Aðdáunarverð frammistað sem skilaði fyrsta sigri liðsins.

Tindastóll er taplaus að loknum þremur umferðum en liðið gerði jafntefli í báðum fyrstu leikjum sínum.

Byrjun Þróttar er á hinn bóginn mikil vonbrigði fyrir stuðningsmenn liðsins. Tómur poki.

Leikurinn í kvöld byrjaði á því að jafnræði var með liðunum úti á vellinum en Þróttur fékk færin. Seb Furness í marki gestana varði frá Sveinbirni í dauðafæri og heimamenn vildu fá vítaspyrnu þegar boltinn virtist fara í hönd leikmanns Stólana.

En þegar hálftími var liðinn af leiknum átti Karl Brynjar Björnsson misheppnaða sendingu úr vörn Þróttar, gestirnir komu boltanum fyrir þar sem mikill usli skapaðist en Elvar Páll Sigurðsson var réttur maður á réttum stað og kom knettinum í netið.

Gestirnir létu kné fylgja kviði og bættu við marki sex mínútum síðar, óvænt sending á Steven Beattie sem var ekki í gæslu og skoraði laglegt mark.

Tindastóll lá til baka í seinni hálfleiknum og Þróttur sá um að sækja. Oddur Björnsson minnkaði muninn eftir frábæran undirbúning hjá Sveinbirni Jónassyni. Þrátt fyrir margar sóknir og nokkur mjög góð færi náði Þróttur ekki að bæta við marki. Sveinbjörn vildi fá vítaspyrnu en uppskar aðeins gult fyrir leikaraskap. Umdeildur dómur.

Vinnusigur Tindastóls staðreynd og ekki annað hægt en að dást að framlagi leikmanna liðsins. Dass af heppni var þó í kokteilnum því vissulega fékk Þróttur nokkur hörkufæri sem liðið hefði átt að nýta.
Byrjunarlið:
1. Seb Furness (m)
2. Loftur Páll Eiríksson
5. Edvard Börkur Óttharsson
6. Fannar Örn Kolbeinsson
7. Atli Arnarson
8. Ruben Resendes ('72)
9. Christopher Tsonis
13. Steven Beattie ('90)
20. Árni Arnarson
21. Elvar Páll Sigurðsson
25. Ágúst Friðjónsson ('63)

Varamenn:
12. Sigurður Hrannar Björnsson (m)
14. Arnar Sigurðsson ('72)
19. Rodrigo Morin
23. Kári Eiríksson ('63)

Liðsstjórn:
Konráð Freyr Sigurðsson (Þ)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: