Sesko efstur á óskalista Arsenal - Man Utd gæti losað sig við Mainoo - Ronaldo áfram hjá Al Nassr
Keflavík
2
3
KR
Frans Elvarsson '1 1-0
1-1 Baldur Sigurðsson '12
1-2 Baldur Sigurðsson '51
Magnús Þórir Matthíasson '81 2-2
2-3 Aron Bjarki Jósepsson '93
22.09.2011  -  17:00
Nettóvöllurinn
Pepsi-deild karla
Aðstæður: Frábærar, sól og blíða. Völlurinn blautur.
Dómari: Erlendur Eiríksson
Maður leiksins: Baldur Sigurðsson
Byrjunarlið:
Ómar Jóhannsson
Guðjón Árni Antoníusson
11. Magnús Sverrir Þorsteinsson
20. Magnús Þórir Matthíasson
25. Frans Elvarsson
- Meðalaldur 3 ár

Varamenn:

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson

Gul spjöld:
Frans Elvarsson ('89)

Rauð spjöld:
@maggimar Magnús Már Einarsson
Völsungarnir komu titlinum nær Frostaskjólinu
KR-ingar stigu stórt skref í átt að Íslandsmeistaratitlinum með 3-2 sigri á Keflavík í kvöld. Húsvíski varnarmaðurinn Aron Bjarki Jósepsson var hetja KR-inga í leiknum en hann skoraði sigurmarkið í viðbótartíma, tíu mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.

Sigurinn er gríðarlega mikilvægur fyrir KR-inga sem gætu nú mögulega orðið Íslandsmeistarar í næstsíðustu umferðinni á sunnudag. Fyrir þann leik hefur KR þriggja stiga forskot á ÍBV og sjö mörkum hagstæðari markatölu og fimm stiga forskot á FH. KR getur því orðið meistari ef liðið vinnur Fylki á sunnudag og ÍBV tapar eða gerir jafntefli við FH.

Það byrjaði þó ekki vel hjá KR-ingum í kvöld því heimamenn byrjuðu af miklum krafti og skoruðu strax á fyrstu mínútu. Frans Elvarsson skoraði þá með skalla og opnaði um leið markareikning sinn í efstu deild.

KR-ingar unnu sig inn í leikinn eftir þetta og Baldur Sigurðsson jafnaði með langskoti gegn sínum gömlu félögum. Keflvíkingar björguðu á ótrúlegan hátt á línu strax í næstu sókn en mörkin urðu ekki fleiri í fyrri hálfleiknum.

KR-ingar hófu síðari hálfleikinn af krafti og Baldur bætti við öðru marki sínum með skalla eftir fyrirgjöf frá Kjartani Henry Finnbogasyni. Baldur var í miklu stuði í leiknum í dag en Mývetningurinn átti nokkrar tilraunir til að ná þrennunni en tókst ekki að þessu sinni.

Þess í stað náðu Keflvíkingar að vinna sig aftur inn í leikinn og þeir jöfnuðu á 82. mínútu. Guðmundur Steinarsson átti fasta fyrirgjöf sem Hannes Þór Halldórsson náði ekki að halda og Magnús Þórir Matthíasson náði boltanum og skoraði í autt markið.

Í kjölfarið kom Aron Bjarki inn á fyrir Skúla Jón Friðgeirsson þar sem meiðsli tóku sig upp hjá honum. Fæstir áttu líklega von á að Aron Bjarki myndi koma inn á og vera hetja KR-inga en hann opnaði hins vegar markareikning sinn hjá liðinu í viðbótartíma.

Eftir hornspyrnu Bjarna Guðjónssonar kastaði Aron sér fram og skallaði í netið við gríðarlegan fögnuð KR-inga. Þetta mark gæti átt eftir að reynast afar dýrmætt en KR-ingar eru nú í kjörstöðu í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn.

KR liðið átti fína kafla í leiknum í dag en liðið hefði getað verið búið að ganga frá leiknum áður en Keflvíkingar jöfnuðu. Kjartan Henry átti góðar rispur og Baldur var mjög ógnandi á miðjunni.

Hjá Keflavík átti Hilmar Geir Eiðsson fína spretti auk þess sem Guðjón Árni Antoníusson var fastur fyrir í vörninni. Keflvíkingar eru sem stendur í sjöunda sæti en einungis þrjú stig eru í fallsæti og því þarf liðið líklega fleiri stig í síðustu tveimur umferðunum til að tryggja sæti sitt endanlega.
Byrjunarlið:
Viktor Bjarki Arnarsson
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
5. Egill Jónsson ('75)
7. Skúli Jón Friðgeirsson ('82)
8. Baldur Sigurðsson
9. Kjartan Henry Finnbogason
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson
23. Atli Sigurjónsson
- Meðalaldur 3 ár

Varamenn:
6. Gunnar Þór Gunnarsson
18. Aron Bjarki Jósepsson ('82)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: