Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Valur
1
2
KR
0-1 Gary Martin '15
0-2 Gary Martin '26
1-2 Jonas Grönner '30 , sjálfsmark
22.09.2013  -  16:00
Vodafonevöllurinn
Pepsi-deildin
Aðstæður: Logn og völlurinn ágætur
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Maður leiksins: Gary Martin - KR
Byrjunarlið:
11. Sigurður Egill Lárusson
13. Arnar Sveinn Geirsson ('71)
23. Andri Fannar Stefánsson

Varamenn:

Liðsstjórn:
Matthías Guðmundsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
@maggimar Magnús Már Einarsson
KR-ingar kláruðu dæmið á Hlíðarenda
KR-ingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í 26. skipti með 2-1 sigri á Val á Hlíðarenda í dag. Ljóst var þegar KR átti fjóra leiki eftir í deildinni að einn sigur myndi duga til að tryggja titilinn og sá sigur kom í hús í dag.

Eftir tap gegn Blikum fyrir helgi voru KR-ingar staðráðnir í að gera betur í dag og klára dæmið fyrir framan stuðningsmenn sína sem fjölmenntu úr Vesturbænum og létu vel í sér heyra.

Gary Martin var í stuði í fyrri hálfleik og Valsmenn réðu illa við hann þrátt fyrir að fara að fordæmi Blika fyrir helgi og spila með fimm manna vörn gegn KR.

Gary skoraði tvö lagleg mörk í fyrri hálfleik og KR-ingar virtust ætla að fara nokkuð þægilega með sigur af hólmi. Valsarar voru ekki beittir fyrsta hálftímann en þeir náðu að minnka muninn fljótlega eftir að Gary skoraði annað markið.

Í síðari hálfleiknum sóttu Valsmenn meira en varnarmúr KR-inga var afar þéttur og öflugir varamenn komu einnig inn á til að styrkja liðið til muna á meðan Valsmenn voru með ansi ungan óreynda varamenn í dag.

KR-ingar lokuðu á allar sóknarlotur Vals og fögnuðu vel og innilega í leikslok enda að krækja í Íslandsmeistaratitilinn í annað skipti á síðustu þremur árum. Það verður því mikil gleði í Vesturbænum í kvöld líkt og reyndar líka í gær þegar KV komst upp í 1. deild í fyrsta skipti í sögunni.

Næsta verkefni KR er síðan að reyna að ná stigametinu í efstu deild en liðið á eftir leiki gegn bæði ÍA og Fram og þarf að vinna annan hvorn leikinn til að ná metinu sem FH-ingar eiga síðan árið 2009.
Byrjunarlið:
2. Grétar Sigfinnur Sigurðarson
3. Haukur Heiðar Hauksson
8. Jónas Guðni Sævarsson
11. Emil Atlason ('78)
21. Guðmundur Reynir Gunnarsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)
23. Atli Sigurjónsson ('66)
30. Jonas Grönner

Varamenn:
6. Gunnar Þór Gunnarsson
8. Þorsteinn Már Ragnarsson ('78)
9. Kjartan Henry Finnbogason ('76)
18. Aron Bjarki Jósepsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: