Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Fylkir
5
4
KR
Anna Björg Björnsdóttir '10 , víti 1-0
1-1 Margrét María Hólmarsdóttir '73 , víti
Anna Björg Björnsdóttir '80 , misnotað víti 1-1
1-2 Margrét María Hólmarsdóttir '99 , víti
Ruth Þórðar Þórðardóttir '117 2-2
2-3 Margrét María Hólmarsdóttir '120 , víti
Ruth Þórðar Þórðardóttir '120 , víti 3-3
3-3 Elísabet Guðmundsdóttir '120 , misnotað víti
Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir '120 , víti 4-3
4-3 Sigríður María S Sigurðardóttir '120 , misnotað víti
Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir '120 , misnotað víti 4-3
4-4 Hugrún Lilja Ólafsdóttir '120 , víti
Hulda Hrund Arnarsdóttir '120 , víti 5-4
5-4 Sara Lissy Chontosh '120 , misnotað víti
27.06.2014  -  18:00
Fylkisvöllur
Borgunarbikar kvenna
Dómari: Bríet Bragadóttir
Byrjunarlið:
1. Íris Dögg Gunnarsdóttir (m)
2. Selja Ósk Snorradóttir
4. Carys Hawkins ('46)
5. Anna Björg Björnsdóttir
7. Rut Kristjánsdóttir
8. Hulda Hrund Arnarsdóttir
10. Ruth Þórðar Þórðardóttir
15. Lovísa Sólveig Erlingsdóttir
22. Lucy Gildein ('66)
23. Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir
24. Eva Núra Abrahamsdóttir

Varamenn:
12. Birta Ósk Ómarsdóttir (m)
6. Sæunn Sif Heiðarsdóttir ('66)
17. Rakel Ýr Einarsdóttir
19. Aníta Björk Axelsdóttir
23. Signý Rún Pétursdóttir

Liðsstjórn:
Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir
Rakel Jónsdóttir

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komiði sæl og og blessuð og velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Fylkis og KR í 8 liða úrslitum Borgunarbikars kvenna.

Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér sitthvorum megin við textann.
Fyrir leik
Fylkir sem spilar í Pepsideild kvenna gerir engar breytingar á liði sínu frá síðasta leik í deildinni, enda engin ástæða til þar sem þær unnu góðan sigur á Val 2-0.
Fyrir leik
Til að komast í þessi 8 liða úrslit sigraði KR pepsideildar lið FH 1-0 á meðan Fylkir sigraði Þór/KA á Akureyri 1-0.
Fyrir leik
Fylkir eru nýliðar í Pepsideildinni í ár á meðan KR eru efstar í sínum riðli í 1.deild kvenna. Hörkuleikur framundan!!
1. mín
Leikurinn er hafinn.
1. mín
Það er frábært fótbolta veður í lautinni, sól og smá gola.
6. mín
Leikurinn fer rólega af stað.
7. mín
HÖRKU SKOT... Lucy Gildein, hægri kanturinn hjá Fylki, átti skot í slánna rétt fyrir utan teig.
9. mín
VÍTI !!!! Fylkir fær víti...
10. mín Mark úr víti!
Anna Björg Björnsdóttir (Fylkir)
MAAAAAARK !!!!! Anna Björg Björnsdóttir stóð undir nafni og lagði boltann snyrtilega í hornið.
18. mín
Fyrsta skot KR á markið, en það endaði beint í höndunum á Írisi Dögg markmanni Fylkis.
20. mín
Lucy með hættulega stungusendingu inn fyrir vörn KR sem Hulda Hrund reyndi að ná, en Hrafnhildur í marki KR gerði vel og kom á undan í boltann.
22. mín
Fylkir fær aukaspyrnu rétt fyrir utan teig, hættulegur staður.
22. mín
Rut Kristjánsdóttir með aukaspyrnuna sem fór í slánna og útaf.
27. mín
Fylkir er með öll völd á vellinum eins og er.
30. mín
Fín sókn hjá Fylki, Anna Björg með skot rétt yfir.
39. mín
Leikurinn hefur aðeins róast.
43. mín
Fylkisstelpur í vandræðum í vörninni og KR kemst í sókn, Carys Hawkins bakvörður Fylkis bjargar þó með glæsilegum varnarleik og KR fær hornspyrnu.
45. mín
Hálfleikur.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
46. mín
Inn:Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir (Fylkir) Út:Carys Hawkins (Fylkir)
Fylkir gerir breytingu á liði sínu í hálfleik.
52. mín
Inn:Jóhanna K Sigurþórsdóttir (KR) Út:Sonja Björk Jóhannsdóttir (KR)
Fyrirliðinn Sonja Björk fer af af velli, spurning hvort um meiðsli sé að ræða.
55. mín
Leikurinn fer rólega af stað og liðin skiptast á að sækja, engar hættulegar sóknir þó.
59. mín
DAUÐAFÆRI hjá Fylki... Lucy með góða sendingu inn fyrir og Anna Björg með skot sem leit út fyrir að vera á leiðinni inn í markið!!
62. mín
Inn:Stefanía Pálsdóttir (KR) Út:Hulda Ósk Jónsdóttir (KR)
65. mín
AFTUR DAUÐAFÆRI HJÁ FYLKI !!!

Og aftur er það sending inn fyrir frá Lucy Gildein á Önnu Björg sem var nálægt því að skora.
66. mín
Inn:Sæunn Sif Heiðarsdóttir (Fylkir) Út:Lucy Gildein (Fylkir)
69. mín
Inn:Elísabet Guðmundsdóttir (KR) Út:Embla Sigríður Grétarsdóttir (KR)
73. mín
KR FÆR VÍTI !!!!
73. mín Mark úr víti!
Margrét María Hólmarsdóttir (KR)
Margrét María klárar þetta af miklu öryggi !!!
76. mín
Nú lifnaði leikurinn aldeilis við!
79. mín
FYLKIR FÆR VÍTI... HVAÐ ER Í GANGI !!
80. mín Misnotað víti!
Anna Björg Björnsdóttir (Fylkir)
ANNA BJÖRG KLÚÐRAÐI VÍTINU !
80. mín
Þvílík spenna hérna í lautinni!
86. mín
Fylkir fær aukaspyrnu á hættulegum stað rétt fyrir utan teig.
86. mín
Aukaspyrnan endar beint í höndunum á Hrafnhildi markmanni KR.
89. mín Gult spjald: Sara Lissy Chontosh (KR)
90. mín
Fylkir skorar í uppbótartímar en markið dæmt af vegna rangstæðu.
90. mín
Fylkir fær hornspyrnu þegar lítið er eftir.
90. mín
Ekkert verður úr hornspyrnunni og dómarinn flautar - framlenging því staðreynd!
91. mín
Fyrri hálfleikur í framlengingunni er hafinn.
96. mín
Mikil barátta í gangi á miðjusvæðinu.
98. mín
SKOT Í SLÁNNA - Ruth Þórðar með gott skot sem endaði í slánni og Anna Björg náði frákastinu en sendi beint á markmann KR-inga.
99. mín
KR FÆR VÍTI !!!!!!
99. mín
KR var í skyndisókn og boltinn endaði í hendinni á varnarmanni Fylkis.
99. mín Mark úr víti!
Margrét María Hólmarsdóttir (KR)
MAAAAAARK !!
100. mín
Það er allt að gerast hérna í Árbænum.. spennan í hámarki!
105. mín
Dómarinn er búinn að flauta - Hálfleikur í framlengingunni!
106. mín
Stutt pása - síðari hálfleikur er hafinn. Spennandi 15 mínútur eftir.
110. mín
Sæunn Sif með fínt skot sem markmaður KR varði vel.
111. mín
KR í dauðafæri en Íris Dögg markmaður Fylkis varði mjög vel!
113. mín
Sæunn Sif aftur með glæsilegt skot sem var rétt framhjá.
114. mín
Fylkir sækir stíft að marki KR.
117. mín MARK!
Ruth Þórðar Þórðardóttir (Fylkir)
Stoðsending: Anna Björg Björnsdóttir
MAAAAAARK !!!!

FYLKIR ER AÐ JAFNA LEIKINN!
120. mín Gult spjald: Helena Sævarsdóttir (KR)
120. mín
Fylkir fær hornspyrnu, líklega það síðasta í leiknum.
120. mín
Og ekkert varð úr henni.
120. mín
Dómarinn flautar - þetta er að fara í vító !!
120. mín Mark úr víti!
Margrét María Hólmarsdóttir (KR)
120. mín Mark úr víti!
Ruth Þórðar Þórðardóttir (Fylkir)
120. mín Misnotað víti!
Elísabet Guðmundsdóttir (KR)
Yfir !!!
120. mín Mark úr víti!
Hrafnhildur Hekla Eiríksdóttir (Fylkir)
120. mín Misnotað víti!
Sigríður María S Sigurðardóttir (KR)
Íris Dögg ver spyrnuna!!
120. mín Misnotað víti!
Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir (Fylkir)
Stöngin !!
120. mín Mark úr víti!
Hugrún Lilja Ólafsdóttir (KR)
120. mín Mark úr víti!
Hulda Hrund Arnarsdóttir (Fylkir)
120. mín Misnotað víti!
Sara Lissy Chontosh (KR)
ÍRIS DÖGG VER SPYRNUNA OG FYLKIR ER BÚIÐ AÐ VINNA !!!!
Byrjunarlið:
1. Hrafnhildur Agnarsdóttir (m)
Margrét María Hólmarsdóttir
Sigríður María S Sigurðardóttir
Hugrún Lilja Ólafsdóttir
5. Sigrún Birta Kristinsdóttir
7. Sonja Björk Jóhannsdóttir ('52)
8. Sara Lissy Chontosh
11. Embla Sigríður Grétarsdóttir ('69)
14. Hulda Ósk Jónsdóttir ('62)
19. Helena Sævarsdóttir
23. Guðrún María Johnson

Varamenn:
2. Mist Grétarsdóttir
10. Stefanía Pálsdóttir ('62)
17. Jóhanna K Sigurþórsdóttir ('52)
18. Ástrós Lea Guðlaugsdóttir

Liðsstjórn:
Guðný Þóra Guðnadóttir
Elísabet Guðmundsdóttir

Gul spjöld:
Helena Sævarsdóttir ('120)
Sara Lissy Chontosh ('89)

Rauð spjöld: