Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
Stjarnan
2
1
Þór/KA
Harpa Þorsteinsdóttir '6 1-0
Elva Friðjónsdóttir '84 2-0
2-1 Katla Ósk Rakelardóttir '93
01.07.2014  -  18:00
Samsung völlurinn
Pepsi-deild kvenna 2014
Dómari: Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Byrjunarlið:
1. Sandra Sigurðardóttir (m)
Harpa Þorsteinsdóttir
4. Glódís Perla Viggósdóttir
5. Írunn Þorbjörg Aradóttir ('80)
6. Lára Kristín Pedersen
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir (f)
9. Kristrún Kristjánsdóttir
9. Sigrún Ella Einarsdóttir ('86)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
17. Rúna Sif Stefánsdóttir ('86)
19. Anna Björk Kristjánsdóttir

Varamenn:
1. Berglind Hrund Jónasdóttir
5. Maegan Kelly ('86)
11. Elva Friðjónsdóttir ('80)
18. Heiðrún Ósk Reynisdóttir
20. Marta Carissimi
24. Bryndís Björnsdóttir ('86)

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Stjörnunnar og Þórs/KA í 7. umferð Pepsi-deildar kvenna. Leikurinn hefst klukkan 18:00 á Stjörnuvelli í Garðabæ.

Þessi lið hafa farið best af stað af liðunum í deildinni og eru í efstu tveimur sætunum. Stjarnan á toppnum með 15 stig og Þór/KA í 2. sæti með 13. Því er ljóst að liðið sem vinnur í dag endar umferðina á toppnum.
1. mín
Leikurinn er hafinn í hífandi roki og rigningu í Garðabænum.
6. mín MARK!
Harpa Þorsteinsdóttir (Stjarnan)
Harpa lét vaða á markið rétt fyrir utan vítateig vinstra megin og nýtti vindinn vel til að boltinn færi yfir Roxanne Barker í markinu.
15. mín
Anna Björk skallaði boltann í þverslánna á marki Þórs/KA.
23. mín
Roxanne varði í þrígang frá Írunni sem var komin í dauðafæri í teignum eftir góða sendingu Kristrúnar Kristjánsdóttur.
26. mín
Stjarnan er miklu líklegra liðið í leiknum en spila með stífum vindi sem stendur á mark Þórs/KA. Harpa Þorsteinsdóttir átti rétt í þessu fast skot sem fór beint á Roxanne í markinu.
42. mín
Búið að vera frekar rólegt yfir þessu síðustu mínúturnar og lítið að gerast.
42. mín
Ásgerður Stefanía með fast skot fyrir utan teig rétt framhjá marki Þórs/KA.
45. mín
Fyrri hálfleik er lokið og staðan enn 1-0 fyrir Stjörnuna, mark Hörpu Þorsteinsdóttur skilur liðin að. Liðin fá nú langþráð hlé frá vindinum og rigningunni áður en baráttan heldur áfram.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
51. mín
Stjarnan heldur áfram að sækja á mark Þórs/KAn og er betra liðið á vellinum. Rúna Sif átti skot rétt í þessu sem fór í hliðarnetið á marki norðanstúlkna.
53. mín
Harpa lyfti boltanum frá vítateigshorninu en rétt yfir mark Þórs/KA.
62. mín
Inn:Katla Ósk Rakelardóttir (Þór/KA) Út:Andrea Mist Pálsdóttir (Þór/KA)
66. mín
Katla Ósk, nýkomin inn sem varamaður í góðu færi eftir sendingu in fyrir vörnina en nýtti það illa og skaut hátt fir mark Stjörnunnar.
69. mín
Inn:Anna Rakel Pétursdóttir (Þór/KA) Út:Karen Nóadóttir (Þór/KA)
74. mín
Stórhættulegt skot frá Hörpu sem var úti á vinstri kanti, nærri hliðarlínu, og lét vaða á markið en rétt yfir.
80. mín
Inn:Elva Friðjónsdóttir (Stjarnan) Út:Írunn Þorbjörg Aradóttir (Stjarnan)
82. mín
Inn:Freydís Anna Jónsdóttir (Þór/KA) Út:Heiða Ragney Viðarsdóttir (Þór/KA)
Síðasta skipting Þórs/KA.
84. mín MARK!
Elva Friðjónsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Harpa Þorsteinsdóttir
Varnarmenn Þórs/KA áttu að vera komnar með vald á boltanum eftir að hafa tekið hann af Hörpu Þorsteinsdóttur en misstu hann til Elvu sem skoraði þarna gegn sínum gömlu félögum af stuttu færi í teignum fjórum mínútum eftir að hafa komið inná.
86. mín
Katla Ósk í fínu skotfæri í teignum en aftur skaut hún hátt yfir Stjörnumarkið.
86. mín
Inn:Bryndís Björnsdóttir (Stjarnan) Út:Sigrún Ella Einarsdóttir (Stjarnan)
86. mín
Inn:Maegan Kelly (Stjarnan) Út:Rúna Sif Stefánsdóttir (Stjarnan)
93. mín MARK!
Katla Ósk Rakelardóttir (Þór/KA)
Miðverðir Stjörnunnar rugluðust og spörkuðu báðar í boltann sem rúllaði til Kötlu sem var ein gegn Söndru og skoraði með góðu skoti.
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 2-1 sigri Stjörnunnar sem nú er með fimm stiga forskot á toppi Pepsi-deildar kvenna.
Byrjunarlið:
1. Roxanne Kimberly Barker (m)
Silvía Rán Sigurðardóttir
4. Karen Nóadóttir ('69)
5. Thanai Lauren Annis
6. Kayla June Grimsley
8. Lára Einarsdóttir
9. Hafrún Olgeirsdóttir
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
22. Helena Rós Þórólfsdóttir
25. Heiða Ragney Viðarsdóttir ('82)

Varamenn:
25. Sara Mjöll Jóhannsdóttir (m)
10. Anna Rakel Pétursdóttir ('69)
15. Freydís Anna Jónsdóttir ('82)
16. Oddný Karólína Hafsteinsdóttir
16. Sigrún Ösp Aðalgeirsdóttir
21. Lillý Rut Hlynsdóttir

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: