Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
Liverpool
1
0
QPR
James Milner '47 1-0
10.12.2011  -  15:00
Anfield Road
Enska úrvalsdeildin
Dómari: Lee Mason
Byrjunarlið:
22. Simon Mignolet (m)
2. Glen Johnson
3. Fabinho
3. Jose Enrique
5. Georginio Wijnaldum
7. James Milner
10. Sadio Mane ('86)
11. Mohamed Salah ('79)
18. Alberto Moreno
26. Andy Robertson
37. Martin Skrtel

Varamenn:
9. Iago Aspas
16. Sebastian Coates
17. Mamadou Sakho
23. Xherdan Shaqiri
24. Joe Allen ('79)
32. Joel Matip ('86)
34. Martin Kelly

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Georginio Wijnaldum ('22)
Joe Allen ('86)

Rauð spjöld:
93. mín
Liverpool með verðskuldaðan en nauman 1-0 sigur gegn QPR. Luis Suarez skoraði eina mark leiksins snemma í seinni hálfleik.
93. mín
Leiknum er lokið!
93. mín
Shaun Wright-Phillips nálægt því að skora í eigið mark!! Hann stýrir knettinum í þverslána.
90. mín
Þremur mínútum er bætt við venjulegan leiktíma og QPR fær hornspyrnu.
87. mín
Aðeins þrjár mínútur eftir af leiknum, tekst Liverpool að halda þetta út?
86. mín
Inn:Joel Matip (Liverpool) Út:Sadio Mane (Liverpool)
86. mín Gult spjald: Joe Allen (Liverpool)
85. mín
Craig Bellamy með skot úr aukaspyrnu sem fer í hliðarnetið!
80. mín
Shaun Wright-Phillips með skot fyrir utan teig sem hafnar hátt yfir markið.
79. mín
Inn:Joe Allen (Liverpool) Út:Mohamed Salah (Liverpool)
Fyrsta skitping Liverpool, Maxi Rodriguez hefur verið óheppinn í leiknum og kemur út fyrir Craig Bellamy.
78. mín
Inn:Clint Hill (QPR) Út:Jamie Mackie (QPR)
Þriðja og síðasta skitping QPR.
77. mín
Slæm sending frá Danny Gabbidon til baka á Radek Cerny sem rétt nær boltanum á undan Dirk Kuyt.
75. mín
Leikmenn QPR aðeins farnir að sækja á mark Liverpool.
69. mín
Radek Cerny hefur haldið QPR í leiknum með frábærum markvörslum. Þessi 37 ára gamli Tékki er þriðji markvörður liðsins..
67. mín
MAXI RODRIGUEZ Í DAUÐAFÆRI!! Sloppinn einn í gegn en Cerny á stórleik í marki QPR og sá við honum.
65. mín
Liverpool fær 15. hornspyrnu sína í leiknum, en ekkert varð úr henni.
64. mín
Liverpool sækir áfram grimmt að marki QPR. Dirk Kuyt með skotið en Cerny ver enn eina feðrina.
60. mín
Inn:D. J. Campbell (QPR) Út:Tommy Smith (QPR)
60. mín
Maxi Rodriguez nálægt því að skora fyrir Liverpool! Hann á skot af stuttu færi en Radek Cerny varði meistaralega.
50. mín
Inn:Bradley Orr (QPR) Út:Anton Ferdinand (QPR)
50. mín
Síðari hálfleikur byrjar svo sannarlega vel fyrir Liverpool. Luis Suarez var að skora í fyrsta sinn síðan 1. október.
47. mín MARK!
James Milner (Liverpool)
Liverpool er komið yfir!! Charlie Adam fer illa með Luke Young á vinstri kantinum og kemur mer fyrirgjöfina fyrir markið. Luis Suarez er mættur og skallar boltann í netið.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
45. mín
Hálfleikstölur í öðrum leikjum:
Arsenal 0 - 0 Everton
Bolton 0 - 2 Aston Villa
Manchester United 2 - 0 Wolves
Norwich 1 - 1 Newcastle
Swansea 0 - 0 Fulham
West Brom 1 -1 Wigan
45. mín
Dómarinn hefur flautað til hálfleiks, staðan er enn 0-0.
42. mín
Þarna fór Luis Suarez illa af ráði sínu! Fyrst ætlaði hann að vippa yfir Cerny í marki QPR sem misheppnast og síðan á hann skot úr þröngu færi, en tveir leikmenn Liverpool vildu fá boltann sem voru í betra færi.
39. mín
Glen Johnson lætur sig falla í vítateig QPR og heimtar vítaspyrnu en fær ekki.
36. mín
Liverpool menn mun betri og eru 61% með boltann. QPR hinsvegar verst vel og bíður átekta.
34. mín
Charlie Adam reynir að brjóta sér leið í gegnum vörn QPR og fær hornspyrnu.
31. mín
Maxi Rodriguez í dauðafæri!! Dirk Kuyt með stungusendinguna á Maxi sem var sloppinn í gegn en Radek Cerny varði vel!
29. mín
Jordan Henderson með skot fyrir utan teig sem fer yfir markið.
28. mín
Liverpool fær sína sjöundu hornspyrnu leiksins, en enn og aftur tekst QPR að koma boltanum frá markinu.
25. mín
Aðeins eitt mark hefur litið dagsins ljós í þeim sjö leikjum sem eru nú í gangi í ensku úrvalsdeildinni. Nani kom Manchester United í 1-0 gegn Wolves.
23. mín
Jay Bothroyd tekur aukaspyrnuna en skot hans hafnar í varnarveggnum.
22. mín Gult spjald: Georginio Wijnaldum (Liverpool)
Aukaspyrna fyrir QPR á hættulegum stað eftir brot frá Daniel Agger sem fær fyrsta gula spjald leiksins.
20. mín
Luis Suarez vill fá vítaspyrnu þar sem hann telur að það hafi verið brotið á sér inn í teig. Lee Mason dómari lætur leikinn hinsvegar halda áfram.
17. mín
Aukaspyrna fyrir Liverpool rétt fyrir utan teig hægra megin. Charlie Adam tekur skotið, en það er af varnarmanni í horn. Ekkert varð úr því..
11. mín
Liverpool menn virðast frískir í byrjun leiks, sækja nú af miklum krafti. Suarez reynir skot úr þröngu færi en tekst ekki að koma boltanum á markið.
9. mín
Luis Suarez með fyrsta færi leiksins!! Stewart Downing með fyrirgjöfina fyrir markið beint á kollinn á Suarez sem er einn og óvaldaður í vítateig QPR en Radek Cerny varði.
3. mín
Leikurinn fer nokkuð rólega af stað..
1. mín
Leikurinn er hafinn!
Fyrir leik
Þá fer leikurinn að hefjast, liðin eru mætt á völlinn!
Fyrir leik
Því miður er Heiðar Helguson ekki með QPR í dag þar sem hann á við meiðsli að stríða!

Leikurinn verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Byrjunarlið Liverpool: Reina, Johnson, Enrique, Skrtel, Agger, Adam, Henderson, Downing, Maxi, Kuyt, Suarez.

Varamenn: Doni, Kelly, Carragher, Shelvey, Bellamy, Coates, Carroll.
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
6. Danny Gabbidon
10. Jay Bothroyd
11. Alejandro Faurlin
12. Jamie Mackie ('78)
13. Armand Traore
17. Joey Barton
18. Luke Young
21. Tommy Smith ('60)
24. Radek Cerny (m)
32. Shaun Wright-Phillips
35. Anton Ferdinand ('50)

Varamenn:
2. Bradley Orr ('50)
3. Clint Hill ('78)
4. Shaun Derry
9. D. J. Campbell ('60)
14. Akos Buzsaky
16. Matthew Connolly
43. Elvijs Putni

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: