Stamford Bridge
mánudagur 12. desember 2011
kl. 20:00
Enska úrvalsdeildin
Dómari: Mark Clattenburg
Chelsea 2 - 1 Manchester City
0-1 Mario Balotelli ('2)
1-1 Raul Meireles ('34)
2-1 Frank Lampard ('82)
Byrjunarlið:
1. Petr Cech (m)
2. Branislav Ivanovic
3. Ashley Cole
6. Oriol Romeu
7. Ramires
10. Juan Mata ('84)
11. Didier Drogba
16. Raul Meireles ('73)
17. Jose Bosingwa
23. Daniel Sturridge ('88)
26. John Terry

Varamenn:
22. Ross Turnbull (m)
8. Frank Lampard ('73)
9. Fernando Torres
12. John Obi Mikel ('88)
15. Florent Malouda ('84)
19. Paulo Ferreira
21. Salomon Kalou

Gul spjöld:
Raul Meireles ('36)
Oriol Romeu ('63)
Didier Drogba ('78)

Rauð spjöld:

Magnús Már Einarsson
94. mín
Þetta er búið! Chelsea er fyrsta liðið sem nær að vinna Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Andre Villas Boas og lærisveina hans!
Eyða Breyta
90. mín
Chelsea er að sigla sigrinum í höfn.
Eyða Breyta
88. mín John Obi Mikel (Chelsea) Daniel Sturridge (Chelsea)

Eyða Breyta
86. mín Edin Dzeko (Manchester City) Joleon Lescott (Manchester City)
Síðasta skipting City. Edin Dzeko er sendur á vettvang.
Eyða Breyta
84. mín Florent Malouda (Chelsea) Juan Mata (Chelsea)

Eyða Breyta
82. mín MARK! Frank Lampard (Chelsea)
Lampard þrumar boltanum í mitt markið og skorar! Fyrsta tap Manchester City á tímabilinu virðist vera í uppsiglingu.
Eyða Breyta
82. mín
Chelsea fær vítaspyrnu!! Daniel Sturridge á skot sem fer í höndina á Joleon Lescott.
Eyða Breyta
80. mín
Tiu mínútur eftir. Chelsea sækir meira á meðan Manchester City verst með nánast alla leikmenn sína fyrir aftan miðju.
Eyða Breyta
78. mín Gult spjald: Didier Drogba (Chelsea)
Drogba tæklar Zabaleta og fær gult spjald að launum.
Eyða Breyta
75. mín Nigel De Jong (Manchester City) David Silva (Manchester City)
Mancini heldur áfram að þétta lið sitt. Kallinn er sáttur með stigið enda City manni færri.
Eyða Breyta
74. mín Gult spjald: Mario Balotelli (Manchester City)
Brassinn fær gult fyrir að tækla Balotelli.
Eyða Breyta
73. mín Frank Lampard (Chelsea) Raul Meireles (Chelsea)
Lampard fær um það bil 20 mínútur í dag.
Eyða Breyta
71. mín
Benedikt Bóas Hinriksson:
Hef lengi haldið því fram að Whitney Houston maðurinn Yaya Toure er bara 60-70 mín maður Er samt með 250 þús pund á viku! #Galið #Ekkiíformi
Eyða Breyta
67. mín
Chelsea stjórnar ferðinni núna en liðið hefur verið 80% með boltann síðustu fimm mínúturnar.
Eyða Breyta
64. mín Kolo Toure (Manchester City) Sergio Aguero (Manchester City)
Mancini gerir breytingu eftir rauða spjaldið. Kolo Toure kemur í hægri bakvörðinn en Pablo Zabaleta er vinstra megin.
Eyða Breyta
63. mín Gult spjald: Oriol Romeu (Chelsea)

Eyða Breyta
60. mín
Rauða spjaldið hjá Clichy þýðir að hann verður í leikbanni gegn sínum gömlu félögum í Arsenal á sunnudag.
Eyða Breyta
58. mín Rautt spjald: Gael Clichy (Manchester City)
Gael Clichy hefur ekki átt góðan dag og hann er farinn í sturtu. Franski bakvörðurinn fær sitt annað gula spjald réttilega fyrir brot á Ramires. Hvað gerir Chelsea núna? Ná þeir að nýta sér liðsmuninn og vera fyrsta liðið til að vinna City á tímabilinu?
Eyða Breyta
53. mín
Juan Mata klobbar Vincent Kompany á magnaðan hátt áður en Belginn brýtur á honum síðar í sókninni. Kompany er á spjaldi og þarf að fara að passa sig.
Eyða Breyta
51. mín
Pape Mamadou Faye verðandi leikmaður Grindvíkinga:
Respect to my brotha From another mother #SuperMario
Eyða Breyta
47. mín
Sturridge fær boltann á teignum eftir aukaspyrnu en þrumuskot hans fer yfir!
Eyða Breyta
47. mín Gult spjald: Gael Clichy (Manchester City)
Clichy fer í bókina fyrir brot á Sturridge.
Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn og það er áfram hellidemba!
Eyða Breyta
45. mín
Staðan er 1-1 í leikhléi á Brúnni!
Eyða Breyta
41. mín Gult spjald: Vincent Kompany (Manchester City)

Eyða Breyta
38. mín
Sigurþór Þórsson:
Kevin Friend hefði gefið Meireles rautt spjald fyrir tæklinguna nuna! #unfriend #fotbolti #máekkertlengur
Eyða Breyta
36. mín Gult spjald: Raul Meireles (Chelsea)
Meireles er líka kominn með gula spjaldið eftir ljóta tæklingu á Pablo Zabaleta. Meireles fór hátt með sólann og einhverjir dómarar hefðu líklega gefið honum rauða spjaldið.
Eyða Breyta
34. mín MARK! Raul Meireles (Chelsea)
Chelsea jafnar! Daniel Sturridge leikur á Gael Clichy og kemst inn á vítateiginn þar sem hann sendir boltann fyrir. Raul Meireles kemur á ferðinni og á ekki í vandræðum með að skora með skoti á lofti. 1-1 og allt í járnum á Brúnni núna eftir að Manchester City hafði stjórnað umferðinni á upphafsmínútunum.
Eyða Breyta
25. mín
Didier Drogba á skot sem Joe Hart ver í hliðarnetið. Besta tilraun Chelsea hingað til.
Eyða Breyta
23. mín
Hafsteinn Briem leikmaður Vals:
Eins gott að Cech er með grímuna sína merkta, væri ömurlegt fyrir hann ef hann færi að ruglast á grímum og vera með grímu hjá öðrum #PC1
Eyða Breyta
22. mín
Yaya Toure er eitthvað illa við Juan Mata. Toure fór fyrst með löppina í Mata þegar hann lá á jörðinni og síðan fór hann með hendina í andlitið á honum. Mark Clattenburg sá atvikin hins vegar ekki.
Eyða Breyta
20. mín
Topplið Manchester City er með tögl og haldir og heimamenn eru ekki líklegir í augnablikinu.
Eyða Breyta
16. mín
Mario Balotelli er með sjálfstraustið í botni og hann lætur vaða úr aukaspyrnu af 35 metra færi. Boltinn er hins vegar nær því að fara yfir stúkuna en í netið.
Eyða Breyta
14. mín
Manchester City vill fá vítaspyrnu en Mark Clattenburg dæmir ekkert. David Silva er í skotfæri en ákveður að leika á Jose Bosingwa sem fer í hann. Silva fellur við en Clattenburg dæmir ekkert. Snertingin var til staðar en Silva lét sig þó falla auðveldlega.
Eyða Breyta
11. mín
Kun Aguero fær gott færi til að bæta við öðru marki. Argentínumaðurinn hafði betur í baráttu við Ivanovic en skot hans fór framhjá. Chelsea menn töldu að brotið hefði verið á Ivanovic en ekkert var dæmt.
Eyða Breyta
9. mín
Micah Richards leikmaður Manchester City (meiddur):
Marioooooooo balatelllliiiiiiiiiiiiii!
Eyða Breyta
6. mín
Kristinn Steindórsson leikmaður Breiðabliks:
Balotelli er með jafn mikið af hæfileikum á vellinum og hann er vitlaus í daglegu lífi #fagmaður
Eyða Breyta
3. mín
Balotelli er kominn með átta mörk í síðustu tíu úrvalsdeildarleikjum en hann hefur núna skorað í öll þau fimm skipti sem hann hefur verið í byrjunarliði á tímabilinu.
Eyða Breyta
2. mín MARK! Mario Balotelli (Manchester City)
Manchester City kemst yfir eftir innan við tvær mínútur. Kun Aguero á laglega utanfótar sendingu inn fyrir á Balotelli sem heldur Branislav Ivanovic frá sér, leikur á Petr Cech og skorar. Vörn Chelsea virkaði alls ekki sannfærandi þarna en Aguero galopnaði hana með þessari sendingu. Balotelli ,,fagnar" markinu síðan á sinn yfirvegaða hátt að venju.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikurinn er hafinn!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hallgrímur Mar Bergmann:
clichy, barry, milner, zabaleta, gareth barry, lescott. það kæmist enginn af þessum mönnum í Tottenham liðiið, allir í starting hjá City.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það rignir á Stamford Bridge. Vonandi fáum við alvöru leik!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Mario Balotelli hefur skorað í öllum fjórum byrjunarliðsleikjum sínum í úrvalsdeildinni í vetur. Gerir hann það sama í dag?
Eyða Breyta
Fyrir leik
Grétar Atli Davíðsson:
Ég efast um að AVB komist upp með að hafa Frank #Lampard aftur á bekknum. City er miklu betra lið en Valencia. #CFC #fotbolti
Eyða Breyta
Fyrir leik
Umræðan er mikil á Twitter um þennan leik en í Englandi tala margir um að þetta sé ,,El Cashico" og vísa þar með í ríka eigendur félaganna. Við munum að sjálfsögðu birta valdar Twitter færslur úr leiknum hér og því er um að gera að merkja færslurnar sínar #fotbolti á Twitter.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Guðmundur Benediktsson fótboltalýsandi:
Spennið beltin, styttist í Chelsea vs Man City! Ég lofa veislu!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Roberto Mancini, stjóri Manchester City, hefur ákveðið að velja Mario Balotelli fram yfir Edin Dzeko í liðið í kvöld. Balotelli braut útivistarreglur Mancini á laugardagskvöldið þegar hann skellti sér út að borða en það hefur engin áhrif á liðsvalið í dag.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Frank Lampard er á bekknum hjá Chelsea líkt og gegn Valencia í síðustu viku. Jose Bosingwa kemur inn í liðið fyrir David Luiz en að öðru leyti treystir Andre Villas-Boas á sömu leikmenn. Bosingwa kemur inn í hægri bakvörðinn og Branislav Ivanovicc færist í miðvörðinn.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Brasilíumaðurinn hressi David Luiz tekur út leikbann í kvöld eftir að hafa fengið fimm gul spjöld í vetur.

Hjá Manchester City er Micah Richards tæpur og þá er Aleksandar Kolarov frá keppni vegna nárameiðsla.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Góða kvödið! Það er boðið upp á alvöru mánugdagsleik í enska boltanum í kvöld þar sem Chelsea og Manchester City mætast á Stamford Bridge.

Manchester City er fyrir leikinn með tveggja stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en Chelsea er í fimmta sætinu, tíu stigum á eftir City. Því þarf Chelsea á sigri að halda í kvöld til að eiga áfram raunhæfa möguleika á titlinum.

Staða efstu liða:
1. Manchester City 38 stig
2. Manchester United 36 stig
3. Tottenham 31 stig
4. Arsenal 29 stig
5. Chelsea 28 stig
6. Liverpool 26 stig
7. Newcastle 26 stig
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Joe Hart (m)
4. Vincent Kompany
5. Pablo Zabaleta
6. Joleon Lescott ('86)
7. James Milner
16. Sergio Aguero ('64)
18. Gareth Barry
21. David Silva ('75)
22. Gael Clichy
42. Yaya Toure
45. Mario Balotelli

Varamenn:
30. Costel Pantilimon (m)
8. Samir Nasri
10. Edin Dzeko ('86)
11. Scott Sinclair
15. Stefan Savic
28. Kolo Toure ('64)
34. Nigel De Jong ('75)

Gul spjöld:
Vincent Kompany ('41)
Gael Clichy ('47)
Mario Balotelli ('74)

Rauð spjöld:
Gael Clichy ('58)