Egilshöllin
fimmtudagur 12. janúar 2012
kl. 19:00
Reykjavíkurmót karla - A riðill
Dómari: Halldór Breiðfjörð Jóhannsson
Maður leiksins: Hilmar Árni Halldórsson (Leiknir)
Víkingur 1 - 2 Leiknir
0-1 Ingólfur Örn Kristjánsson ('14)
1-1 Kjartan Dige Baldursson ('16)
1-2 Hilmar Árni Halldórsson ('55)
Myndir: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
Byrjunarlið:
30. Skúli Sigurðsson (m)
6. Halldór Smári Sigurðsson
11. Bergur Guðnason ('64)
14. Tómas Guðmundsson ('46)
18. Kjartan Dige Baldursson ('46)
19. Kristinn Jens Bjartmarsson
22. Sigurður Egill Lárusson ('80)
23. Davíð Örn Atlason
25. Patrik Snær Atlason
27. Gunnar Helgi Steindórsson ('75)
29. Agnar Darri Sverrisson ('46)

Varamenn:
1. Magnús Þormar (m)
5. Róbert Rúnar Jack ('46)
27. Ágúst Freyr Hallsson ('46)
28. Sverrir Þór Garðarsson ('64)
29. Davíð Steinn Sigurðsson ('75)
33. Kári Sveinsson (m) ('80)
33. Karel Sigurðsson ('46)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Komið þið sæl og velkomin í beina textalýsingu frá fyrsta leik Reykjavíkurmótsins í fótbolta. Tvö 1. deildarlið eigast við, Víkingur sem féll úr Pepsi-deildinni í fyrra mætir Leikni úr Breiðholti.

Bæði lið hafa skipt um þjálfara síðan í fyrra og eru sannkallaðir reynsluboltar að leiða saman hesta sína í kvöld. Ólafur Þórðarson tók við Víkingum en Willum Þór Þórsson er þjálfari Leiknis.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Víkingar hafa enn ekki sett sína skýrslu á netið en byrjunarlið Leiknis hefur verið gert opinbert.

Þar eru nokkur ný andlit. Damir Muminovic er í miðverðinum, Andri Steinn Birgisson á miðjunni og Pétur Már Harðarson á vængnum. Þá er Birkir Björnsson, ungur strákur úr 2. flokki Leiknis, í byrjunarliðinu í dag.

Gunnar Einarsson byrjar í hægri bakverðinum fyrir Leikni en hann er kominn aftur í Breiðholtið eftir að hafa spilað fyrir Víking í Pepsi-deildinni í fyrra.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Helgi Sigurðsson er ekki að spila með Víkingum í dag. Hann er aðeins í aðstoðarþjálfarahlutverkinu þennan daginn.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Jæja, nú er búið að gera byrjunarlið Víkings opinbert. Hellingur af ungum strákum á skýrslu hjá þeim í kvöld. Reynsluboltinn Reynir Leósson er þó í byrjunarliðinu en hann kom frá ÍA í vetur.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það eru tveir strákar á 2. flokksaldri í byrjunarliði Víkinga í dag. Það eru þeir Davíð Örn Atlason og Patrik Þór Atlason, báðir á miðári í 2. flokki. Davíð er sonur handboltaþjálfarans Atla Hilmarssonar og þar af leiðandi bróðir Arnórs Atlasonar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Magnús Þormar sem var aðalmarkvörður Víkinga í fyrra byrjar á bekknum í kvöld. Skúli Sigurðsson fær tækifæri í rammanum. Magnús lá undir gagnrýni á síðasta tímabili þar sem hann gaf nokkur dýrkeypt mörk.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Tómas Þór Þórðarson, blaðamaður DV:
Óli Þórðar búinn að gera Halldór Smára að fyrirliða #Vikes season starter eftir 2 min í egils
Eyða Breyta
2. mín
Leikurinn er farinn af stað. Leiknismenn eru hvítklæddir í dag, í varabúningum sínum. Víkingur í hefðbundnum rauðum og svörtum treyjum.
Eyða Breyta
9. mín
Fyrsta alvöru færi leiksins. Halldór Smári Sigurðsson bjargaði á línu. Munaði litlu að Hilmar Árni Halldórsson kæmi Leikni yfir eftir góða sókn.
Eyða Breyta
11. mín
Patrik Snær Atlason skallar framhjá marki Leiknis. Fyrirgjöf kom eftir að Birkir Björnsson rann í vinstri bakverðinum hjá Leikni.
Eyða Breyta
14. mín MARK! Ingólfur Örn Kristjánsson (Leiknir)
Leiknismenn eru komnir yfir! Hnitmiðuð sending úr miðverðinum ratar á Kristján Pál. Varnarmenn Víkinga gleymdu sér og Kristján kláraði glæsilega.
Eyða Breyta
16. mín MARK! Kjartan Dige Baldursson (Víkingur)
Það er fjör í þessu og Víkingar hafa jafnað strax! Kjartan Dige Baldursson skallar inn fyrirgjöf frá Sigurði Agli úr aukaspyrnu. Aukaspyrnan var dæmd á Óttar Bjarna, miðvörð Leiknis.
Eyða Breyta
18. mín
Pétur Már með fína skottilraun en Skúli í marki Víkinga varði vel í horn. Ekkert varð úr hornspyrnunni.
Eyða Breyta
22. mín
Leiknismenn eru mun meira með boltann og leikurinn fer að mestu fram á vallarhelmingi Víkings.
Eyða Breyta
31. mín
Mun meiri ógn frá Leiknismönnum hingað til og virðist líklegra að næsta mark komi frá þeim.
Eyða Breyta
41. mín
Leiknismenn gera tilkall til vítaspyrnu og Willum lætur í sér heyra á hliðarlínunni. Hilmar Árni féll í teignum. Virtist vera frekar soft.
Eyða Breyta
45. mín
Það er kominn hálfleikur í Egilshöll. Leiknir talsvert sterkara liðið en staðan þó jöfn 1-1.
Eyða Breyta
46. mín Stefán Jóhann Eggertsson (Leiknir) Gunnar Einarsson (Leiknir)
Seinni hálfleikur hafinn.
Eyða Breyta
46. mín Ágúst Freyr Hallsson (Víkingur) Agnar Darri Sverrisson (Víkingur)

Eyða Breyta
46. mín Karel Sigurðsson (Víkingur) Tómas Guðmundsson (Víkingur)

Eyða Breyta
46. mín Róbert Rúnar Jack (Víkingur) Kjartan Dige Baldursson (Víkingur)

Eyða Breyta
55. mín MARK! Hilmar Árni Halldórsson (Leiknir)
Leiknir hefur tekip forystuna á ný. Kristján Páll með hreint frábæra sendingu inn í teiginn á Ólaf Hrannar sem lagði boltann á Hilmar Árna sem skoraði með lausu skoti í hornið.
Eyða Breyta
59. mín
Daníel Hjaltason, fyrrum leikmaður Víkings... og Leiknis:
Gaman að sjá bandið á Halldóri Smára #meistari #fotbolti
Eyða Breyta
62. mín
Kristján Páll með skemmtilega vippu sem lendir í slánni. Munaði litlu að Leiknir kæmist tveimur mörkum yfir.
Eyða Breyta
64. mín Sverrir Þór Garðarsson (Víkingur) Bergur Guðnason (Víkingur)

Eyða Breyta
65. mín
Leiknismenn ógna mikið þessa stundina. Hilmar Árni átti skot í stöng og stuttu síðar skallaði Óttar Bjarni boltann naumlega framhjá eftir horn.
Eyða Breyta
68. mín
Það er hreinlega með ólíkindum að Leiknir skuli bara vera einu marki yfir! Ólafur Hrannar átti skot í stöngina rétt í þessu.
Eyða Breyta
74. mín Brynjar Hlöðversson (Leiknir) Birkir Björnsson (Leiknir)

Eyða Breyta
75. mín Davíð Steinn Sigurðsson (Víkingur) Gunnar Helgi Steindórsson (Víkingur)

Eyða Breyta
80. mín Kári Sveinsson (m) (Víkingur) Sigurður Egill Lárusson (Víkingur)

Eyða Breyta
81. mín
Sóknarleikur Víkinga í kvöld verið heldur tilviljanakenndur.
Eyða Breyta
85. mín Kjartan Andri Baldvinsson (Leiknir) Ólafur Hrannar Kristjánsson (Leiknir)

Eyða Breyta
85. mín Sindri Björnsson (Leiknir) Vigfús Arnar Jósepsson (Leiknir)

Eyða Breyta
86. mín
Víkingar hafa verið nokkuð sprækir síðustu mínútur. Spurning hvort þeir jafni þetta?
Eyða Breyta
86. mín Gult spjald: Óttar Bjarni Guðmundsson (Leiknir)

Eyða Breyta
90. mín
Víkingar áttu í skalla í slá! Þarna munaði litlu!
Eyða Breyta
93. mín
Leik lokið. Leiknismenn tóku þrjú stig hér í fyrsta leik Reykjavíkurmótsins. Voru betri nær allan leikinn en Víkingar ógnuðu í lokin.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
22. Eyjólfur Tómasson (m)
4. Damir Muminovic
6. Ólafur Hrannar Kristjánsson ('85)
8. Andri Steinn Birgisson
14. Birkir Björnsson ('74)
15. Ingólfur Örn Kristjánsson
20. Óttar Bjarni Guðmundsson
21. Hilmar Árni Halldórsson
23. Gunnar Einarsson ('46)
24. Vigfús Arnar Jósepsson ('85)
27. Pétur Már Harðarson

Varamenn:
1. Þorvaldur Rúnarsson (m)
8. Sindri Björnsson ('85)
11. Brynjar Hlöðversson ('74)
14. Kjartan Andri Baldvinsson ('85)
15. Stefán Jóhann Eggertsson ('46)
17. Þorgeir Leó Gunnarsson
26. Ólafur Davíð Pétursson

Gul spjöld:
Óttar Bjarni Guðmundsson ('86)

Rauð spjöld: