Nou Camp
miðvikudagur 25. janúar 2012
kl. 21:00
Spænski konungsbikarinn
Dómari: Fernando Teixeira Vitienes
Barcelona 2 - 2 Real Madrid
1-0 Pedro ('43)
2-0 Daniel Alves ('45)
2-1 Cristiano Ronaldo ('68)
2-2 Karim Benzema ('71)
Myndir: NordicPhotos
Byrjunarlið:
2. Daniel Alves
3. Gerard Pique
4. Cesc Fabregas
5. Carles Puyol
6. Xavi
8. Andres Iniesta ('29)
9. Alexis Sanchez
10. Lionel Messi
13. Jose Pinto (m)
16. Sergio Busquets
22. Eric Abidal

Varamenn:
1. Victor Valdes (m)
11. Thiago
14. Javier Mascherano
17. Pedro ('29)
21. Adriano
28. Dos Santos
39. Isaac Cuenca

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

Brynjar Ingi Erluson
90. mín
Leiknum er lokið! Það eru þó einhverjir eftirmálar því Pepe er brjálaður og er að klappa fyrir dómurunum. Hann er líklegur til þess að handrota einn þeirra, en það koma fregnir af því hér í kvöld ef það gerist.
Eyða Breyta
90. mín Gult spjald: Pepe (Real Madrid)

Eyða Breyta
89. mín Rautt spjald: Sergio Ramos (Real Madrid)
Ramos fær sitt annað gula spjald í leiknum! Mér fannst þetta heldur gróft, hann fer upp í skallaeinvígi við Busquets sem liggur "sárþjáður" á vellinum. Dómarinn er þó viss í sinni sök og rekur hann útaf.
Eyða Breyta
86. mín
Messi með skot rétt framhjá!! Barcelona er komið aftur inn í leikinn, Messi kominn með tvö skot í röð. Hann er nálægt því að skora en tekst honum það? Það er stóra spurningin.
Eyða Breyta
82. mín
Messi með skot rétt yfir! Hann fékk aukaspyrnu eftir að Fabio Coentrao braut á honum en aukaspyrna hans er rétt yfir markið.
Eyða Breyta
78. mín
Rétt áður var spurning um vítaspyrnu! Pepe axlaði þá Alexi Sanchez af vellinum mæstum því inn í teig, en ekkert dæmt. Sennilega réttur dómur hjá dómara leiksins!
Eyða Breyta
78. mín
Benzema við það að sleppa í gegn, en þá kemur Puyol og neglir hann niður! Hann er meiddur en Madrídingar hafa notað allar skiptingarnar!
Eyða Breyta
77. mín
Gestirnir eru að sækja stíft á Börsunga þessa stundina! Bjóða Madrídingar upp á kraftaverk?
Eyða Breyta
71. mín
BENZEMA!!! Hvað er að gerast í þessum leik?? Callejon skallar boltann inn fyrir á Karim Benzema sem lék á Carles Puyol í vörninni og kláraði færið glæsilega, þetta er rosalegur leikur!!
Eyða Breyta
71. mín MARK! Karim Benzema (Real Madrid)

Eyða Breyta
68. mín
RONALDO!!! Hann skorar glæsilegt mark. Fékk stungusendingu inn frá Mesut Özil að mér sýndist. Hann lék þar á Pinto í markinu áður en hann lagði boltann í netið örugglega.
Eyða Breyta
68. mín MARK! Cristiano Ronaldo (Real Madrid)

Eyða Breyta
61. mín Jose Callejon (Real Madrid) Kaka (Real Madrid)

Eyða Breyta
61. mín Karim Benzema (Real Madrid) Gonzalo Higuain (Real Madrid)

Eyða Breyta
58. mín
Ég leiðrétti þetta! Ramos var ekki rangstæður, heldur braut hann á Daniel Alves. Snertingin var þó ekki mikil.
Eyða Breyta
58. mín
Ramos skorar!! Það er þó dæmt af þar sem hann virtist vera rangstæður. Alonso tók aukaspyrnu sem rataði beint á kollinn á Ramos sem stýrði honum inn en aðstoðardómarinn var búinn að flagga.
Eyða Breyta
52. mín Ricardo Carvalho (Real Madrid) Lassana Diarra (Real Madrid)

Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
Eyða Breyta
45. mín
Hálfleikur! Það verður fróðlegt að sjá hvað Real Madrid gerir í síðari hálfleik.
Eyða Breyta
45. mín
ALVES MEÐ NEGLU!!! Hann fékk boltann fyrir utan teiginn og hamraði honum upp í Samúel!! Þetta er orðið ansi þungt fyrir Madrídinga, sem byrjuðu leikinn ágætlega en 4-1 er viðureignin samanlagt í augnablikinu.
Eyða Breyta
45. mín MARK! Daniel Alves (Barcelona)

Eyða Breyta
43. mín
Pedro skoraði fyrsta mark leiksins!! Lionel Messi átti frábæra stungusendingu inn á Pedro sem var ný kominn inná sem varamaður kláraði færið virkilega vel framhjá Casillas í markinu.
Eyða Breyta
43. mín MARK! Pedro (Barcelona)

Eyða Breyta
33. mín
Tæknin er eitthvað að stríða okkur, en allt er komið í lag í bili! Lítið að gerast þessa stundina.
Eyða Breyta
29. mín Pedro (Barcelona) Andres Iniesta (Barcelona)
Iniesta fer meiddur af velli!
Eyða Breyta
25. mín
Higuain með hörkuskot!!! Hann tók skotið fyrir utan teig og það hafnað í samskeytunum en því miður fyrir hann þá fór boltinn út aftur, en ekki í netið.
Eyða Breyta
20. mín
Ronaldo með skot yfir markið! Þetta var ágætis tilraun, en Pinto hefur litlar áhyggjur af þessu enda vel yfir.
Eyða Breyta
18. mín
Madrídingar búnir að vera ferskir til að byrja með í leiknum, en þeir voru það líka í fyrri leiknum. Vonandi fáum við bara mörk í þetta!
Eyða Breyta
11. mín
Pinto ver vel frá Ronaldo! Komust í skyndisókn, Ronaldo fékk boltann vinstra megin og skaut á markið en spænski markvörðurinn sá við honum.
Eyða Breyta
6. mín
Cristiano Ronaldo í fínu færi. Fékk boltann vinstra megin í teignum, en skot hans fór framhjá markinu.
Eyða Breyta
4. mín
Leikurinn byrjar heldur rólega. Xabi Alonso átti aukaspyrnu fyrir markið sem Higuain var nálægt að klára en boltinn fór framhjá. Mér sýnist þó aðstoðardómarinn hafa flaggað.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin í hús og portúgalski varnarmaðurinn Pepe byrjar inná, þetta verður eitthvað! Lið Barcelona er það sama, en nokkrar breytingar í liði Madrídinga.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin ættu að skila sér í hús innan skamms!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það verður áhugavert að sjá hvort portúgalski varnarmaðurinn Pepe verði með Madrídingum í kvöld, en hann traðkaði á Lionel Messi í fyrri leiknum. Það er því stóra spurningin hvort Jose Mourinho þjálfari liðsins tefli honum fram.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þetta er síðari viðureign liðanna í undanúrslitunum, en Barcelona vann fyrri leikinn á Santiago Bernabeu með tveimur mörkum gegn einu. Cristiano Ronaldo kom Madríd yfir í fyrri hálfleik en mörk frá Carles Puyol og Eric Abidal tryggði Börsungum sigurinn.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Velkomin kæru lesendur í beina textalýsingu af leik Barcelona og Real Madrid í síðari undanúrslitaleik spænska konungsbikarsins en hafst klukkan 21:00.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Iker Casillas (m)
3. Pepe
4. Sergio Ramos
5. Fabio Coentrao
7. Cristiano Ronaldo
8. Kaka ('61)
10. Mesut Özil
14. Xabi Alonso
17. Alvaro Arbeola
20. Gonzalo Higuain ('61)
24. Lassana Diarra ('52)

Varamenn:
13. Antonio Adan (m)
2. Raphael Varane
9. Karim Benzema ('61)
11. Ricardo Carvalho ('52)
12. Marcelo
18. Raul Albiol
21. Jose Callejon ('61)

Gul spjöld:
Pepe ('90)

Rauð spjöld:
Sergio Ramos ('89)