Egilshöll
föstudagur 27. janúar 2012
kl. 19:00
Reykjavíkurmótið - B riðill
Dómari: Magnús Þórisson
Þróttur 1 - 1 Fjölnir
1-0 Daði Bergsson ('10)
1-1 Haukur Lárusson ('57)
Myndir: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Ólafsson (m)
2. Kristján Einar Auðunsson ('74)
3. Hallur Hallsson
9. Arnþór Ari Atlason
13. Kristinn Steinar Kristinsson ('46)
17. Daði Bergsson
19. Karl Brynjar Björnsson ('81)
22. Guðfinnur Þórir Ómarsson ('70)
23. Valtýr Gíslason
24. Davíð Stefánsson ('46)
25. Daníel Benediktsson ('46)

Varamenn:
4. Dagur Hrafn Pálsson ('46)
5. Davíð Sigurðsson ('46)
10. Erlingur Jack Guðmundsson ('46)
13. Hermann Ágúst Björnsson ('70)
14. Ævar Hrafn Ingólfsson ('81)
18. Sveinn Andri Bjartmarsson ('74)

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

Alexander Freyr Einarsson
Fyrir leik
Góða kvöldið kæru lesendur og velkomin í beina textalýsingu frá leik Þróttar og Fjölnis í Reykjavíkurmótinu, en þessi viðureign hefst klukkan 19:00 í Egilshöllinni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Síðar í kvöld verður svo viðureign Vals og Fylkis sem einnig eru í þessum B-riðli. Báðir leikirnir í fyrstu umferð enduðu með jafntefli svo öll liðin fjögur hafa eitt stig!
Eyða Breyta
Elvar Geir Magnússon
1. mín
Leikurinn er hafinn og það eru Fjölnismenn sem byrja með boltann.
Eyða Breyta
2. mín
Liðin eru bæði með eitt stig í B-riðli eftir að hafa gert jafntefli í fyrstu umferð. Fjölnir gerði 2-2 jafntefli við Fylki og Þróttarar gerðu markalaust jafntefli við Val. Valur og Fylkir mætast hér í Egilshöllinni klukkan 21:00 og verður sá leikur einnig í beinni textalýsingu.
Eyða Breyta
5. mín
Þróttarar spila í kvöld án Sveinbjarnar Jónassonar, sem gekk til liðs við Fram í vikunni. Hann var með síðasta föstudag gegn Vals, en ljóst er að hans verður saknað Þróttara megin í Laugardalnum.
Eyða Breyta
10. mín MARK! Daði Bergsson (Þróttur)
MARK!! Þróttararnir virðast ekki sakna aðalframherjans síns mikið, það tók þá ekki nema korter að skora!! Þetta var að vísu hræðilega klaufalegt mark, Steinar Örn í markinu fékk boltann, þrumaði beint í Daða Bergsson sem náði svo boltanum og skoraði.Vel gert hjá Daða en einkar klaufalegt hjá Steinari.
Eyða Breyta
16. mín
Þarna varði Ögmundur MEISTARALEGA og það í tví- eða þrígang! Fyrirgjöf barst inn í teig Þróttara og var framherji Fjölnis í dauðafæri, en Ögmundur varði glæsilega frá honum, hann tók síðan tvö fráköst eins og ekkert væri!
Eyða Breyta
30. mín
Lítið búið að vera að gerast undanfarnar mínútur, Fjölnismenn hafa þó verið aðeins grimmari en án þess þó að skapa sér nein teljandi færi.
Eyða Breyta
38. mín
Fjölnismenn hafa verið mun beittari eftir að Þróttarar skoruðu en þeirra færi felast þó aðallega í skotum fyrir utan teig sem hitta annað hvort ekki á rammann eða fara beint á Ögmund í marki Þróttar.
Eyða Breyta
40. mín
Dauðafæri! Þróttarar vinna boltann við sinn eigin teig, boltinn berst á markaskorarann Daða Bergsson sem keyrir upp völlinn og kemur svo með laglega stungusendingu á Arnþór Ara Atlason. Arnþór er kominn einn gegn Steinari í markinu en lætur hins vegar verja frá sér og hættunni er bægt frá.
Eyða Breyta
44. mín
Guðmundur Karl Guðmundsson klúðrar besta færi Fjölnismanna í leiknum! Frábær fyrirgjöf berst frá hægri og Guðmundur er í frábæru færi inni í teignum til að klára, en skot hans lekur rétt framhjá markinu.
Eyða Breyta
45. mín
Flautað hefur verið til leikhlés, staðan 1-0 Þrótturum í vil.
Eyða Breyta
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný. Nú tekur við hálftími af skiptingum sem ég þarf að færa inn.
Eyða Breyta
46. mín Dagur Hrafn Pálsson (Þróttur) Kristinn Steinar Kristinsson (Þróttur)

Eyða Breyta
46. mín Erlingur Jack Guðmundsson (Þróttur) Davíð Stefánsson (Þróttur)

Eyða Breyta
46. mín Davíð Sigurðsson (Þróttur) Daníel Benediktsson (Þróttur)

Eyða Breyta
46. mín Haukur Lárusson (Fjölnir) Guðmundur Karl Guðmundsson (Fjölnir)

Eyða Breyta
46. mín Egill Gautur Steingrímsson (Fjölnir) Ottó Marinó Ingason (Fjölnir)

Eyða Breyta
46. mín Júlíus Orri Óskarsson (Fjölnir) Aron Sigurðarson (Fjölnir)

Eyða Breyta
50. mín
Jæja, þetta tók mig ekki nema rétt rúmar fjórar mínútur.
Eyða Breyta
51. mín
Fjölnismenn skora mark en það er dæmt af vegna rangstöðu.
Eyða Breyta
57. mín MARK! Haukur Lárusson (Fjölnir)
Fjölnismenn jafna metin! Haukur Lárusson skoraði með skalla í bláhornið eftir fyrirgjöf frá vinstri! Vel gert hjá varamanninum og verðskuldað fyrir Fjölni.
Eyða Breyta
64. mín
Fjölnismenn eru að pressa ansi stíft þessa stundina, áttu rétt í þessu skalla yfir markið. Þeir eru líklegri til að taka forystuna, ekki spurning.
Eyða Breyta
69. mín Jóhann Óli Þórbjörnsson (Fjölnir) Hallgrímur Andri Jóhannsson (Fjölnir)

Eyða Breyta
70. mín Hermann Ágúst Björnsson (Þróttur) Guðfinnur Þórir Ómarsson (Þróttur)

Eyða Breyta
73. mín
Bjarni Gunnarsson er með fínt skot að marki utan teigs en Ögmundur ver vel og heldur boltanum.
Eyða Breyta
74. mín
Ánægðiur með Júlíus Orra, hann reynir bakfallsspyrnu eins og ekkert væri sjálfsagðara. Hann skorar samt ekki,því miður.
Eyða Breyta
74. mín Sveinn Andri Bjartmarsson (Þróttur) Kristján Einar Auðunsson (Þróttur)

Eyða Breyta
81. mín Ævar Hrafn Ingólfsson (Þróttur) Karl Brynjar Björnsson (Þróttur)

Eyða Breyta
83. mín
Fjölnismenn eru gersamlega æfir yfir að hafa ekki fengið vítaspyrnu! Leikmaður þeirra var bersýnilega felldur inni í teignum en Magnús Þórisson flautaði ekki. Þarna hefðu Grafarvogsbúarnir getað tekið sigurinn!
Eyða Breyta
86. mín Hjörleifur Þórðarson (Fjölnir) Bjarni Gunnarsson (Fjölnir)

Eyða Breyta
90. mín
Venjulegur leiktími er liðinn. Nokkrar mínútur eftir.
Eyða Breyta
90. mín
Leiknum er lokið með 1-1 jafntefli, þriðja jafntefli riðilsins í jafn mörgum leikjum.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Steinar Ö. Gunnarsson (m)
3. Hallgrímur Andri Jóhannsson ('69)
6. Geir Kristinsson
9. Bjarni Gunnarsson ('86)
10. Aron Sigurðarson ('46)
20. Illugi Þór Gunnarsson
21. Kolbeinn Kristinsson
22. Bergsveinn Ólafsson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson ('46)

Varamenn:
7. Júlíus Orri Óskarsson ('46)
13. Jóhann Óli Þórbjörnsson ('69)
15. Haukur Lárusson ('46)
15. Egill Gautur Steingrímsson ('46)
19. Hjörleifur Þórðarson ('86)
30. Marteinn Örn Halldórsson (m)

Gul spjöld:

Rauð spjöld: