Egilshöll
föstudagur 27. janúar 2012
kl. 21:00
Reykjavíkurmótið - B riðill
Dómari: Örvar Sær Gíslason
Valur 2 - 3 Fylkir
1-0 Rúnar Már Sigurjónsson ('6)
1-1 Hinrik Atli Smárason ('11)
2-1 Rúnar Már Sigurjónsson ('42, víti)
2-2 Jóhann Þórhallsson ('63)
2-3 Rúrik Andri Þorfinnsson ('87)
Myndir: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
Byrjunarlið:
7. Haukur Páll Sigurðsson ('46)
8. Rúnar Már Sigurjónsson ('74)
9. Kolbeinn Kárason ('60)
17. Þórir Guðjónsson
23. Andri Fannar Stefánsson

Varamenn:
6. Hafsteinn Briem ('46)
11. Matthías Guðmundsson ('74)
19. Ásgeir Þór Ingólfsson ('46)
20. Indriði Áki Þorláksson ('74)
20. Andri Sigurðsson

Gul spjöld:
Haukur Páll Sigurðsson ('36)

Rauð spjöld:

Alexander Freyr Einarsson
Fyrir leik
Gott kvöld kæru lesendur og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Vals og Fylkis í Reykjavíkurmótinu. Hann hefst á slaginu 21:00 hér í Egilshöllinni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin hita hress og kát upp á vellinum, það er stutt í góða skapið hér í Egilshöll. Senn fara þó leikar að hefjast og menn fara að tölta inn í búningsklefana.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Athygli vekur að Úlfar Hrafn Pálsson er ekki í leikmannahópi Vals, en hann var í byrjunarliðinu í síðasta leik. Við spyrjumst fyrir um þetta eftir leik, ætli hann sé ekki bara meiddur eða með þessa flensu sem allir hafa nælt sér í.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn og það er lið Fylkis sem byrjar með boltann. Þeir leika í fallegum skærbláum búningum.
Eyða Breyta
6. mín MARK! Rúnar Már Sigurjónsson (Valur)
MARK! Valsararnir eru komnir yfir og markið er glæsilegt!! Rúnar Már Sigurjónsson tekur aukaspyrnu við hlið vítateigsins og smyr boltann í stöngina og inn. Frábært mark!
Eyða Breyta
11. mín MARK! Hinrik Atli Smárason (Fylkir)
Markaveisla hér í Egilshöllinni!! Hjörtur Hermannsson jafnar metin fyrir Fylki eftir hornspyrnu! Hann mætir inn í markteiginn og leggur boltann á milli fóta Ásgeirs Þórs Magnússonar í markiVals. 1-1!
Eyða Breyta
12. mín
Áðurnefndur Hjörtur hefur einmitt vakið áhuga frá PSV í Hollandi, og ef einhver útsendara þeirra er hér í Egilshöllinni er hann örugglega sáttur með það sem hann er að sjá frá miðverðinum unga.
Eyða Breyta
22. mín
Brynjar Kristmundsson reynir þrumuskot af löngu færi en það fer rétt yfir markið. Ágætis tilraun hjá Ólsaranum.
Eyða Breyta
33. mín Gult spjald: Árni Freyr Guðnason (Fylkir)
Allt að sjóða upp úr hér í Egilshöll. Árni Freyr fær að líta gula spjaldið fyrir að brjóta á Rúnari Má. Það verður þó ekkert úr aukaspyrnunni.
Eyða Breyta
36. mín Gult spjald: Haukur Páll Sigurðsson (Valur)
Haukur Páll fær að líta fyrsta gula spjald Valsara, eftir að boltinn fer úr leik. Sá ekki alveg fyrir hvað.
Eyða Breyta
41. mín
VÍTI! Trausti Björn Ríkharðsson braut á Hilmari Rafni Emilssyni inni í teignum og vítaspyrna dæmd. Á punktinn stígur Rúnar Már Sigurjónsson.
Eyða Breyta
42. mín Mark - víti Rúnar Már Sigurjónsson (Valur)
MARK! 2-1 fyrir Val! Rúnar Már skorar sitt annað mark í kvöld af feykilegu öryggi af vítapunktinum. Hann skaut í vinstra hornið, Bjarni Þórður valdi rétt horn, en skotið var óverjandi!
Eyða Breyta
45. mín
Örvar Sær dómari flautar til leikhlés, staðan 2-1 fyrir Völsurum. Rúnar Már Sigurjónsson með bæði mörk þeirra en Hjörtur Hermannsson skoraði hins vegar fyrir Fylki.
Eyða Breyta
46. mín
Leikurinn er hafinn á ný og byrja Valsarar með knöttinn. Það átti sér stað heldur sérkennilegt atvik í hálfleik, þar sem þeir rauðu settu bara upp keilur og byrjuðu í einhverjum upphitunaræfingum. Ekki oft sem maður sér byrjunarliðið gera slíkt í leikhléi.
Eyða Breyta
46. mín Emil Ásmundsson (Fylkir) Viðar Örn Kjartansson (Fylkir)

Eyða Breyta
46. mín Davíð Þór Ásbjörnsson (Fylkir) Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir)

Eyða Breyta
46. mín Ásgeir Eyþórsson (Fylkir) Kjartan Ágúst Breiðdal (Fylkir)

Eyða Breyta
46. mín Ásgeir Þór Ingólfsson (Valur) Haukur Páll Sigurðsson (Valur)

Eyða Breyta
46. mín Hafsteinn Briem (Valur) Arnar Sveinn Geirsson (Valur)

Eyða Breyta
47. mín
Dauðafæri hjá Val! Þarna hélt maður að þeir myndu bæta við þriðja markinu er Brynjar Kristmundsson kom með baneitraða fyrirgjöf sem rataði á kollinn á Kolbeini Kárasyni. Hann nýtti færið hins vegar ekki nógu vel og Bjarni Þórður varði frá honum. Átti að skora þarna!
Eyða Breyta
60. mín Hörður Sveinsson (Valur) Kolbeinn Kárason (Valur)

Eyða Breyta
Hafliði Breiðfjörð
63. mín
Kristján Valdimarsson er hársbreidd frá því að skora sjálfsmark en sem betur fer fyrir Fylki fer boltinn í horn.
Eyða Breyta
63. mín MARK! Jóhann Þórhallsson (Fylkir)
MARK!! Jóhann Þórhallsson jafnar metin fyrir Fylki!! Hann kemst einn í gegn og vippar boltanum laglega yfir Ásgeir og í netið! Freyr Alexandersson er brjálaður á hliðarlínunni og vill meina að Jóhann hafi verið brotlegur.
Eyða Breyta
66. mín
Hafsteinn Briem er hársbreidd frá því að skora þegar hann kemst í dauðafæri inni í teignum en skot hans fer naumlega framhjá markinu.
Eyða Breyta
73. mín
Þetta er hinn ágætasti leikur. Fylkismenn voru ekki langt frá því að skora en Valsarar björguðu naumlega í horn. Ætli þessi leikur verði sá fjórði af fjórum í B-riðli sem endar með jafntefli.
Eyða Breyta
74. mín Indriði Áki Þorláksson (Valur) Rúnar Már Sigurjónsson (Valur)

Eyða Breyta
74. mín Matthías Guðmundsson (Valur) Hilmar Rafn Emilsson (Valur)

Eyða Breyta
78. mín Jóhann Andri Kristjánsson (Fylkir) Árni Freyr Guðnason (Fylkir)

Eyða Breyta
79. mín Rúrik Andri Þorfinnsson (Fylkir) Ásgeir Örn Arnþórsson (Fylkir)

Eyða Breyta
82. mín
Rándýr rispa hjá Hafsteini Briem! Hann kemur af kantinum, leikur á nokkra varnarmenn og kemst í prýðilegt skotfæri en skot hans fer naumlega framhjá! Þetta hefði verið geðveikt mark ef boltinn hefði farið inn!
Eyða Breyta
87. mín MARK! Rúrik Andri Þorfinnsson (Fylkir)
DRAMATÍSKT MARK!! Varamaðurinn Rúrik Andri Þorfinnsson kemur Fylki yfir er hann potar fyrirgjöf Magnúsar Þóris Matthíassonar yfir línuna. Vel gert!
Eyða Breyta
90. mín
Leiknum er lokið með 3-2 sigri Fylkis.
Eyða Breyta
90. mín
Leiknum er lokið með 3-2 sigri Fylkis.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Bjarni Þórður Halldórsson (m)
2. Kristján Valdimarsson
3. Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('46)
8. Árni Freyr Guðnason ('78)
11. Kjartan Ágúst Breiðdal ('46)
17. Ásgeir Örn Arnþórsson ('79)
23. Viðar Örn Kjartansson ('46)
24. Elís Rafn Björnsson
30. Hinrik Atli Smárason

Varamenn:
5. Davíð Þór Ásbjörnsson ('46)
23. Rúrik Andri Þorfinnsson ('79)
29. Ásgeir Eyþórsson ('46)

Gul spjöld:
Árni Freyr Guðnason ('33)

Rauð spjöld: