Anfield Road
laugardagur 28. janúar 2012
kl. 12:45
Enski FA bikarinn
Dómari: Mark Halsey
Liverpool 1 - 1 Manchester United
1-0 Daniel Agger ('20)
1-1 Anders Lindegaard ('39)
Byrjunarlið:
25. Pepe Reina (m)
3. Jose Enrique
5. Daniel Agger
8. Steven Gerrard
9. Andy Carroll
11. Oussama Assaidi
14. Jordan Henderson
19. Stewart Downing
23. Jamie Carragher
34. Martin Kelly
37. Martin Skrtel

Varamenn:
2. Glen Johnson
16. Sebastian Coates
18. Dirk Kuyt
24. Joe Allen
26. Charlie Adam
32. Alexander Doni (m)
33. Jonjo Shelvey

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

Ívan Guðjón Baldursson
65. mín
De Gea er ekki öruggur í marki Manchester en hann missti boltann í horn, en ekkert varð úr horninu sem betur fer fyrir spænska markvörðinn.

Annars er búið að skipta Dirk Kuyt og Charlie Adam inná.
Eyða Breyta
57. mín
Heimamenn nálægt því að skora, boltinn barst inn í teig þar sem Chris Smalling datt um boltann og Andy Carroll náði að skjóta en skotið fór í varnarmann og það var hreinsað í hornspyrnu sem ekkert varð úr.
Eyða Breyta
56. mín
Chelsea er komið í 16-liða úrslit eftir sigur á QPR. Frétt um það fer að detta inn á síðuna.
Eyða Breyta
55. mín
Leikurinn búinn að róast töluvert niður og menn að hita upp á hliðarlínunni. Endursýningar sýna að Man Utd hefði hugsanlega átt að fá vítaspyrnu þegar boltinn fór í höndina á varnarmanni Liverpool áðan en ekkert var dæmt.

Rétt í þessu var De Gea að reyna að spila sig úr vandræðum og senti hann boltann beint á andstæðing en varnarmenn Man Utd björguðu málunum og hreinsuðu.
Eyða Breyta
52. mín
Valencia nánast kominn einn gegn marki en Daniel Agger með góða tæklingu til að bjarga málunum á síðustu stundu.
Eyða Breyta
50. mín
Fjör í leiknum, lið skiptast á að sækja en ekkert almennilegt færi að skapast. Mark liggur þó í loftinu.
Eyða Breyta
47. mín
Leik QPR og Chelsea fer að ljúka eftir nokkrar mínútur en Chelsea virðist vera að landa sigri.
Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn.
Eyða Breyta
45. mín
Opta Sports @OptaJoe
75 - Paul Scholes made 75 passes in the first half v Liverpool, completing 73 of them (97%). Master.

Þýðing:
75 - Paul Scholes átti 75 sendingar í fyrri hálfleik gegn Liverpool, 73 þeirra rötuðu á samherja (97%). Meistari.
Eyða Breyta
45. mín
Staðan 1-1 í skemmtilegum hálfleik á Anfield.
Eyða Breyta
45. mín
Nú skiptast liðin á því að sækja án þess að skapa neitt af viti. Stefnir á 1-1 í hálfleik og svakalegan síðari hálfleik.
Eyða Breyta
39. mín MARK! Anders Lindegaard (Manchester United)
Gestirnir eru búnir að jafna. Stórkostleg hælsending hjá Antonio Valencia rataði á Rafael da Silva sem kom á ótrúlegum spretti upp hægri kantinn og náði til boltans og gaf fyrir þar sem Park Ji-Sung var mættur og skoraði af miklu öryggi.
Eyða Breyta
37. mín
Mata búinn að koma Chelsea yfir gegn QPR úr vítaspyrnu. Frekar ódýr vítaspyrna þar sem Daniel Sturridge og Clint Hill voru í baráttu inn í teig sem endaði með því að Sturridge féll og fékk víti.
Eyða Breyta
33. mín
Mikil harka er í leiknum og nóg af brotum en ekkert spjald er enn komið á loft. Það hlýtur að fara að breytast bráðum.
Eyða Breyta
30. mín
Annars er það að frétta að Chelsea liggur í sókn gegn QPR í hinum leiknum sem er í gangi í enska bikarnum. Staðan þar er ennþá 0-0 og það er klukkutími búinn af leiktímanum, hálftími eftir.
Eyða Breyta
28. mín
Fréttir frá Englandi herma að De Gea hafi meitt sig eitthvað á síðunni og líklegt að hann fari útaf fyrir Lindegaard.
Eyða Breyta
24. mín
Allt að gerast á Anfield. Man Utd keyrir í sókn sem endar með að Paul Scholes hleður í skot sem fer að varnarmanni og heimamenn komast þá í skyndisókn þar sem Andy Carroll sýnir góða tækni til að koma góðri sókn af stað en boltinn endar yfir marki De Gea.

Anders Lindegaard er annars að hita upp á hliðarlínunni, spurning hvort það verði markmannsskipti í hálfleik, eða jafnvel fyrr, nema Ferguson sé að láta gera þetta til að senda De Gea skilaboð.
Eyða Breyta
21. mín
Stuart Downing átti góða rispu á hægri kantinum þar sem hann lék á fjóra leikmenn United áður en boltinn fór á Luis Enrique sem átti skot að marki sem var skallað í horn.

Gerrard tók þá hornspyrnuna og varnarmaðurinn Agger stökk hæst og skallaði boltann í netið.
Eyða Breyta
20. mín MARK! Daniel Agger (Liverpool)
Daniel Agger búinn að koma Liverpool yfir með skalla eftir hornspyrnu frá Steven Gerrard.
Eyða Breyta
17. mín
Antonio Valenia með frábært hlaup og skot rétt fyrir utan teig sem endar í stönginni! Fyrsta alvöru færi leiksins. Þvílík rispa hjá Valencia sem ætlar greinilega ekki að gefa neitt eftir í samkeppninni við Ashley Young og Luis Nani.
Eyða Breyta
17. mín
Evra tæklaður milli hornspyrnufánans og vítateigsins og fær aukaspyrnu fyrir. Varnarmenn Liverpool skalla aukaspyrnuna frá.
Eyða Breyta
15. mín
Lítið að gerast en Jaime Carragher brýtur á Ji-Sung Park á miðjunni og fær tiltal frá Mark Halsey dómara leiksins. Annað svona brot þýðir eflaust gult spjald fyrir Carragher.
Eyða Breyta
11. mín
Carroll með erfiðan skalla sem De Gea grípur mjög auðveldlega. Lítið að gerast, Liverpool með háa pressu.
Eyða Breyta
10. mín
Hreinn Gústavsson @hreinngu
Þessi útsending af Liv-Man er ekki fyrir flogaveika #blikk #fotbolti #skita #holdinghands
Eyða Breyta
8. mín
Fyrsta færi leiksins kemur þegar Maxi Rodriguez á langskot sem De Gea ver í horn. Ekkert varð svo úr hornspyrnunni hans Gerrard
Eyða Breyta
5. mín
Leikurinn er kominn af stað en ég sé lítið vegna sjónvarpstruflana, en ég er nokkuð viss um að enginn sé búinn að eiga neitt svakalegt færi.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Áhugavert að fyrstu tveir leikir dagsins eru milli sterkra úrvalsdeildarliða og að í báðum leikjunum eru stór kynþáttafordómamál sem hafa ratað í fjölmiðla.

Anton Ferdinand vs. John Terry
Patrice Evra vs. Luis Suarez

Þrír af þessum fjórum eru í byrjunarliðum sinna liða en Luis Suarez fær ekki að spila enda í leikbanni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Vill minna fólk á að nota hashtaggið #fotbolti á twitter ef það vill tjá sig um leikinn
Eyða Breyta
Fyrir leik
Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu Fótbolta.net á stórleik helgarinnar á Englandi!

Liverpool og Manchester United mætast í 32-liða úrslitum enska FA bikarsins og tefla bæði félög sterkum liðum fram í dag.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. David de Gea (m)
13. Anders Lindegaard (m)
2. Rafael
3. Patrice Evra
6. Jonny Evans
11. Ryan Giggs
12. Chris Smalling
16. Michael Carrick
19. Danny Welbeck
22. Paul Scholes
26. Shinji Kagawa

Varamenn:
5. Rio Ferdinand
9. Dimitar Berbatov
14. Javier Hernández
20. Fábio
34. Larnell Cole
38. Michael Keane
42. Paul Pogba

Gul spjöld:

Rauð spjöld: