Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
ÍBV
3
3
Valur
Sito '16 1-0
1-1 Patrick Pedersen '23
1-2 Sigurður Egill Lárusson '55
1-3 Kristinn Freyr Sigurðsson '60
Gunnar Heiðar Þorvaldsson '80 2-3
Ian David Jeffs '82 3-3
20.09.2015  -  16:00
Hásteinsvöllur
Pepsi-deild karla 2015
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 684
Byrjunarlið:
1. Abel Dhaira (m)
Ian David Jeffs
Gunnar Heiðar Þorvaldsson ('90)
4. Hafsteinn Briem
5. Jón Ingason (f)
5. Avni Pepa
9. Sito
11. Víðir Þorvarðarson ('75)
14. Jonathan Patrick Barden ('46)
17. Stefán Ragnar Guðlaugsson
19. Mario Brlecic

Varamenn:
2. Tom Even Skogsrud
6. Gunnar Þorsteinsson ('75)
7. Aron Bjarnason
17. Bjarni Gunnarsson ('46)
18. Ásgeir Elíasson
23. Benedikt Októ Bjarnason ('90)

Liðsstjórn:
Guðjón Orri Sigurjónsson

Gul spjöld:
Jonathan Patrick Barden ('18)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Magnaður leikur á enda runninn! Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
90. mín
Sido skýtur fyrir utan teig en boltinn endaði við spröngu!
90. mín
Eyjamenn fá horn...
90. mín
Inn:Benedikt Októ Bjarnason (ÍBV) Út:Gunnar Heiðar Þorvaldsson (ÍBV)
87. mín
Sido vinnur boltann frábærlega og sendir út í teiginn en Gunnar Heiðar var STEINSOFANDI og ekki mættur. Þarna gerði Sido vel en uppskar ekkert.
86. mín
Boltinn féll fyrir Gunnar Heiðar sem náði ekki að skora úr góðum séns!
82. mín MARK!
Ian David Jeffs (ÍBV)
Stoðsending: Bjarni Gunnarsson
FRÁBÆR SÓKN! Jeffs fær boltann inni í teig, leggur hann fyrir sig og þrumar í markið! Þetta er sannarlega orðið leikur!
82. mín
Sigurður Egill í góðu færi en skóflar honum yfir.
80. mín MARK!
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (ÍBV)
Stoðsending: Sito
Frábær sending frá Jeffsy á Sido sem skýtur og Kale ver fyrir fætur Gunnars sem skorar auðvelt mark! Fáum við dramatík í lokin?
77. mín
Inn:Tómas Óli Garðarsson (Valur) Út:Emil Atlason (Valur)
75. mín
Inn:Gunnar Þorsteinsson (ÍBV) Út:Víðir Þorvarðarson (ÍBV)
75. mín
Emil Atla með skalla framhjá eftir horn
72. mín
Emil með hættulegan skalla eftir horn en Eyjamenn bjarga.
71. mín
Emil Atla með góðan sprett og skýtur á nærstöngina en Abel ver í horn.
70. mín
Skondið atvið. Valsmenn með sókn og kemst Sigurður Egill í gott skotfæri en skýtur í Pedersen sem reyndi að stökkva frá boltanum.
68. mín
Darraðardans í teig heimamanna en ekkert kom út úr honum.
66. mín Gult spjald: Mathias Schlie (Valur)
Var búinn að biðja um spjald síðustu mínútur
60. mín MARK!
Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)
Gott spil hjá Valsmönnum og skorar Kristinn Freyr auðvelt mark.
59. mín
Bjarni Ólafur með skot eftir sendingu frá Pedersen.
55. mín MARK!
Sigurður Egill Lárusson (Valur)
Stoðsending: Bjarni Ólafur Eiríksson
Frábær fyrirgjöf og Sigurður Egill var ekki í vandræðum með að setja hann í netið af stuttu færi. Algjörlega í takt við byrjun seinni hálfleiks.
53. mín
Pedersen hleypur upp hægri kantinn, óáreittur, og gefur fyrir en ekkert varð úr. Abel leit illa út þarna og björguðu varnarmenn heimamanna.
51. mín
Pedersen í DAUÐA DAUÐAFÆRI!!! Fyrsta snerting hörmung og náði Abel til boltans. Þarna skall hurð nærri hælum ÍBV manna.
49. mín
Sido með skot framhjá
48. mín
684 mættir sem er gott miðað við veður en slakt miðað við að frítt er á völlinn.
47. mín
Kristinn Freyr í góðum séns en Abel ver. Gestirnir mæta tilbúnari hér í síðari hálfleik.
46. mín
Kristinn Freyr var kominn í teiginn en Jeffsy át hann.
46. mín
Inn:Bjarni Gunnarsson (ÍBV) Út:Jonathan Patrick Barden (ÍBV)
Skipting hjá Eyjamönnum fyrir flautið. Barden var orðinn tæpur á seinna gula.
46. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. Rigningin kemur í gusum hér í dag og blæs hressilega.
45. mín
Njáll Eiðsson, fyrrum þjálfari ÍBV og Vals, segir: Ég spái leiknum 2-2 og sömu menn eiga eftir að bæta við.
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur á Hásteinsvelli. Staðan 1-1.
Hafliði Breiðfjörð
44. mín
Sido með frábært skot en Kale ver í horn sem var síðan ekki dæmt, heldur útspark.
Hafliði Breiðfjörð
44. mín Gult spjald: Gunnar Gunnarsson (Valur)
Hafliði Breiðfjörð
42. mín
Pedersem með lúmskt skot en Abel varði vel.
36. mín
Schile með þrumuskot sem Abel varði vel! Haukur Páll átti síðan skot sem einkenndist af bjartsýni.
34. mín
Jeffs með skemmtilegt skot úr auka langt utan af velli en boltinn yfir.
33. mín Gult spjald: Emil Atlason (Valur)
Rekur höndina í smettið á Jeffs. Óviljaverk en s.s. réttmætt spjald.
31. mín
Gunnar Gunnarsson hefði átt að skora þarna! Hornspyrna og allt í ruglinu hjá ÍBV.
27. mín
Briem með skalla eftir fast leikatriði en náði hvorki á mark né samherja.
25. mín
Pedersen fær frábæra sendingu frá Bjarna Ólafi en skýtur framhjá markinu.
23. mín MARK!
Patrick Pedersen (Valur)
Frábært mark hjá Pedersen.
19. mín
Baldvin Sturluson með flotta fyrirgjöf en allir sofandi og fór boltinn út af við hornfána.
18. mín Gult spjald: Jonathan Patrick Barden (ÍBV)
Frekar gróf tækling og verðskuldað spjald
16. mín MARK!
Sito (ÍBV)
Stoðsending: Hafsteinn Briem
Aukaspyrna kemur inn í teiginn og Hafsteinn Briem skallaði á Sido sem þurfti aðeins að hafa fyrir þessu áður en hann þrumaði í markið! Akkúrat það sem leikurinn þurfti!
15. mín
Barden með skrautlega tæklingu og heppinn að fá ekki gult.
14. mín
Frekar slök spyrna beint á Abel.
13. mín
Valur fær auka á stórhættulegum stað.
11. mín
Kristinn Freyr í DAUÐAFÆRI!!!! Flott sókn Vals og var Emil í dauðafæri en renndi boltanum á Kristinn Frey sem skaut framhjá.
9. mín
Sigurður Egill klippir Stefán Ragnar niður á vallarhelmingi ÍBV. Svo sem ekki gróft en stúkan tók aðeins við sér.
8. mín
Bæði lið kýla og er völlurinn mjög blautur.
4. mín
Víðir hleypur upp kantinn og fer fyrirgjöf hann í slána. Hann hefði átt að gefa fyrr þar sem Sido var í góðum séns.
2. mín
Jeffsy með hornið en engin var hættan.
1. mín
ÍBV fá horn
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað gott fólk!!!
Fyrir leik
Veðurskilyrði eru erfið hér í dag. Vindur og greeeenjandi rigning. Völlurinn lítur þó vel út.
Fyrir leik
Dóru Björk Gústafsdóttur er vottuð virðing með einnar mínútu þögn fyrir leik.
Fyrir leik
Þar sem hjartað slær búið að óma og allt að gerast.
Fyrir leik
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta:
Valsmönnum langar í 2. sætið og ÍBV ætla ekki að falla. Held aftur á móti að Valur eigi eftir að sigla inn þægilegum sigri. Það verður jafnt 1-1 í hálfleik en Valsmenn eiga eftir að bæta tveimur við í seinni hálfleik. Sigurður Egill með þrennu.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Guðmundur Steinarsson, sérfræðingur Fótbolta.net:
Ef KR-ingar misstíga sig geta Valsmenn sett KR-inga einu sæti neðar. Það færi illa í KR-inga ef það myndi gerast. Ólafur Jóhannesson hefur náð að finna stöðugleikann og á hrós skilið fyrir það. Ef Valsmenn mæta jafn værukærir og þeir gerðu í fyrri hálfleik gegn Keflavík í fyrri hálfleik gætu Eyjamenn gengið á lagið eins og þeir hafa áður gert.
Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Góðan og gleðilegan dag. Hér verður bein textalýsing frá leik ÍBV og Vals í 20. umferð Pepsi-deildarinnar.

Valur er í fjórða sæti deildarinnar með 32 stig en ÍBV er í því tíunda með átján stig. Eyjamenn eru í harðri fallbaráttu en fá væntanlega fínan stuðning í dag því nokkur fyrirtæki í Vestmannaeyjum hafa stuðlað að því að frítt er á völlinn.

Klukkutíma fyrir leik verða byrjunarliðin opinberuð. Hollendingurinn Mees Siers tekur út leikbann og verður ekki með ÍBV í dag.
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið:
1. Ingvar Þór Kale (m)
Haukur Páll Sigurðsson
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
14. Gunnar Gunnarsson
19. Baldvin Sturluson
19. Emil Atlason ('77)
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson
22. Mathias Schlie

Varamenn:
33. Anton Ari Einarsson (m)
3. Iain James Williamson
4. Einar Karl Ingvarsson
8. Kristinn Ingi Halldórsson
14. Haukur Ásberg Hilmarsson
16. Tómas Óli Garðarsson ('77)
23. Andri Fannar Stefánsson

Liðsstjórn:

Gul spjöld:
Emil Atlason ('33)
Gunnar Gunnarsson ('44)
Mathias Schlie ('66)

Rauð spjöld: