Egilshöll
mánudagur 13. febrúar 2012
kl. 19:30
Reykjavíkurmót - úrslitaleikur
Dómari: Guðmundur Ársæll Guðmundsson
Maður leiksins: Steven Lennon
Fram 5 - 0 KR
1-0 Steven Lennon ('3)
2-0 Steven Lennon ('4)
3-0 Steven Lennon ('38)
4-0 Steven Lennon ('54)
5-0 Steven Lennon ('80, víti)
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Alan Lowing
5. Kristinn Ingi Halldórsson
6. Halldór Hermann Jónsson ('65)
8. Jón Gunnar Eysteinsson
10. Steven Lennon ('83)
11. Almarr Ormarsson
15. Samuel Hewson ('90)
17. Hólmbert Aron Friðjónsson ('39)

Varamenn:
30. Denis Cardaklija (m)
25. Jökull Steinn Ólafsson
27. Davíð Sigurðsson ('90)

Gul spjöld:
Kristinn Ingi Halldórsson ('35)

Rauð spjöld:

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá úrslitaleik Reykjavíkurmótsins. Fasteignasalinn Guðmundur Ársæll Guðmundsson flautar leikinn á klukkan 19:30 en það eru Fram og KR sem eigast við.

Fram vann Þrótt eftir vítaspyrnukeppni í undanúrslitunum en KR vann 1-0 sigur á Fylki.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Allir Bretarnir eru á sínum stað í byrjunarliði Fram en Hólmbert Aron Friðjónsson kemur inn í liðið eftir að hafa verið á bekknum í síðasta leik. Þá er Halldór Hermann Jónsson kominn í liðið eftir að hafa jafnað sig á meiðslum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
KR-ingar hafa unnið Reykjavíkurmeistaratitilinn oftast allra liða, 37 sinnum. Þetta er fjórða árið í röð sem liðið leikur til úrslita. Samkvæmt Óskari Ófeigi Jónssyni á vísir.is hafa KR og Fram ekki mæst í úrslitaleik mótsins í 15 ár.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Skúli Jón Friðgeirsson er fyrirliði KR í kvöld þar sem hvorki Bjarni Guðjónsson né Grétar Sigfinnur Sigurðarson eru með. Grétar er að skokka ásamt Þorsteini Má Ragnarssyni sem kom frá Víkingi Ólafsvík í vetur en er ekki kominn með leikheimild.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Guðni Þ. Guðjónsson:
Ég set Dofra á sigurmark í kvöld
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrst fólk er að kasta inn spám fyrir leikinn þá ætla ég ekki að vera eftirbátur. Spái 2-1 sigri fram þar sem Steven Lennon skorar sigurmarkið. Einhver sem ætlar að veðja á móti því?
Eyða Breyta
Fyrir leik
''Okkur vantar boltana ennþá'' segir Guðmundur Ársæll dómari við starfsmann KRR. Það er verið að gera allt klárt í Egilshöllinni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Runólfur Þórhallsson:
2-0 sigur KR á Fram verður staðreynd núna eftir 2 tíma! KR tapar ekki 2x f. sama liðinu á svona stuttum tíma!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin ættu að vera á þessa leið:

Ögmundur
Almarr - Kristján - Lowing - Tillen
Halldór - Hewson - Jón Gunnar
Kristinn - Ingi
Lennon

Hannes
Hróar - Skúli - Gunnar - Magnús
Baldur - Atli - Egill
Dofri - Óskar
Kjartan
Eyða Breyta
Fyrir leik
Heiðursgestir leiksins heilsa leikmönnum. Tveir fræknir kappar sem gerðu garðinn frægan með þessum félögum. Um er að ræða KR-inginn Gunnar Guðmannsson og Framarann Sigurð J. Svavarsson. Þeir munu afhenda verðlaun að leik loknum.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn. Það voru KR-ingar sem byrjuðu með boltann.
Eyða Breyta
3. mín MARK! Steven Lennon (Fram)
Þetta tók ekki langan tíma! Framarar hafa tekið forystuna. Egill Jónsson, miðjumaður KR, tapaði boltanum og Egill fékk hann við enda vítateigsins og náði föstu skot sem fór með jörðinni og í bláhornið. Frábær byrjun.
Eyða Breyta
4. mín MARK! Steven Lennon (Fram)
Já hvað er gangi!!! Lennon skorar aftur. Að þessu sinni eftir herfileg mistök Gunnars Þórs Gunnarssonar, fyrrum leikmanns Fram. Lennon hirðir af honum boltann, kemst einn gegn Hannesi og skorar. Ótrúleg byrjun.
Eyða Breyta
8. mín
Lennon gæti verið kominn með þrennu! Fékk hörkufínt færi en skotið að þessu sinni beint á Hannes í marki KR.
Eyða Breyta
11. mín
Lennon hefur verið baneitraður á þessu Reykjavíkurmóti og nýtir sér það hér að KR-ingar eru varla mættir til leiks. Er enn að jafna mig á þessari byrjun.
Eyða Breyta
13. mín
Guðmundur Sigurðsson eftirlitsmaður lætur fara vel um sig í stúkunni með kók og Nóa-Kropp. Hann er gáttaður á byrjuninni á þessum leik.
Eyða Breyta
14. mín
Aron I. Kristinsson:
Gunnar Þór með allt lóðrétt niðrum sig.. 2-0 fyrir Fram #fotbolti #tvífarigunnarsarnar
Eyða Breyta
17. mín
Íslandsmeisturunum gengur erfiðlega að vinna sig inn í leikinn. Framarar eru talsvert betri.
Eyða Breyta
19. mín
Baldur Sigurðsson í fyrsta alvöru færi KR. Fékk mjög góða sendingu frá Magnúsi Má Lúðvíkssyni en náði ekki almennilegri snertingu svo Ögmundur í marki Fram klófesti boltann af öryggi.
Eyða Breyta
29. mín
Hewson með fína skottilraun en boltinn framhjá. Jafnræði með liðunum núna en þetta er ansi opið og ég spái því að við fáum allavega eitt mark í viðbót fyrir hlé.
Eyða Breyta
33. mín Gult spjald: Egill Jónsson (KR)
Hárréttur dómur. Gróf tækling hjá Agli. Einhverjir Framarar vildu rautt en þessi dómur var réttur.
Eyða Breyta
35. mín Gult spjald: Kristinn Ingi Halldórsson (Fram)
Komin aðeins meiri harka í leikinn.
Eyða Breyta
36. mín
Sigþór Snorrason, leikmaður BÍ/Bolungarvíkur:
Egill á miðjunni hjá KR er ekki í KR standard! #PickUpUrGame Held samt með FRAM
Eyða Breyta
38. mín MARK! Steven Lennon (Fram)
Gunnar Þór í vörninni hjá KR lítur hræðilega út! Lennon fór framhjá honum eins og að drekka vatn og kláraði svo færið vel! Hann er kominn með þrennuna í fyrri hálfleik. Hver bjóst við þessu?
Eyða Breyta
39. mín Sveinbjörn Jónasson (Fram) Hólmbert Aron Friðjónsson (Fram)
Hólmbert bað um skiptingu, eitthvað meiddur.
Eyða Breyta
44. mín
Leiðtogaleysi að hrjá KR? Steven Lennon lítur út eins og svindlkall í þessum leik, verið ótrúlega flottur.
Eyða Breyta
45. mín
Hálfleikur - Fram leikið á als oddi í fyrri hálfleik. Langt síðan ég hef séð KR-liðið svona slappt. Ansi margir leikmenn að spila hreint hræðilega.
Eyða Breyta
46. mín Haukur Heiðar Hauksson (KR) Egill Jónsson (KR)
Hef aldrei séð Egil spila eins illa. Er greinilega ekki kominn í sitt besta stand.
Eyða Breyta
51. mín
Framarar halda bara áfram að vera betri. Kristinn Ingi átti fína rispu áðan. Virðist líklegra að Fram bæti við en KR minnki muninn.
Eyða Breyta
54. mín MARK! Steven Lennon (Fram)
Ég á ekki aukatekið orð!! Lennon með fernuna! Frábærlega gert hjá honum. Hefur verið hreint magnaður í þessum leik og kláraði þetta frábærlega, gott einstaklingsframtak. Fór enn og aftur illa með vörn KR og kláraði vel.
Eyða Breyta
58. mín
Haukur Heiðar Hauksson með fína skottilraun en hitti ekki markið. Ein skásta tilraun KR í leiknum.
Eyða Breyta
58. mín
Haukur Heiðar Hauksson með fína skottilraun en hitti ekki markið. Ein skásta tilraun KR í leiknum.
Eyða Breyta
61. mín
Hjörtur Hjartarson, leikmaður Víkings:
Þvílíkt mark hjá Lennon! #20plusmorkísumar?
Eyða Breyta
62. mín
Jón Heiðar Sveinsson:
Hættulegasta tilraun KR endaði með skoti í innkast
Eyða Breyta
63. mín
Damir Muminovic, leikmaður Leiknis:
Lennon er besti leikmaður á íslandi í dag held að það fari ekki framhjá neinum. #alltofgodur #theking
Eyða Breyta
65. mín Jón Orri Ólafsson (Fram) Halldór Hermann Jónsson (Fram)
Síðasta verk Halldórs var að skjóta framhjá úr DAUÐAFÆRI! Átti að koma Fram í 5-0. Virðist bara vera Lennon sem getur skorað í kvöld.
Eyða Breyta
66. mín Torfi Karl Ólafsson (KR) Baldur Sigurðsson (KR)

Eyða Breyta
66. mín Óli Pétur Friðþjófsson (KR) Kjartan Henry Finnbogason (KR)

Eyða Breyta
74. mín
KR-ingar sótt nokkuð stíft síðustu mínútur. Veit ekki hvort það sé vegna þess að Fram hafi slakað á klónni eða meira líf sé komið í vesturbæjarliðið.
Eyða Breyta
78. mín Stefán Birgir Jóhannesson (Fram) Sam Tillen (Fram)

Eyða Breyta
80. mín
Fram fær vítaspyrnu! Lennon enn og aftur að ógna með hraða sínum, óð inn í teiginn og Hannes markvörður kom út á móti og braut af sér.
Eyða Breyta
80. mín Mark - víti Steven Lennon (Fram)
Hann er kominn með fimmu! Ég er orðlaus. Þvílík slátrun.
Eyða Breyta
82. mín
Fannar Freyr Gíslason:
steven Lennon að skeina KR (staðfest)
Eyða Breyta
83. mín Gunnar Oddgeir Birgisson (Fram) Steven Lennon (Fram)
Hann hefði sett sjötta markið hefði hann fengið að klára leikinn! Er pottþéttur á því.
Eyða Breyta
86. mín Magnús Otti Benediktsson (KR) Dofri Snorrason (KR)

Eyða Breyta
90. mín Davíð Sigurðsson (Fram) Samuel Hewson (Fram)

Eyða Breyta
93. mín
LEIK LOKIÐ - Framarar Reykjavíkurmeistarar og það með stæl. Ekki erfitt að velja mann leiksins, megið giska á hver það er...
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
5. Egill Jónsson ('46)
6. Gunnar Þór Gunnarsson
8. Baldur Sigurðsson ('66)
10. Kjartan Henry Finnbogason ('66)
11. Óskar Örn Hauksson
23. Atli Sigurjónsson

Varamenn:
3. Haukur Heiðar Hauksson ('46)

Gul spjöld:
Egill Jónsson ('33)

Rauð spjöld: