Anfield Road
laugardagur 03. mars 2012
kl. 12:00
Enska úrvalsdeildin
Dómari: Mark Halsey
Liverpool 1 - 2 Arsenal
1-0 Jordan Henderson ('23)
1-1 Robin van Persie ('31)
1-2 Robin van Persie ('92)
Byrjunarlið:
25. Pepe Reina (m)
3. Jose Enrique
7. Luis Suarez
14. Jordan Henderson
18. Dirk Kuyt
19. Stewart Downing ('88)
20. Jay Spearing ('93)
23. Jamie Carragher
26. Charlie Adam
34. Martin Kelly
37. Martin Skrtel

Varamenn:
9. Andy Carroll ('93)
11. Oussama Assaidi
16. Sebastian Coates
24. Joe Allen ('88)
32. Alexander Doni (m)
33. Jonjo Shelvey
38. Jon Flanagan

Gul spjöld:

Rauð spjöld:

Ívan Guðjón Baldursson
98. mín Leik lokið!
Leiknum er lokið. Arsenal með óverðskuldaðan sigur á Anfield þar sem Robin van Persie sýndi ótrúleg gæði og skoraði úr sínum færum. Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir Arsenal en svekkjandi tap fyrir Liverpool sem þráir fátt heitar en að spila í Meistaradeild Evrópu á ný.
Eyða Breyta
97. mín
Chamberlain nálægt því að gulltryggja sigur Arsenal. Heimamenn eiga samt ennþá vonarneista en gætu verið að tapa sínum fyrsta heimaleik síðan í maí 2011.
Eyða Breyta
96. mín
Ómar Örn Ólafsson @omardiego
2 færi 2 mörk, það er RvP fyrir ykkur! #fotbolti
Eyða Breyta
93. mín Andy Carroll (Liverpool) Jay Spearing (Liverpool)
Getur Carroll breytt gangi mála?
Eyða Breyta
92. mín MARK! Robin van Persie (Arsenal)
Robin van Persie að koma Arsenal yfir þegar sex mínútur eru eftir af uppbótartíma! Algjörlega óverðskuldað en núna hljóta heimamenn að keyra á gestina restina af leiknum. Ótrúlega vel gert hjá Persie, og frábær sending sem hann fékk!
Eyða Breyta
92. mín
Átta mínútum bætt við!
Eyða Breyta
88. mín Joe Allen (Liverpool) Stewart Downing (Liverpool)

Eyða Breyta
87. mín
Arsenal að drepa leikinn vel niður og nú er stutt eftir. Örugglega bætt mikið við vegna meiðsla. Bellamy er svo á leið inná.
Eyða Breyta
80. mín Alex Oxlade-Chamberlain (Arsenal) Abou Diaby (Arsenal)
Abou Diaby kominn útaf eftir að hafa verið inná í tæpan hálftíma.
Eyða Breyta
80. mín
Smá tæknilegir örðugleikar hérna megin en Liverpool menn eru að banka á dyrnar hjá Arsenal sem eru nánast í nauðvörn og reyna að beita skyndisóknum.
Eyða Breyta
74. mín Gervinho (Arsenal) Yossi Benayoun (Arsenal)
Þessi skipting búin að liggja lengi í loftinu. Benayoun varla búinn að sjást í leiknum.
Eyða Breyta
72. mín
Arsenal menn nálægt því að skora núna gegnum Gibbs og Walcott en Reina varði vel.
Eyða Breyta
71. mín
Mikel Arteta er búinn að ranka við sérog er á leið á spítala en það er staðfest að það er allt í lagi með hann. Hann fékk heilahristing og er enn að anda gegnum súrefnisgrímu.
Eyða Breyta
70. mín
Martin Kelly einn fyrir framan opið mark og hittir boltann illa og skýtr honum framhjá. Ótrúleg heppni sem fylgir Arsenal-liðinu í þessum leik.
Eyða Breyta
66. mín
Mikill hraði í leiknum en liðin skiptast á að sækja. Bæði frekar hættuleg þó að heimamenn séu hættulegri.
Eyða Breyta
63. mín Gult spjald: Thomas Vermaelen (Arsenal)
Fyrsta spjald leiksins kemur eftir tæklingu Vermaelen á Luis Suarez. Lítil snerting en Suarez þykist vera meiddur og hegðar sér frekar vandræðalega.
Eyða Breyta
61. mín
Hætta á ferðum, Liverpool í sókn sem endar með góðri markvörslu frá Szczesny. Van Persie hreinsar í innkast og Vermaelen liggur eftir.
Eyða Breyta
59. mín
Davíð Hallgrímsson @DavHallgrmssn
að gefa víti gegn Liverpool fer að teljast sem góð vörn #skoraekkiúrvíti #fotbolti
Eyða Breyta
58. mín
Frekar jafnt milli liða hérna í síðari hálfleik, allavega stjórna heimamenn ekki ferðinni líkt og í fyrri hálfleik.
Eyða Breyta
55. mín
Arteta var bara steinrotaður þegar hann var borinn af velli. Svakalegt. Sá ekki vel en sýndist hann lenda í olnboganum á Henderson (óvart).
Eyða Breyta
53. mín Abou Diaby (Arsenal) Mikel Arteta (Arsenal)
Arteta borinn útaf með súrefnisgrímu á sér og Diaby skipt inná.
Eyða Breyta
50. mín
Mikel Arteta liggur á jörðinni og þjáist, honum verður líklega skipt útaf.
Eyða Breyta
47. mín
Suarez strax kominn í færi en skot hans í hliðarnetið.
Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
Eyða Breyta
45. mín
Elvar Geir Magnússon ritstjóri Fótbolta.net @elvargeir
Djöfull væri ég pirraður ef Liverpool væri mitt lið... eiga að vera þremur mörkum yfir í þessum leik
Eyða Breyta
45. mín
Staðan 1-1 í hálfleik þar sem Arsenal hefur aðeins fengið tvö færi á meðan Liverpool hefur fengið kringum tíu. Gestirnir gríðarlega heppnir en nóg af púðri er til á bekknum hjá þeim. Liverpool að spila glimrandi góðan fótbolta þrátt fyrir að vera ekki með mjög sterkt byrjunarlið á blaði.
Eyða Breyta
45. mín
Arsenal reiðir sig nú á ekkert nema heppni en boltinn endar í stöng eftir að hafa farið í gegnum þvögu í vítateig Arsenal. Kuyt næstum búinn að skora þá.
Eyða Breyta
45. mín
Tveimur mínútum bætt við fyrri hálfleik. Staðan er 1-1 og verður það líklega þegar Mark Halsey flautar. Hann hefur verið fínn á flautunni þó að hann hafi gefið heimamönnum ódýrt víti sem þeir klúðruðu þó.
Eyða Breyta
40. mín
Páll Óli Ólason @plolii
van Persie væri kominn með 40+ mörk á tímabilinu í Liverpool-treyju #stöngininn #alltinn #vítiekkertmál #fotbolti
Eyða Breyta
40. mín
Suarez lék á nánast alla vörn Arsenal og átti gott skot sem Szczesny varði virkilega vel. Suarez og Szczesny bestu menn sinna liða í dag.
Eyða Breyta
39. mín
Ekkert að gerast, heimamenn sterkari en ekki að skapa sér færi
Eyða Breyta
33. mín
Liverpool er betra liðið á vellinum þessa stundina og hefur verið það í raun í allan hálfleik. Heimamenn ættu að vera nokkrum mörkum yfir og þeir virðast ekki ætla að hætta að pressa lið Arsenal gríðarlega hátt upp á völlinn.
Eyða Breyta
31. mín MARK! Robin van Persie (Arsenal)
Robin van Persie búinn að jafna leikinn! Bacary Sagna með frábæra fyrirgjöf og van Persie með frábæran skalla. Vörn Liverpool hálfsofandi, Jamie Carragher sekur um stór mistök í þessu marki.
Eyða Breyta
25. mín
Arsenal er í tómu tjóni og heimamenn Liverpool eru vaðandi í færum. Luis Suarez á skot í stöng og stuttu síðar klúðrar Jordan Henderson góðu færi.
Eyða Breyta
23. mín MARK! Jordan Henderson (Liverpool)
Sjálfsmark frá Koscielny. Henderson átti góða fyrirgjöf sem Koscielny potaði óvart í eigið net. Góð sókn hjá Liverpool en vandræðalegt fyrir Koscielny.
Eyða Breyta
20. mín
Suarez fékk vítið eftir að hafa lent í samstuði við Szczesny, en endursýningar sýna að þetta hefði ekki þurft að vera víti.
Eyða Breyta
19. mín
Szczesny með ótrúlega markvörslu!! Hann ver vítið og frákastið sem virtist vera öruggt mark hjá Dirk Kuyt. ÓTRÚLEGT!
Eyða Breyta
18. mín
Það er víti!!
Eyða Breyta
16. mín
Liverpool er með háa og góða pressu og er hún oft nálægt því að skila inn marki, en nú var það Bacary Sagna sem bjargaði á síðustu stundu frá Stewart Downing.
Eyða Breyta
14. mín
Suarez og Henderson voru tveir gegn tveimur en Henderson tapaði boltanum.
Eyða Breyta
12. mín
Suarez er að skapa vandræði fyrir varnarmenn Arsenal og gerir vel að vinna hornspyrnu.
Eyða Breyta
10. mín
Szczesny gerir mjög vel í að skalla boltann úr vörninni fyrir utan teig í tvígang þegar Suarez virtist vera sloppinn í gegn. Svo kemur skot frá Downing sem endar yfir.
Eyða Breyta
8. mín
Fyrsta færi leiksins er gott skot frá Theo Walcott úr þröngu og erfiðu færi en Reina með góða markvörslu.
Eyða Breyta
3. mín
Lífleg byrjun á leiknum, tvær hornspyrnur og mikil stemning á vellinum.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn og er Liverpool strax komið með hornspyrnu
Eyða Breyta
Fyrir leik
Infostrada Sports @infostradalive
#LFC have a better #EPL record without Steven Gerrard this season, winning 50% of their matches compared to 25% with him in the side #PL
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ómar Ingi @omaringigud
Spearing,Adam og Henderson. New Barcelona in the making!!! #hvaðadjók #skortirekkertgæðinneitt #fotbolti
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hér verður bein textalýsing af leik Liverpool og Arsenal á Anfield Road. Gríðarlega mikilvægur leikur. Vill minna á hashtaggið #fotbolti ef fólk ætlar að tala um leikinn á Twitter, vel valdar færslur komast í þessa textalýsingu.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Wojciech Szczesny (m)
3. Bacary Sagna
5. Thomas Vermaelen
6. Laurent Koscielny
7. Tomas Rosicky
8. Mikel Arteta ('53)
10. Robin van Persie
14. Theo Walcott
17. Alex Song
28. Kieran Gibbs
30. Yossi Benayoun ('74)

Varamenn:
2. Abou Diaby ('53) ('80)
15. Alex Oxlade-Chamberlain ('80)
21. Lukasz Fabianski (m)
25. Carl Jenkinson
27. Gervinho ('74)
29. Marouane Chamakh
49. Ignasi Miquel

Gul spjöld:
Thomas Vermaelen ('63)

Rauð spjöld: