Egilshöll
fimmtudagur 22. mars 2012
kl. 19:00
Lengjubikarinn - riðill 3
Dómari: Leiknir Ágústsson
Fylkir 2 - 3 FH
1-0 Björn Daníel Sverrisson ('14, sjálfsmark)
2-0 Tómas Joð Þorsteinsson ('37)
2-1 Björn Daníel Sverrisson ('69)
2-2 Björn Daníel Sverrisson ('74, víti)
2-3 Ólafur Páll Snorrason ('84)
Myndir: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir
Byrjunarlið:
1. Bjarni Þórður Halldórsson (m)
2. Kristján Valdimarsson
3. Ásgeir Börkur Ásgeirsson
5. Davíð Þór Ásbjörnsson
7. Ingimundur Níels Óskarsson
11. Kjartan Ágúst Breiðdal
14. Magnús Þórir Matthíasson ('89)
16. Tómas Joð Þorsteinsson
23. Viðar Örn Kjartansson ('80)
23. Rúrik Andri Þorfinnsson ('83)
29. Ásgeir Eyþórsson

Varamenn:
31. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
17. Ásgeir Örn Arnþórsson
24. Elís Rafn Björnsson
32. Hákon Ingi Jónsson ('89)

Gul spjöld:
Ásgeir Börkur Ásgeirsson ('93)

Rauð spjöld:

Elvar Geir Magnússon
Fyrir leik
Komið þið sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Fylkis og FH í Lengjubikarnum.

Ég held að óhætt sé að segja það að Fylkisliðið hafi leikið undir væntingum í vetur en liðið tapaði 4-1 fyrir Grindavík í síðasta leik. FH-ingar unnu 3-1 sigur á Leikni í Egilshöllinni í síðustu viku.

Leikurinn í kvöld er einmitt í Egilshöllinni.

1. Valur, 5 leikir - 13 stig
2. FH, 5 - 11
3. Þór, 6 - 10
4. Grindavík, 5 - 5
5. Fylkir, 4 - 4
6. Fjölnir, 6 - 4
7. Höttur, 4 - 3
8. Leiknir, 3 - 2
Eyða Breyta
Fyrir leik
Skoða má byrjunarliðin hér í hliðunum.

Í liði Fylkis eru Björgólfur Takefusa, Finnur Ólafsson, Árni Freyr Guðnason, Hjörtur Hermannsson og Þórir Hannesson allir fjarri góðu gamni.

Hjá FH vantar Alen Sutej, Bjarka Gunnlaugsson og Atla Viðar Björnsson.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Bæði lið eru að hita upp hér í Grafarvoginum. Ég giska á að leikmenn KR og Hauka öfundi þessi tvö lið en sá leikur verður utandyra á KR-velli, í roki og rigningu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Björn Daníel Sverrisson er áfram í vinstri bakverðinum svo Viktor Örn Guðmundsson þarf að sætta sig við hlutverk varamanns eins og svo oft áður í vetur. Hann fær góðan félagsskap á bekknum en þar sitja Freyr Bjarnason, blaðamaður Fréttablaðsins, og tónlistarmaðurinn Jón Jónsson ásamt fleirum.
Eyða Breyta
1. mín
Þegar allt virtist vera klárt og leikurinn átti að byrja hljóp Leiknir dómari skyndilega inn til klefana, hefur væntanlega gleymt flautunni sinni eða spjöldunum. Nú er leikurinn hafinn en það voru FH-ingar sem byrjuðu með knöttinn.
Eyða Breyta
7. mín
FH byrjar leikinn betur og Fylkismenn eiga undir högg að sækja. Ekkert opið marktækifæri þó enn sem komið er.
Eyða Breyta
10. mín
Hætta við mark Fylkis. Fyrst var Ólafur Páll Snorrason í hættulegri stöðu en Davíð Þór Ásbjörnsson náði að komast fyrir skot hans og bjarga í horn. Eftir hornspyrnuna fékk Guðjón Árni boltann í teignum en var ekki í jafnvægi og boltinn framhjá.
Eyða Breyta
13. mín
Ólafur Páll í mjög óvæntu færi á fjærstönginni, það óvæntu að það kom honum sjálfum á óvart. Skot hans framhjá. FH mikið sterkara hér í upphafi leiks.
Eyða Breyta
14. mín SJÁLFSMARK! Björn Daníel Sverrisson (FH)
Þetta var gríðarlega klaufalegt mark! Mér sýndist það vera Rúrik Andri sem setti pressu á Gunnleif markvörð sem sparkaði í Rúrik, þaðan fór boltinn í boga fyrir framan tómt markið þar sem Ingimundur Níels Óskarsson var í baráttunni við Björn. Boltinn fór af Birni og í markið.
Eyða Breyta
19. mín
Emil Pálsson náði að koma boltanum í netið en var dæmdur rangstæður. FH hefur séð um að vera með boltann í þessum leik en eina markið kom hinumegin!
Eyða Breyta
23. mín
Þetta mark hefur gefið Fylkismönnum aðeins meira öryggi í sinn leik og þeir halda boltanum betur innan liðsins.
Eyða Breyta
26. mín
Vorum að fá þær upplýsingar að staðan er enn markalaus á KR-vellinum þar sem KR og Haukar eru að spila. Sá leikur hófst á sama tíma og þessi. Reynum að fylgjast með gangi mála í honum líka.

Annars var Fylkir að taka aukaspyrnu hér í Egilshöll. Davíð Þór Ásbjörnsson tók skot sem fór rétt framhjá.
Eyða Breyta
26. mín
Vorum að fá þær upplýsingar að staðan er enn markalaus á KR-vellinum þar sem KR og Haukar eru að spila. Sá leikur hófst á sama tíma og þessi. Reynum að fylgjast með gangi mála í honum líka.

Annars var Fylkir að taka aukaspyrnu hér í Egilshöll. Davíð Þór Ásbjörnsson tók skot sem fór rétt framhjá.
Eyða Breyta
28. mín
Þetta sjálfsmark virðist ekki hafa haft nein áhrif á sjálfstraust Péturs. Hann ber boltann vel upp völlinn og hikaði ekki við að taka glæsilegan snúning framhjá miðjumanni Fylkis rétt áðan.
Eyða Breyta
30. mín
Ólafur Páll Snorrason með góða skottilraun rétt fyrir utan teiginn en boltinn naumlega yfir. Kristján Jónsson, blaðamaður Morgunblaðsins, kíkti við hérna rétt áðan og talaði um að Ólafur hefði forskot yfir aðra leikmenn þar sem faðir hans tók víst þátt í því að byggja Egilshöllina.
Eyða Breyta
31. mín Gult spjald: Einar Karl Ingvarsson (FH)
Ungur leikmaður FH-inga fékk réttilega gult spjald fyrir að toga í peysu Tómasar Þorsteinssonar sem geystist upp vinstri vænginn.
Eyða Breyta
37. mín MARK! Tómas Joð Þorsteinsson (Fylkir)
Magnús Þórir hirti boltann laglega af Birni Daníeli. Boltinn barst á Tómas Joð sem var í góðu skotfæri, skaut í vinstra hornið og Gunnleifur náði ekki að verja! Brekkan brött fyrir FH núna.
Eyða Breyta
44. mín
Emil Pálsson í fínu færi en hitti boltann illa. Boltinn skoppaði til hans eftir fyrirgjöf frá vinstri. Dapurt hjá Fylkisvörninni að hleypa boltanum þessa leið.
Eyða Breyta
45. mín
Það er kominn hálfleikur í Egilshöllinni. Staðan 2-0 fyrir Fylki.
Eyða Breyta
45. mín
Hérna rétt undir lok fyrri hálfleiks lét Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, einn leikmanna sinna, Emil Pálsson, heyra það. Emil hefur ekki farið af nægilegum krafti í einvígi og tæklingar að mati Heimis.
Eyða Breyta
45. mín
Óbreytt lið FH er komið út á völlinn. Ræðan hjá Ásmundi Arnarssyni er lengri og Fylkismenn eru enn í klefanum.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn. Bæði lið óbreytt.
Eyða Breyta
57. mín Viktor Smári Segatta (FH) Einar Karl Ingvarsson (FH)

Eyða Breyta
57. mín Atli Guðnason (FH) Brynjar Ásgeir Guðmundsson (FH)

Eyða Breyta
57. mín Viktor Örn Guðmundsson (FH) Emil Pálsson (FH)
Björn Daníel færist á miðjuna.
Eyða Breyta
60. mín
Viktor ekki lengi að láta að sér kveða. Gerði vel þegar hann fór upp vinstri kantinn og sendi fyrir á Ólaf Pál Snorrason sem skaut en Bjarni Þórður varði í horn. FH-ingar meira með boltann þessa stundina.
Eyða Breyta
63. mín
Strákarnir í U17 landsliðinu eru að keppa við Skotland þessa stundina. Markalaust þar í hálfleik. Einnig er 0-0 í leik KR og Hauka í Lengjubikarnum sem hófst á sama tíma og þessi leikur í Egilshöllinni.
Eyða Breyta
69. mín MARK! Björn Daníel Sverrisson (FH)
Björn Daníel hefur minnkað muninn! Boltinn barst til hans við vítateigsendann þar sem hann var einn og yfirgefinn og skoraði með hnitmiðuðu skoti. Það eru athyglisverðar síðustu 20 mínúturnar framundan.
Eyða Breyta
73. mín
Rétt áður en Björn skoraði þetta mark varði Bjarni Þórður glæsilega frá Atla Guðnasyni. Rétt í þessu var Bjarni svo að verja frá Viktori Smára. Varamennirnir í sviðsljósinu eftir þreföldu skiptinguna hjá Heimi áðan.
Eyða Breyta
74. mín Mark - víti Björn Daníel Sverrisson (FH)
FH-ingar hafa jafnað! Björn Daníel setti boltann örugglega uppi í hornið hægra megin úr vítaspyrnu. Vítið var dæmt þegar Ásgeir Börkur var talinn hafa brotið á Ólafi Páli Snorrasyni rétt innan vítateigs. Undirrituðum fannst þetta vera öxl í öxl.
Eyða Breyta
77. mín
Ísland U17 er að vinna Dani 1-0. Kristján Flóki Finnbogason með markið. Hálftími eftir af þeim leik.
Eyða Breyta
80. mín Styrmir Erlendsson (Fylkir) Viðar Örn Kjartansson (Fylkir)

Eyða Breyta
83. mín Andri Már Hermannsson (Fylkir) Rúrik Andri Þorfinnsson (Fylkir)

Eyða Breyta
84. mín MARK! Ólafur Páll Snorrason (FH)
FH-ingar hafa náð að snúa leiknum sér í vil! Eftir innkast berst boltinn á Ólaf Pál á fjærstönginni sem kemur á siglingu og skorar af stuttu færi. Slök varnarvinna hjá Fylki þarna.
Eyða Breyta
88. mín
Viktor Smári nálægt því að skora fjórða mark FH en skot hans smaug framhjá samskeytunum.
Eyða Breyta
89. mín Hákon Ingi Jónsson (Fylkir) Magnús Þórir Matthíasson (Fylkir)

Eyða Breyta
90. mín
KR 0 - 1 Haukar
0-1 Björgvin Stefánsson ('86)
Eyða Breyta
92. mín
Kristján Valdimarsson í hörkufæri, tók þrumuskot en hitti ekki markið. Munaði litlu að hann næði að jafna þarna!
Eyða Breyta
93. mín Gult spjald: Ásgeir Börkur Ásgeirsson (Fylkir)

Eyða Breyta
93. mín
Leik lokið - FH fær öll stigin úr þessum leik eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
3. Guðjón Árni Antoníusson
7. Pétur Viðarsson
8. Emil Pálsson ('57)
10. Björn Daníel Sverrisson
14. Albert Brynjar Ingason
15. Guðmann Þórisson
18. Einar Karl Ingvarsson ('57)
22. Ólafur Páll Snorrason
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson ('57)
25. Hólmar Örn Rúnarsson

Varamenn:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
5. Freyr Bjarnason
11. Atli Guðnason ('57)
16. Jón Ragnar Jónsson
26. Viktor Örn Guðmundsson ('57)

Gul spjöld:
Einar Karl Ingvarsson ('31)

Rauð spjöld: