Estádio da Luz
þriðjudagur 27. mars 2012
kl. 18:45
Meistaradeildin - 8 liða úrslit
Dómari: Paolo Tagliavento (Ítalía)
Benfica 0 - 1 Chelsea
0-1 Salomon Kalou ('75)
Byrjunarlið:
1. Artur (M)
3. Emerson
4. Luisao
6. Javi Garcia ('81)
7. Oscar Cardozo
8. Bruno Cesar ('69)
10. Aimar ('69)
12. Yannick Djalo
14. Maxi Pereira
20. Nicolas Gaitán
28. Witzel

Varamenn:
9. Nolito ('81)
16. Nelson Oliveira
19. Rodrigo Moreno ('69)
21. Matic ('69)
27. Miguel Vitor
30. Javier Saviola
47. Eduardo (M)

Gul spjöld:
Bruno Cesar ('26)

Rauð spjöld:

Elvar Geir Magnússon
95. mín
Þessum fyrri leik er lokið. Chelsea í mjög fínni stöðu fyrir seinni leikinn. Fyrsti útisigur Chelsea í Meistaradeildinni þetta tímabilið. Flottur sigur.
Eyða Breyta
90. mín
Apoel 0 - 3 Real Madrid
0-3 Karim Benzema ('90)

Þessu einvígi er bara lokið.
Eyða Breyta
89. mín
Tottenham 2 - 0 Bolton
1-0 Ryan Nelsen ('74 )
2-0 Gareth Bale ('77 )


Sunderland 0 - 2 Everton
0-1 Nikica Jelavic ('24 )
0-2 David Vaughan ('57 , sjálfsmark)
Eyða Breyta
86. mín
Apoel 0 - 2 Real Madrid
0-2 Kaka ('82)
Eyða Breyta
86. mín
Þrátt fyrir að Torres hafi ekki skorað í þessum leik hefur hann verið mjög öflugur og lagði náttúrulega upp markið frá Kalou. Það hefur mikið verið í gangi kringum hann.
Eyða Breyta
83. mín Daniel Sturridge (Chelsea) Salomon Kalou (Chelsea)

Eyða Breyta
81. mín Nolito (Benfica) Javi Garcia (Benfica)

Eyða Breyta
80. mín Jose Bosingwa (Chelsea) Paulo Ferreira (Chelsea)

Eyða Breyta
77. mín
Apoel 0 - 1 Real Madrid
0-1 Karim Benzema ('74)

Ísinn brotinn á Kýpur.
Eyða Breyta
75. mín MARK! Salomon Kalou (Chelsea)
Kalou hefur komið Chelsea yfir! Fernando Torres sýndi óeigingirni, var hægra megin í teignum og renndi boltanum á Kalou sem kláraði! Mikilvægt útivallarmark frá Chelsea.
Eyða Breyta
72. mín
Arnar Smárason, formaður Kaiserslautern-klúbbsins:
Meireles fékk bara þessar móttökur haha #gómsætt
Eyða Breyta
69. mín Rodrigo Moreno (Benfica) Bruno Cesar (Benfica)

Eyða Breyta
69. mín Matic (Benfica) Aimar (Benfica)

Eyða Breyta
68. mín Frank Lampard (Chelsea) Raul Meireles (Chelsea)

Eyða Breyta
67. mín
Björn Már Ólafsson:
Gaman að sjá leikmenn á borð við Gaitan, Aimar, Cardozo og Witsel spila. #BenChe
Eyða Breyta
64. mín
Kristinn Steindórsson, leikmaður Halmstad:
Ekki nógu margir dómarar til að sjá þessa hendi, þarf svona 4 í viðbót #ótrúlegt #idiots
Eyða Breyta
60. mín
Benfica vildi fá vítaspyrnu þegar boltinn fór í höndina á Terry í teignum... klárt víti að mínu mati en Ítalinn dæmdi ekkert.

Strax á eftir fékk Juan Mata gott færi eftir hrikaleg varnarmistök en skot hans hamraðist í stöngina. Líf og fjör þessar mínútur.
Eyða Breyta
54. mín
Kalou í hörkufæri! Fékk mjög góða sendingu frá Torres en skalli hans slakur og hittir ekki markið.
Eyða Breyta
51. mín
Heimamenn byrja seinni hálfleikinn betur og eru með mun meiri sóknarþunga en í þeim fyrri.
Eyða Breyta
49. mín
David Luiz bjargar á línu! Þarna mátti litlu muna! Oscar Cardozo með þrumuskot sem fer í brjóstkassann á Luiz. Enska liðið stálheppið.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn. Vonandi verður hann skemmtilegri en sá fyrri.
Eyða Breyta
45. mín
Hálfleikur Staðan markalaus.

Staðan er einnig markalaus í leik Apoel og Real Madrid þar sem spænska liðið hefur farið illa með góð færi.
Eyða Breyta
42. mín
Sunderland 0 - 1 Everton
Nikica Jelavic

Bikarleikur sem byrjaði klukkan 19.
Eyða Breyta
41. mín
Frábært skot frá Raul Meireles af löngu færi, Artur í marki Benfica þurfti að hafa sig allan við að verja þetta.
Eyða Breyta
40. mín
Ítalski dómarinn er með tök á öllu. Hann gerði athugasemd við það að Terry var ekki með fyrirliðaband. Það er verið að redda því.

Torres átti marktilraun fyrir Chelsea en hitti ekki markið.

Eyða Breyta
30. mín
Gaitan með góða fyrirgjöf á Cardozo en hann þurfti að teyga sig í boltann og skallaði yfir.
Eyða Breyta
26. mín Gult spjald: Bruno Cesar (Benfica)

Eyða Breyta
24. mín
Argentínski vængmaðurinn Nicolas Gaitan hjá Benfica hefur verið orðaður við bæði Manchester-liðin. Verður spennandi að sjá hvort hann nái að gera Chelsea lífið leitt í þessu einvígi.
Eyða Breyta
20. mín
Besta færi leiksins til þessa, glæsilegt hlaup hjá Oscar Cardozo sem fékk frábæra sendingu innfyrir en skotið sem hann náði var ekki nægilega gott og fór framhjá.
Eyða Breyta
17. mín
Flott sókn hjá Chelsea sem endar með því að Torres reynir að gefa fyrir en Benfica nær að bjarga í horn. Artur markvörður reyndi að grípa boltann eftir hornið en tilburðir hans voru ekki sannfærandi, á endanum náði Benfica að bægja hættunni frá.
Eyða Breyta
12. mín
Matthías Ragnarsson:
Ándjóks hvað ég er pirraður að Paulo Ferreira sé í starter, eða bara sé hjá Chelsea #girtuþigMatteo #fotbolti
Eyða Breyta
7. mín
Það er kreppa í Portúgal. Ekki er uppselt á leikinn.
Eyða Breyta
4. mín
Smá uslagangur í teignum hjá Chelsea. Heimamenn byrja þetta af þokkalegum krafti. Boltinn skoppaði rétt framhjá markinu.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn á Leikvangi ljóssins í Lissabon. Það eru sjö Brasilíumenn í byrjunarliðum kvöldsins, þar af fimm í Benfica.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Kristinn Rósbergsson, leikmaður Þórs:
Nenni ekki að Lampard og Drogba benchi í kvöld #kommon
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur:
Mourinho,Grant,Scolari, Hiddink, Ancelotti, AVB og Di Matteo velja allir Obi Mikael. Hann hlýtur að geta eitthvað í fótbolta. #SamtEkki
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ítalir búa til bestu dómarana og dómari dagsins er þaðan, Paolo Tagliavento.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ítalir búa til bestu dómarana og dómari dagsins er þaðan, Paolo Tagliavento.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Roberto Di Matteo hefur ákveðið að láta Fernando Torres leiða sóknina hjá Chelsea í kvöld en Didier Drogba er geymdur á bekknum.

Byrjunarlið Chelsea: Cech; Ferreira Luiz Terry Cole; Ramires Mikel Meireles; Kalou Torres Mata

Byrjunarlið Benfica: Artur; Maxi Pereira, Luisao, Jardel, Emerson; Javi Garcia, Witsel; Bruno Cesar, Aimar, Gaitan; Cardozo
Eyða Breyta
Fyrir leik
Spá Tryggva Guðmundssonar fyrir leikinn:
Benfica 1 - 1 Chelsea
Þetta fer jafntefli og Chelsea nær útivallarmarki sem gefur þeim gott veganesti í seinni leikinn. Didier Drogba skorar markið, Fernando Torres skorar ekki. Þetta er gott jafntefli fyrir Chelsea sem klárar þetta síðan á brúnni.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Benfica lagði Zenit frá Pétursborg í 16-liða úrslitum en Chelsea vann Napoli í óhemju spennandi einvígi sem fór í framlengingu.

Það eru engin meiðsli að herja á leikmannahóp Chelsea. Branislav Ivanovic ferðaðist með liðinu til Portúgal en hann lék ekki með í jafnteflinu gegn Tottenham um síðustu helgi.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Komið þið sæl og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá fyrri leik Benfica og Chelsea í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikurinn fer fram í Portúgal.

Við munum einnig fylgjast með gangi mála í leik Apoel og Real Madrid sem fram fer í Nikósíu

Endilega komið með ykkar álit á leiknum í gegnum Twitter með því að nota hashtagið #fotbolti
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Petr Cech (m)
3. Ashley Cole
4. David Luiz
7. Ramires
9. Fernando Torres
10. Juan Mata
12. John Obi Mikel
16. Raul Meireles ('68)
19. Paulo Ferreira ('80)
21. Salomon Kalou ('83)
26. John Terry

Varamenn:
22. Ross Turnbull (m)
5. Mikael Essien
8. Frank Lampard ('68)
11. Didier Drogba
17. Jose Bosingwa ('80)
23. Daniel Sturridge ('83)
24. Gary Cahill

Gul spjöld:

Rauð spjöld: