Allianz Arena
þriðjudagur 17. apríl 2012
kl. 18:45
Meistaradeildin - Undanúrslit
Dómari: Howard Webb
FC Bayern 2 - 1 Real Madrid
1-0 Franck Ribery ('17)
1-1 Mesut Özil ('53)
2-1 Mario Gomez ('89)
Byrjunarlið:
1. Manuel Neuer (m)
7. Franck Ribery
10. Arjen Robben
17. Jerome Boateng
21. Philipp Lahm
27. David Alaba
28. Holger Badstuber
30. Luiz Gustavo
31. Bastian Schweinsteiger ('61)
33. Mario Gomez
39. Toni Kroos

Varamenn:
22. Tom Starke (m)
4. Dante
13. Rafinha
23. Danijel Pranji
25. Thomas Müller ('61)
26. Diego Contendo
44. Anatoliy Tymoshchuk

Gul spjöld:
Holger Badstuber ('31)
Arjen Robben ('37)

Rauð spjöld:

Sebastían Sævarsson Meyer
93. mín
Eftir svakalegan leik er 2-1 sigur FC Bayern staðreynd. Franck Ribery skoraði fyrsta mark leiksins en Mesut Özil jafnaði fyrir Real Madrid snemma í síðari hálfleik. En markahrókurinn Mario Gomez hafði lokaorðið með sigurmarki sínu fyrir Bayern á lokamínútunum.
Eyða Breyta
93. mín Leik lokið!

Eyða Breyta
93. mín Gult spjald: Marcelo (Real Madrid)

Eyða Breyta
90. mín
2-1 fyrir Bayern, en ná heimamenn að halda þetta út? Þremur mínútum var bætt við.
Eyða Breyta
89. mín MARK! Mario Gomez (FC Bayern)
MARIO GOMEZ KEMUR BAYERN YFIR!!! Ótrúlega vel gert hjá Lahm sem sólar Coentrao upp úr skónum og á sendingu fyrir markið og þar er Gomez mættur og skorar!!
Eyða Breyta
87. mín
Er þetta víti???? Nei segir Howard Webb! Coentrao tæklar Gomez í teignum sem er brjálaður út í dómara leiksins. Hægt að deila um þetta..
Eyða Breyta
86. mín
Gomeeeezz...Casillas ver! Góð fyrirgjöf frá Lahm á Gomez sem skallar boltann í fangið á Casillas.
Eyða Breyta
85. mín
5 mínútur eftir, fáum við mark í lokin?
Eyða Breyta
84. mín Gonzalo Higuain (Real Madrid) Karim Benzema (Real Madrid)

Eyða Breyta
79. mín Ricardo Carvalho (Real Madrid) Angel Di Maria (Real Madrid)
Jose Mourinho virðist ætla pakka í vörn síðustu mínúturnar.
Eyða Breyta
75. mín Gult spjald: Sergio Ramos (Real Madrid)

Eyða Breyta
72. mín
Philipp Lahm með fyrirgjöfina beint á kollinn á Gomez sem skallar boltanum rétt yfir. Bayern með leikinn á sínu valdi núna.
Eyða Breyta
70. mín
Boltinn dettur fyrir Gomez eftir aukaspyrnu en hann þrumar boltanum yfir af stuttu færi.
Eyða Breyta
69. mín Marcelo (Real Madrid) Mesut Özil (Real Madrid)

Eyða Breyta
61. mín Thomas Müller (FC Bayern) Bastian Schweinsteiger (FC Bayern)

Eyða Breyta
59. mín Gult spjald: Angel Di Maria (Real Madrid)
Gulu spjöldin eru farin að fljúga á loft.
Eyða Breyta
56. mín Gult spjald: Xabi Alonso (Real Madrid)

Eyða Breyta
56. mín Gult spjald: Fabio Coentrao (Real Madrid)

Eyða Breyta
53. mín MARK! Mesut Özil (Real Madrid)
Real Madrid er búið að jafna leikinn!! Eftir langa sókn potar Özil boltanum í netið af stuttu færi.
Eyða Breyta
48. mín
Benzema kemst í gott færi en Boateng bjargaði á síðustu stundu.
Eyða Breyta
46. mín
Seinni hálfleikur er kominn í gang, engar skiptingar hafa verð gerðar.
Eyða Breyta
45. mín
Hálfleikur
Jæja nú gefst smá tími til að ná andanum. Þessi fyrri hálfleikur var ótrúlegur! Leikurinn hefur verið nokkuð jafn en það var Franck Ribery sem kom Bayern yfir með þrumuskoti eftir hornspyrnu. Þetta stefnir í svakalegan seinni hálfleik...fylgist með!
Eyða Breyta
45. mín
Hálfleikur
FC Bayern 1 - 0 Real Madrid.
Eyða Breyta
45. mín
Neinei Toni Kroos setur boltann beint í vegginn. Einni mínútu hefur verið bætt við fyrri hálfleik.
Eyða Breyta
44. mín
Aukaspyrna á STÓRhættulegum stað fyrir Bayern! Gomez er felldur rétt fyrir utan teig..
Eyða Breyta
40. mín
Gomez í færi!! Fær sendingu inn fyrir vörn Real Madrid og á skot í markvinkilinn en Casillas skutlar sér fyrir boltann.
Eyða Breyta
39. mín
Þarna fór Ronaldo illa með Boateng og á sendingu inn í teig en vörn Bayern hreinsar. Síðan fær Benzema hörku færi en skot hans fór beint á Neuer.
Eyða Breyta
37. mín Gult spjald: Arjen Robben (FC Bayern)

Eyða Breyta
36. mín
Xapi Alonso tekur aukaspyrnu frá vinstri kanstinum en Neuer kýlir boltann frá.
Eyða Breyta
32. mín
Aukaspyrna Ronaldo hafnar í fangi Neuer.
Eyða Breyta
31. mín Gult spjald: Holger Badstuber (FC Bayern)
Fyrsta gula spjald leiksins á loft, aukaspyrna fyrir Real Madrid.
Eyða Breyta
30. mín
Daníel Freyr Jónsson, fréttaritari Fótbolta.net:
ég spái einu til tveimur rauðum spjöldum þessum leikjum Real og Bayern #heittíhamsi #fotbolti
Eyða Breyta
29. mín
Hinu megin kemst Ronaldo í skotfæri, en sá þrumar boltanum upp í stúku.
Eyða Breyta
28. mín
Schweinsteiger með gott skot af löngu færi sem hafnar rétt framhjá markinu.
Eyða Breyta
26. mín
Bayern hefur beitt stórhættulegum skyndisóknum. Robben og Ribery fara þar fremstir í flokki.
Eyða Breyta
25. mín
Það er frábær leikur hér í gangi, mikill hraði og mikil spenna. Bayern er einu marki yfir en ég er viss um að við fáum fleiri mörk í þennan leik.
Eyða Breyta
21. mín
..hörku skot, en rétt yfir markið.
Eyða Breyta
21. mín
Aukaspyrna fyrir Real Madrid rétt fyrir utan teig. Ronaldo stendur við boltann..
Eyða Breyta
17. mín MARK! Franck Ribery (FC Bayern)
BAYERN ER KOMIÐ YFIR!! Franck Ribery þrumar knettinum í netið eftir hornspyrnu, óverjandi fyrir Casillas. Staðan er 1-0!
Eyða Breyta
15. mín
Áhorfendur og leikmenn Bayern eru æfir!! Vildu meina að Sergio Ramos hafi brotið á Franck Ribery innan teigs, það var klárlega einhver snerting þarna. Howard Webb dómari lét leikinn halda áfram.
Eyða Breyta
11. mín
Mikill kraftur í leikmönnum Real Madrid sem eru með undirtökin á fyrstu mínútunum. Bayern reynir að róa leikinn aðeins niður.
Eyða Breyta
7. mín
Benzema fær fyrsta færi leiksins. Fékk góða stungusendingu og á fast skot á markið en Neuer ver vel í marki Bayern.
Eyða Breyta
4. mín
Bayern fær aukaspyrnu á fínum stað en leikmenn Real Madrid hreinsa.
Eyða Breyta
2. mín
Mikill hraði í byrjun leiks. Lahm brunar upp völlinn og á fyrirgjöf fyrir markið en hana grípur Casillas. Benzema er síðan með boltann í vítateig Bayern en Neuer nær valdi á knettinum.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn! Bayern byrjar með boltann.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liðin eru mætt á völlinn, fyrirliðarnir Philipp Lahm og Iker Casillas takast í hendur og nú er allt klárt.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ég mun fylgjast með skemmtilegum færslum á Twitter. Endilega notið hashtagið #fotbolti.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Real Madrid er hins vegar talið sigurstranglegra enda er liðið á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar. Real Madrid hefur leikið 18 leiki í röð án þess að tapa og eru leikmenn liðsins fullir sjálfstrausts.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Leikurinn fer fram á Allianz Arena í München, en þar mun einmitt úrslitaleikurinn í ár fara fram. Skyldi Bayern komast í úrslitaleikinn yrði það í fyrsta sinn í sögu Meistaradeildarinnar að lið spili til úrslita á eigin heimavelli.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þetta er í þrettánda sinn sem Bayern München og Real Madrid mætast í Meistaradeildinni. Bayern hefur unnið sjö leiki, Real Madrid fjóra og einu sinni hafa liðin gert jafntefli. Þar við bætist hefur Bayern aldrei tapað á heimavelli fyrir Real Madrid.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Já það er sannkallaður stórleikur á dagskrá og við eigum von á veislu hér í kvöld! Byrjunarliðin eru komin en þau má sjá hér til hliðar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Góða kvöldið lesendur góðir í beina textalýsingu á leik Bayern München og Real Madrid í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeildinni.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Iker Casillas (m)
3. Pepe
4. Sergio Ramos
5. Fabio Coentrao
6. Sami Khedira
7. Cristiano Ronaldo
9. Karim Benzema ('84)
10. Mesut Özil ('69)
14. Xabi Alonso
17. Alvaro Arbeola
22. Angel Di Maria ('79)

Varamenn:
13. Antonio Adan (m)
8. Kaka
11. Ricardo Carvalho ('79)
12. Marcelo ('69)
18. Raul Albiol
19. Luka Modric
20. Gonzalo Higuain ('84)

Gul spjöld:
Fabio Coentrao ('56)
Xabi Alonso ('56)
Angel Di Maria ('59)
Sergio Ramos ('75)
Marcelo ('93)

Rauð spjöld: