Kórinn
fimmtudagur 19. apríl 2012
kl. 11:00
Lengjubikarinn - 8-liða úrslit
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Valur 1 - 2 Stjarnan
0-1 Garðar Jóhannsson ('27)
0-2 Garðar Jóhannsson ('48, víti)
1-2 Atli Sveinn Þórarinsson ('58)
Byrjunarlið:
25. Ásgeir Þór Magnússon (m)
7. Haukur Páll Sigurðsson
10. Guðjón Pétur Lýðsson
11. Matthías Guðmundsson
16. Atli Heimisson ('74)
19. Ásgeir Þór Ingólfsson ('56)
22. Nesta Matarr Jobe
23. Andri Fannar Stefánsson ('74)

Varamenn:
2. Úlfar Hrafn Pálsson
6. Hafsteinn Briem
8. Rúnar Már Sigurjónsson ('56)
17. Þórir Guðjónsson ('74)

Gul spjöld:
Atli Sveinn Þórarinsson ('89)
Kristinn Freyr Sigurðsson ('47)

Rauð spjöld:

Magnús Már Einarsson
Fyrir leik
Góðan daginn og gleðilegt sumar! Hér verður bein textalýsing úr Kórnum frá leik Vals og Stjörnunnar í 8-liða úrslitum Lengjubikars karla!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Upphaflega áttu Valsmenn að mæta ÍA í 8-liða úrslitunum en Skagamenn drógu sig úr keppni þar sem að þeir eru á Spáni í æfingaferð. Víkingur R. átti að taka sæti Skagamanna en í gær kom í ljós að Reynir Leósson var í leikbanni í leik liðsins gegn Stjörnunni í síðustu viku. Garðbæingum var því dæmdur 3-0 sigur og Bjarni Jóhannsson og lærisveinar hans fengu að vita í gær að þeir myndu taka þátt í 8-liða úrslitunum í dag.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn!
Eyða Breyta
5. mín
Danski framherjinn Kennie Chopart á fyrsta færið fyrir Stjörnuna en Ásgeir Þór Magnússon nær að verja skot hans úr fínu færi.
Eyða Breyta
7. mín
Valsliðinu er stillt upp svona í dag:

Ásgeir Þór
Andri Fannar - Atli Sveinn - Halldór - Matarr Jobe
Haukur Páll - Guðjón Pétur
Matthías - Ásgeir Þór - Hörður
Atli
Eyða Breyta
9. mín
Stjörnumenn spila svona:

Ingvar
Jóhann - Scholz - Daníel - Hörður
Darri Steinn - Baldvin - Atli Jóhanns - Gunnar Örn
Garðar Jó - Kennie Chopart
Eyða Breyta
13. mín
Stjörnumenn eru líklegri í byrjun. Garðar Jóhannsson nær skoti af harðfylgi en Ásgeir ver.
Eyða Breyta
23. mín
Valsmenn eru nálægt því að komast yfir! Ásgeir Þór Ingólfsson fær stungusendingu inn fyrir flata vörn Stjörnunnar. Daníel Laxdal nær að trufla Ásgeir og þrengja skotvinkilinn en Ásgeir nær þrátt fyrir það hörkuskoti sem fer í slána og út. Stjörnuvörnin var komin hátt upp völlinn og þetta minnti á vandræði liðsins í fyrra í varnarleiknum.
Eyða Breyta
27. mín MARK! Garðar Jóhannsson (Stjarnan)
Stjörnumenn komast yfir! Eftir langa sendingu inn á teiginn fékk Atli Jóhannsson boltann og hann laumaði honum inn á Garðar Jóhannsson. Markakóngur Pepsi-deildarinnar í fyrra lætur ekki bjóða sér svona tækifæri tvisvar og hann smellir boltanum laglega í fjærhornið!
Eyða Breyta
33. mín Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur) Hörður Sveinsson (Valur)
Hörður lýkur keppni vegna meiðsla....
Eyða Breyta
42. mín
Afar rólegt yfir leiknum þessar mínúturnar
Eyða Breyta
45. mín Gult spjald: Atli Jóhannsson (Stjarnan)
Gunnar Jarl dregur upp fyrsta gula spjaldið. Atli Jóhannsson fer í bókina fyrir brot á Ásgeiri Ingólfssyni.
Eyða Breyta
45. mín
Jarlinn flautar til leikhlés. Stjörnumenn leiða með marki frá Garðari Jóhannssyni en jafnræði hefur verið með liðunum í fyrri hálfleik.
Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikurinn er hafinn!
Eyða Breyta
46. mín Hilmar Þór Hilmarsson (Stjarnan) Darri Steinn Konráðsson (Stjarnan)
Hilmar kemur inn í vinstri bakvörðinn og Hörður Árnason tekur stöðu Darra á kantinum.
Eyða Breyta
46. mín Tryggvi Sveinn Bjarnason (Stjarnan) Daníel Laxdal (Stjarnan)
Daníel Laxdal, fyrirliði Stjörnunnar, er að stíga upp úr meiðslum og tekur einungis fyrri hálfleikinn í dag!
Eyða Breyta
47. mín Gult spjald: Kristinn Freyr Sigurðsson (Valur)

Eyða Breyta
48. mín Mark - víti Garðar Jóhannsson (Stjarnan)
Garðar kemur Stjörnunni í 2-0 með öðru marki sínu í dag. Eftir hornspyrna barst boltinn á fjær þar sem Baldvin Sturluson skaut í hendina á Ásgeiri Ingólfssyni. Gunnar Jarl var ekki lengi að benda á punktinn og Garðar skoraði úr vítaspyrnunni af öryggi.
Eyða Breyta
56. mín Rúnar Már Sigurjónsson (Valur) Ásgeir Þór Ingólfsson (Valur)

Eyða Breyta
58. mín MARK! Atli Sveinn Þórarinsson (Valur)
Valsarar eru komnir aftur inn í leikinn. Guðjón Pétur Lýðsson á frábæra aukaspyrnu utan af vinstri kanti og boltinn fer beint á varnarjaxlinn Atla Svein Þórarinsson sem er einn og óvaldaður og stýrir boltanum í netið.
Eyða Breyta
69. mín
Stjörnumenn tapa boltanum og Valsmenn komast í stórhættulega skyndisókn. Atli Heimisson og Matthías Guðmundsson komast tveir á móti Jóhanni Laxdal. Atli ákveður að fara sjalfur og Ásgeir ver skot hans sem er beint á markið.
Eyða Breyta
74. mín Þórir Guðjónsson (Valur) Atli Heimisson (Valur)

Eyða Breyta
74. mín Brynjar Kristmundsson (Valur) Andri Fannar Stefánsson (Valur)

Eyða Breyta
74. mín Bjarki Páll Eysteinsson (Stjarnan) Atli Jóhannsson (Stjarnan)

Eyða Breyta
83. mín Gult spjald: Garðar Jóhannsson (Stjarnan)

Eyða Breyta
86. mín Sindri Már Sigurþórsson (Stjarnan) Gunnar Örn Jónsson (Stjarnan)

Eyða Breyta
89. mín Gult spjald: Atli Sveinn Þórarinsson (Valur)

Eyða Breyta
90. mín
Valsmenn sækja meira í leit að jöfnunarmarki en Stjörnumenn gefa engin færi á sér.
Eyða Breyta
90. mín
Leik lokið með 2-1 sigri Stjörnunnar sem mun mæta Fram eða Þór í undanúrslitunum.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Jóhann Laxdal
7. Atli Jóhannsson ('74)
9. Daníel Laxdal ('46)
14. Hörður Árnason
20. Gunnar Örn Jónsson ('86)
21. Baldvin Sturluson
26. Kennie Chopart
27. Garðar Jóhannsson
28. Darri Steinn Konráðsson ('46)

Varamenn:
25. Davíð Guðjónsson (m)
3. Tryggvi Sveinn Bjarnason ('46)
10. Halldór Orri Björnsson
11. Bjarki Páll Eysteinsson ('74)
23. Snorri Páll Blöndal

Gul spjöld:
Garðar Jóhannsson ('83)
Atli Jóhannsson ('45)

Rauð spjöld: