Wembley
laugardagur 05. maí 2012
kl. 16:15
FA-bikarinn
Dómari: Phil Dowd
Chelsea 2 - 1 Liverpool
1-0 Ramires ('11)
2-0 Didier Drogba ('52)
2-1 Andy Carroll ('64)
Myndir: NordicPhotos
Byrjunarlið:
1. Petr Cech (m)
2. Branislav Ivanovic
3. Ashley Cole
7. Ramires ('76)
8. Frank Lampard
10. Juan Mata ('90)
11. Didier Drogba
12. John Obi Mikel
17. Jose Bosingwa
21. Salomon Kalou
26. John Terry

Varamenn:
22. Ross Turnbull (m)
5. Mikael Essien
9. Fernando Torres
15. Florent Malouda ('90)
16. Raul Meireles ('76)
19. Paulo Ferreira
23. Daniel Sturridge

Gul spjöld:
John Obi Mikel ('36)

Rauð spjöld:

Brynjar Ingi Erluson
95. mín
Leik lokið! Chelsea 2-1 Liverpool! Chelsea er bikarmeistari þetta árið, en ljóst er að færið sem Andy Carroll fékk á 82. mínútu verður umdeilt og mun það sennilega koma í ljós eftir leik í ummælum þjálfara!
Eyða Breyta
94. mín
Þetta er að fjara út. Chelsea á aukaspyrnu. Liverpool hefur sótt stíft, en vörn Chelsea haldið vel.
Eyða Breyta
90. mín Florent Malouda (Chelsea) Juan Mata (Chelsea)

Eyða Breyta
87. mín
Liverpool fær aukaspyrnu á hættulegum stað. Andy Carroll felldur!
Eyða Breyta
82. mín Gult spjald: Luis Suarez (Liverpool)
Fyrir mótmæli.
Eyða Breyta
82. mín
CARROLL! Hann virðist hafa skorað, hann skallaði á markið. Cech varði boltann, en hann virtist fara inn. Þetta virðist ætla að vera umdeilt ef Chelsea fer með sigur af hólmi í dag!
Eyða Breyta
78. mín Dirk Kuyt (Liverpool) Joe Allen (Liverpool)

Eyða Breyta
76. mín Raul Meireles (Chelsea) Ramires (Chelsea)

Eyða Breyta
76. mín
Carroll með skalla! Glen Johnson með góða fyrirgjöf beint á kollinn á Carroll, en boltinn fer yfir markið.
Eyða Breyta
74. mín
Þetta er einstefna frá Liverpool í augnablikinu.
Eyða Breyta
73. mín
Luis Suarez með skot! Hann fékk tíma fyrir utan teiginn og lét vaða meðfram jörðinni og þurfti Petr Cech að hafa sig allan í vörsluna.
Eyða Breyta
70. mín
Gerrard með skot yfir! Carroll gerði vel og skallaði boltann út í teig, þar var Gerrard mættur en skot hans vel yfir.
Eyða Breyta
66. mín
Carroll er búinn að koma með frábæra innkomu. Hann er að spila sig vel inn í þetta og skapa tækifæri. Chelsea menn að verjast vel þessa stundina þó!
Eyða Breyta
65. mín
Liverpool er komið inn í leikinn og þetta var það sem þurfti. Núna er komin spenna í þetta og þeir rauðklæddu að sækja.
Eyða Breyta
64. mín
Hann hefur bara verið inn á í tíu mínútu og er kominn með mark! Downing vann boltann glæsilega með tæklingu. Tæklingin varð að fyrirgjöf og Carroll nýtti sér hana og skoraði í þaknetið.
Eyða Breyta
64. mín MARK! Andy Carroll (Liverpool)

Eyða Breyta
64. mín
Drogba með skot í hliðarnetið! Gott samspil milli leikmanna Chelsea áður en Drogba tekur skotið vinstra megin í teignum, en það fór í hliðarnetið.
Eyða Breyta
62. mín
Luis Suarez fór þarna utan í Drogba. Fílabeinsstrendingurinn féll með látum, en þegar litið er á endursýningu þá virðist snertingin lítil. Aukaspyrna Lampard fer svo rétt framhjá markinu!
Eyða Breyta
59. mín
Kalou með skot framhjá markinu! Hafði nokkra möguleika, fékk opið skot, en það fór vel framhjá.
Eyða Breyta
56. mín
Þetta lítur ekki vel út fyrir þá rauðklæddu. Það er þó nóg eftir og vonandi fáum við fleiri mörk í þetta!
Eyða Breyta
54. mín Andy Carroll (Liverpool) Jay Spearing (Liverpool)

Eyða Breyta
52. mín
Drogbaaa!!! Hann er með fínt record á Wembley og heldur því áfram. Hann hafði skorað sjö sinnum á Wembley áður, og þetta er í áttunda skiptið. Hann fékk boltann frá Frank Lampard og skoraði örugglega í hægra hornið.
Eyða Breyta
52. mín MARK! Didier Drogba (Chelsea)

Eyða Breyta
50. mín
Síðari hálfleikurinn farinn af stað. Steven Gerrard reyndi þarna að fiska vítaspyrnu, en Phil Dowd gaf lítið fyrir það.
Eyða Breyta
45. mín
Hálfleikur: Phil Dowd flautar til hálfleiks. Virkilega dapur fyrri hálfleikur, það var lítið sem ekkert að gerast. Mark Ramires skilur liðin að eftir góða skyndisókn. Vonandi sjáum við meiri spennu í þeim síðari!
Eyða Breyta
45. mín Gult spjald: Daniel Agger (Liverpool)
Braut á Jon Obi Mikel.
Eyða Breyta
40. mín
Spearing allur að koma til í liði Liverpool. Sendir boltann þarna á Henderson sem skallar hann á Suarez, en skalli úrúgvæska framherjans er framhjá markinu.
Eyða Breyta
38. mín
Drogba með skot framhjá markinu. Leikmenn beggja liða virkilega bjartsýnir, verið að reyna af 35-40 metrunum í hvert skipti.
Eyða Breyta
36. mín Gult spjald: John Obi Mikel (Chelsea)
Tæklaði Steven Gerrard og gult spjald sennilega réttur dómur hjá Phil Dowd.
Eyða Breyta
35. mín
Þetta er sennilega minnst spennandi fyrri hálfleikur í úrslitaleik sem ég hef orðið vitni að, en vonandi breytist þetta eitthvað á næstu tíu mínútum. Jordan Henderson og Jay Spearing líta ekkert sérstaklega út í liði Liverpool þessa stundina.
Eyða Breyta
29. mín
Lampard með slappt skot á markið. Tók hann af 35 metrunum, en eins og áður segir var það laust og vel framhjá.
Eyða Breyta
26. mín
Kalou með skot yfir markið. Það er lítið að gerast, leikurinn hefur róast aftur, en vörnin hjá Liverpool er virkilega óstöðug.
Eyða Breyta
15. mín
Luis Suarez fékk eitthvað Deja-Vu á Norwich! Hann reyndi skot aftur af 45 metrunum núna, en hann skaut vel frá og krafturinn enginn.
Eyða Breyta
13. mín
Dauðafæri! Craig Bellamy með gott skot sem fór af Ivanovic. Glen Johnson fór illa með Drogba hægra megin og sendi boltann fyrir, þar sem boltinn barst til Bellamy. Liverpool að svara Chelsea og gera þetta að spennandi leik!
Eyða Breyta
11. mín
RAMIRES! Jay Spearing missti boltann á hættulegum stað á miðjunni. Mata lagði boltann á Ramires, sem keyrði framhjá vörn Liverpool áður en hann skaut á markið. Reina náði að koma sér í boltann, en það var ekki nóg! 1-0
Eyða Breyta
11. mín MARK! Ramires (Chelsea)

Eyða Breyta
7. mín
Leikurinn byrjar rólega, hvorugt lið að skapa sér færi.
Eyða Breyta
1. mín
Drogba reynir strax skot, en boltinn vel framhjá.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Torres alveg þokkalega hress með að vera á bekknum...eða þannig. Carroll aðeins sáttari sýnist mér.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Bæði lið spila 4-5-1. Mata er í holunni fyrir aftan Drogba, með Ramires og Kalou á köntunum. Svipað á teningnum hjá Liverpool, Gerrard í holunni fyrir aftan Suarez og Bellamy og Downing á köntunum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Arnþór Guðmundsson:
Tippa á 2-0 sigur hjá chelsea. Lampard úr víti. #fotbolti
Eyða Breyta
Fyrir leik
Jæja leikmenn að undirbúa sig undir það að ganga inn á völlinn! Þetta er að byrja dömur mínar og herrar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Söngur í gangi. Þetta er einhver hefð, er ekkert sérstakur aðdáandi, vilja bara allir að leikurinn byrji væntanlega!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þorsteinn Hjálmsson:
3-1 Chelsea sigur í dag sé nokkuð víst #fotbolti #FAcup
Eyða Breyta
Fyrir leik
Snorri Þorvaldsson:
liverpool vs. chelsea , liverpool sigur 2-1 #fotbolti
Eyða Breyta
Fyrir leik
You'll Never Walk Alone er í hljóðkerfinu sem stendur, það heyrist vel í stuðningsmönnum Liverpool. Stemningin er komin í gang, hún er ekkert síðri hjá þeim bláu.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Spennan er að megnast og rétt rúmur hálftími til leiks. Hvernig fer leikurinn í dag, hendið ykkar spá inn á Twitter. Hashtagið #fotbolti, ég fylgist vel með og hendi ykkar spá inn!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Bekkir hjá báðum liðum einnig klárir, loksins!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fernando Torres og Andy Carroll á bekknum. Það er merkilegt, 85 milljónir punda á bekknum hljómar ekkert alltof dýrt..
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn! Andy Carroll byrjar ekki hjá Liverpool og þá er það staðfest að Luiz og Cahill byrja ekki hjá Chelsea.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það er rétt um klukkutími í leikinn og við bíðum eftir byrjunarliðum. Kemur Di Matteo á óvart og stillir upp Cahill og Luiz? Gömlu góðu Ferguson aðferðinni. Hverjir byrja hjá Liverpool? Allt dettur þetta inn eftir smástund!
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liverpool hefur unnið tíu leiki á þessu ári, ef tekin eru úrslit úr öllum keppnum, en Chelsea hefur unnið sextán leiki. Roberto Di Matteo tók við liðinu í byrjun mars og hefur hann unnið ellefu af þessum sextán.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Bæði lið eiga þá möguleika á því að landa tveimur bikurum þetta árið. Liverpool vann deildabikarinn gegn Cardiff fyrr á árinu og þá er Chelsea komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu einnig, sem fer fram 19. maí í München.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Liverpool hefur unnið FA-bikarinn sjö sinnum og kemur Chelsea einum bikar á eftir með sex. Liverpool hefur þá þrettán sinnum farið í úrslitaleikinn á meðan Chelsea hefur tekið þátt í tíu leikjum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Þessi lið hafa mæst níu sinnum í FA-bikarnum. Leikir þeirra hafa þá aldrei endað með jafntefli, en Chelsea hefur betur 5-4 í einvíginu. Liðin hafa þá ekki mæst í úrslitaleik bikarsins áður, einungis deildabikarnum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hjá Liverpool er það sama sagan. Charlie Adam verður frá út tímabilið og spilar því ekki meira og þá hefur Lucas Leiva verið meiddur undanfarna mánuði einnig, hann snýr aftur á undirbúningstímabilið í sumar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hjá Liverpool er það sama sagan. Charlie Adam verður frá út tímabilið og spilar því ekki meira og þá hefur Lucas Leiva verið meiddur undanfarna mánuði einnig, hann snýr aftur á undirbúningstímabilið í sumar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Hjá Liverpool er það sama sagan. Charlie Adam verður frá út tímabilið og spilar því ekki meira og þá hefur Lucas Leiva verið meiddur undanfarna mánuði einnig, hann snýr aftur á undirbúningstímabilið í sumar.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það er nokkuð um meiðsli hjá báðum liðum. Fréttir herma að David Luiz og Gary Cahill komi ekki til með að ná leiknum í dag, sem eru slæmar fréttir fyrir Chelsea þar sem brasilíski leikmaðurinn hefur verið frábær á tímabilinu og þá hefur Cahill verið að stíga vel inn í liðið.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu af leik Chelsea og Liverpool í úrslitaleik FA-bikarsins sem fer fram á Wembley núna klukkan 16:15.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
25. Pepe Reina (m)
2. Glen Johnson
3. Jose Enrique
5. Daniel Agger
7. Luis Suarez
8. Steven Gerrard
14. Jordan Henderson
19. Stewart Downing
20. Jay Spearing ('54)
24. Joe Allen ('78)
37. Martin Skrtel

Varamenn:
9. Andy Carroll ('54)
11. Oussama Assaidi
18. Dirk Kuyt ('78)
23. Jamie Carragher
29. Fabio Borini
33. Jonjo Shelvey
34. Martin Kelly

Gul spjöld:
Daniel Agger ('45)
Luis Suarez ('82)

Rauð spjöld: