Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Stjarnan
0
1
ÍBV
0-1 Kristín Erna Sigurlásdóttir '56
12.03.2017  -  14:30
Kórinn
Lengjubikar kvenna A deild
Dómari: Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson
Áhorfendur: 25-30
Byrjunarlið:
Ana Victoria Cate
Telma Hjaltalín Þrastardóttir
1. Berglind Hrund Jónasdóttir
5. Írunn Þorbjörg Aradóttir ('32)
6. Lára Kristín Pedersen
11. Guðmunda Brynja Óladóttir
16. María Eva Eyjólfsdóttir
17. Agla María Albertsdóttir
22. Nótt Jónsdóttir
24. Bryndís Björnsdóttir
30. Katrín Ásbjörnsdóttir

Varamenn:
12. Dagbjört Ína Guðjónsdóttir (m)
7. Ásgerður Stefanía Baldursdóttir
9. Kristrún Kristjánsdóttir
9. Anna María Björnsdóttir
15. Katrín Mist Kristinsdóttir
19. Birna Jóhannsdóttir ('32)
19. Elín Helga Ingadóttir
20. Lára Mist Baldursdóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir

Liðsstjórn:
Ólafur Þór Guðbjörnsson (Þ)
Þóra Björg Helgadóttir
Andrés Ellert Ólafsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
100. mín
Leiðrétting: Það var Telma Hjaltalín sem fór meidd af velli en Ólafur Þór gat ekki tjáð sig um alverleika meiðslisins.
Leik lokið!
ÍBV vinnur. Stjarnan heilt yfir betur en náðu ekki að nýta þau færi sem þær sköpuðu, þrjú skot í rammann frá þeim í heildina.
92. mín
Klúðurslegt stutt horn ÍBV sem Stjarnan kemst inn í og bruna fra en ekkert verður úr sókninni.
89. mín
Eyjastelpur þrusa boltanum fram í hvert sinn sem þær ná í hann, virðast vera að landa þessu.
86. mín
Skot í slánna! Cloé Lacasse fær boltan á kantinum, hleypur framhjá tveim varnarmönnum Stjörnar og setur hann í slánna. Hefði getað klárað leikinn þarna.
82. mín
Gott færi Störnunar. Katrín Ásbjörnsdóttir vinur boltan og spólar í gegnum línur ÍBV, kemur boltanum á samherja í teignum sem þrumar rétt yfir.
77. mín
Dómarinn stoppar leikinn eftir að Birna Jóhannesdóttir fékk höfuðhögg en hún er fljót að standa upp og hrista það af sér. Í kjölfarið er dæmt hættuspark á Stjörnuna.
73. mín
Stjarnan fær horn, boltinn berst inn á teig og Telma er ein á auðum sjó en nær ekki nógu góðu skoti.
72. mín
ÍBV kemst inn í fyrirgjöf tvisvar á stuttum tíma. Stjarnan búin að taka yfir leikinn síðan ÍBV skoraði en ná einhvern veginn ekki að skapa dauðafærið.
67. mín
Skot úr mjög þröngu færi sem Adalaide ver auðveldlega. Frá Stjönunni heyrist kall um að koma sér meira inn í teig.
65. mín
Liðin skiptast á að vera með boltann og bruna í sókn en ná ekki að skapa sér færi að neinu ráði, þó Stjanan hafi verið líklegri síðan ÍBV skoraði.
59. mín
Dauðafæri. Guðmunda Brynja fékk boltann á miðlínunni og brunaði upp allan völlinn langt á undan varnalínu ÍBV. Ein á móti markmanni en skotið vel framhjá.
56. mín MARK!
Kristín Erna Sigurlásdóttir (ÍBV)
Einfalt. Löng sending og Kristín náði að vera rétt á undan varnarmanninum og kláraði smekklega í nær hornið af vítateigslínunni.
47. mín
Júlíana Sveinsdóttir á fast skot frá teig línunni en Berglind Hrund ver.
46. mín
ÍBV fá gott færi strax í fyrstu Kristín Erna nær ekki að stjórna boltanum eftir fyrirgjöfina og Berglind Hrund ver auðveldlega.
45. mín
Leikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Heilt yfir jafn og skemmtilegur leikur. Stjarnan verið ögn betri en bæði lið búin að eiga skot í rammann og naumlega framhjá og þess sem Adalaide Anne varði mjög vel einu sinni maður á mann.
45. mín
ÍBV á annað gott færi í uppbótartíma. Ingibjörg Lúcía fékk langasendingu yfir vörnina og var komin ein á móti Berglind Hrund, sem náði að neyða hana í þröngt framhjá og skotið fór í hliðarnetið.
45. mín
ÍBV á góða fyrirgjöf eftir sprett á hægri kantinum en Berglind Hrund rétt nær að blaka boltanum frá.
44. mín
ÍBV eiga sitt besta færi. Katie komst í gegn en skaut í stöng, boltin barst til Kristínar sem skaut yfir,
39. mín
ÍBV bjargar á marklínunni eftir horn.
37. mín
Skot í slánna, Stjarnan. Birna fær boltann í teignum og þrumar í slánna.
36. mín
Góður sprettur upp hægri kantinn hjá ÍBV en ná ekki að skapa færi.
32. mín
Inn:Birna Jóhannsdóttir (Stjarnan) Út:Írunn Þorbjörg Aradóttir (Stjarnan)
32. mín
Stjarnan sparkar boltanum útaf þar sem Írunn liggur og heldur um löppina á sér. Hún er borin af velli. Birna kemur inn í staðinn.
30. mín
Stjarnan vinnur horn, Telma á fyrirgjöf sem er hreinsuð bakvið, ekkert verður úr horninu.
28. mín
Agla María á skot fyrir utan teig, framhjá. Stjarnan líklegri þessar mínúturnar.
22. mín
Tvö góð færi hjá Stjörnunni í röð. Fyrst vippa í slána og svo einn á móti markmanni sem Adelaide ver vel.
20. mín
Telma vinnur innkast fyrir Stjörnuna við miðlínu og uppúr því fá þær horn. Boltinn berst til Maríu Evu í teignum og hún á fast skot rétt framhjá.
18. mín
ÍBV meira með boltann síðustu mínútur en tekst ekki að finna sendinguna inn fyrir vörn Stjörnunar. Stjarnan reynir langa sendingu þegar þær ná boltanum en Adalaide kemur út og nær honum.
15. mín
Adalaide kemst inn í langa sendingu inn á teiginn held reyndar að Guðmunda hefði verið rangstæð hefði hún náð í boltann.
10. mín
Færi hinum megin, Adelaide kom út og varði. Góður hraði í þessum leik.
7. mín
Gott færi hjá ÍBV. Fyrirgjöf frá aukaspyrnu Cloé var óheppin að ná ekki að skalla boltann inn.
5. mín
Horn ÍBV. Kristín fékk boltann á hægri kantinum og vann hornið. Vörn Stjörnunar hreinsar upp í stúku.
1. mín
Stjarnan vinnur horn. Löng sending upp vinstri kantinn, tilraun til fyrirgjafar sem var vörnin komst inní. Ekkert kom af horninu.
Fyrir leik
Leikur hafinn
Stjarnan byrjar með boltann.
Fyrir leik
Dómarnir skella hornfánunum í, liðin taka loka fund og nú er örstutt í leik.
Fyrir leik
Með sigri kemst Stjarnan í efsta sæti A-riðils, allavega þangað til að Valur spilar við FH í kvöld. ÍBV getur hins vegar jafnað Akureyringa á stigum, en þær spila á þriðjudaginn við Breiðablik á þriðjudaginn.
Fyrir leik
ÍBV hafa tapað báðum leikjum sínum hingað til, gegn Breiðablik og Val. Íslandsmeistarar Stjörnunar hafa hins vegar unnið einn gegn FH og gert 4-4 jafntefli við Breiðablik.
Fyrir leik
Velkominn til leiks Stjörnunar og ÍBV í Lengjubikar kvenna í Kórnum í dag.
Byrjunarlið:
1. Adelaide Anne Gay (m)
2. Sóley Guðmundsdóttir (f)
3. Júlíana Sveinsdóttir
7. Rut Kristjánsdóttir
9. Kristín Erna Sigurlásdóttir
11. Sigríður Lára Garðarsdóttir
15. Adrienne Jordan
18. Margrét Íris Einarsdóttir
19. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir
20. Cloé Lacasse
22. Katie Kraeutner

Varamenn:
6. Sesselja Líf Valgeirsdóttir
10. Clara Sigurðardóttir

Liðsstjórn:
Ian David Jeffs (Þ)
Sigríður Sæland Óðinsdóttir
Sóldís Eva Gylfadóttir
Jón Ólafur Daníelsson
Óskar Rúnarsson
María Guðjónsdóttir
Hjördís Jóhannesdóttir
Helgi Þór Arason

Gul spjöld:

Rauð spjöld: