Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
KR
2
1
FH
Óskar Örn Hauksson '32 1-0
1-1 Kristján Flóki Finnbogason '39
Tobias Thomsen '51 2-1
13.04.2017  -  14:00
KR-völlur (gervigras)
8-liða úrslit Lengjubikarsins
Aðstæður: Toppaðstæður á þessum árstíma
Dómari: Þorvaldur Árnason
Byrjunarlið:
1. Stefán Logi Magnússon (m)
Pálmi Rafn Pálmason
2. Morten Beck
3. Ástbjörn Þórðarson
5. Arnór Sveinn Aðalsteinsson
7. Skúli Jón Friðgeirsson
8. Finnur Orri Margeirsson
11. Kennie Chopart (f)
11. Tobias Thomsen ('79)
16. Indriði Sigurðsson
22. Óskar Örn Hauksson (f)

Varamenn:
13. Sindri Snær Jensson (m)
18. Aron Bjarki Jósepsson
20. Axel Sigurðarson ('79)
20. Robert Sandnes
21. Bjarki Leósson
24. Valtýr Már Michaelsson
29. Óliver Dagur Thorlacius

Liðsstjórn:
Willum Þór Þórsson (Þ)
Henryk Forsberg Boedker
Arnar Gunnlaugsson
Magnús Máni Kjærnested
Valgeir Viðarsson
Jón Hafsteinn Hannesson

Gul spjöld:
Finnur Orri Margeirsson ('36)
Arnór Sveinn Aðalsteinsson ('63)
Axel Sigurðarson ('83)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
KR-ingar eru komnir í úrslitaleik Lengjubikarsins sem verður víst leikinn á mánudag þar sem liðið fer í æfingaferð á þriðjudaginn.

Mótherjinn KA eða Grindavík. Það ræðst á Akureyri í kvöld en leikurinn hefst 17:15.
95. mín
VÁ!!! Guðmundur Karl næstum búinn að jafna fyrir FH! Á rosalegt skot sem sleikir stöngina utanverða.
93. mín
Kassim The Dream þarf aðhlynningu eftir árekstur við Kennie Chopart.
91. mín
Uppbótartími í gangi...
88. mín
Óskar Örn Hauksson með skot naumlega framhjá marki FH!
86. mín
Inn:Atli Viðar Björnsson (FH) Út:Böðvar Böðvarsson (FH)
Nær Atli að koma leiknum í vítaspyrnukeppni?
83. mín Gult spjald: Axel Sigurðarson (KR)
81. mín
Kristján Flóki í hörkufæri en er flaggaður rangstæður.
79. mín
Inn:Guðmundur Karl Guðmundsson (FH) Út:Emil Pálsson (FH)
79. mín
Inn:Grétar Snær Gunnarsson (FH) Út:Jón Ragnar Jónsson (FH)
79. mín
Inn:Axel Sigurðarson (KR) Út:Tobias Thomsen (KR)
73. mín
Kristján Flóki fullur sjálfstrausts. Á skot fyrir utan teig en Stefán Logi ver vel af öryggi.
69. mín
Inn:Halldór Orri Björnsson (FH) Út:Robbie Crawford (FH)
Garðbæingur inn fyrir Skota.
66. mín
Óskar Örn með máttlítið skot. Auðvelt fyrir Gunnar.
65. mín
Við setjum tengil á forsíðuna inn á beina útsendingu frá hinum undanúrslitaleiknum sem verður á Akureyri 17:15.

64. mín
Hættuleg skyndisókn KR-inga. Tobias Thomsen ákveður að gera hlutina sjálfur og þetta endar með hornspyrnu. Daninn átti að gera miklu betur þarna.
63. mín Gult spjald: Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR)
62. mín
Hætta við mark FH. Pálmi Rafn komst í hörkufæri og lyfti boltanum yfir Gunnar Nielsen en FH-ingar náðu að bjarga.
56. mín
Jonathan Hendrickx tók aukaspyrnu úti vinstra megin, flestir bjuggust við fyrirgjöf en Hendrickx tók skotið. Fínasta tilraun en Stefán Logi varði.
51. mín MARK!
Tobias Thomsen (KR)
Stoðsending: Kennie Chopart
Daninn skorar annan leikinn í röð!

Chopart með skot eftir fyrirgjöf sem fór í Bergsvein Ólafsson og datt fyrir Tobias. Daninn tók skotið í fyrsta og inn fór boltinn!
47. mín
Óskar Örn með fín tilþrif og skot sem er ekki nægilega kraftmikið, auðveldlega varið hjá Gunnari.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn

45. mín
Hálfleikur
Það er jafnt á öllum tölum í Vesturbænum. Ef jafnt verður að loknum 90 mínútum verður farið beint í vítaspyrnukeppni.

39. mín MARK!
Kristján Flóki Finnbogason (FH)
Virkilega vel gert hjá Flóka sem hefur verið heitur á undirbúningstímabilinu.

Hirðir lausan bolta og lætur vaða við vítateigsendann, hittir boltann ansi vel og hann syngur í netinu.
36. mín Gult spjald: Finnur Orri Margeirsson (KR)
Fyrsta gula spjaldið á KR-inga í þessum leik.
35. mín
Davíð Þór Viðarsson með skalla eftir hornspyrnu en hittir ekki á rammann. Fínt færi.
32. mín MARK!
Óskar Örn Hauksson (KR)
Emil Pálsson með slaka sendingu á miðsvæðinu sem Óskar kemst inn í. Eftir samspil með Tobias Thomsen á Óskar skot sem Gunnar ver, Óskar hirðir frákastið og skorar.

Ísinn brotinn og vonandi býður þetta upp á fjörugri leik í framhaldinu!
30. mín Gult spjald: Böðvar Böðvarsson (FH)
28. mín
FH-ingar komu boltanum í netið úr hornspyrnu en Þorvaldur Árnason dæmir sóknarbrot. Virðist hafa dæmt á hrindingu Bergsveins Ólafssonar á Arnór Svein Aðalsteinsson.
27. mín Gult spjald: Davíð Þór Viðarsson (FH)
24. mín
Jæja loksins kom almennilegt færi. Tobias Thomsen með frábæra sendingu inn í teiginn á Kennie Chopart sem tekur boltann í fyrsta á lofti en skot hans yfir markið.
20. mín Gult spjald: Kristján Flóki Finnbogason (FH)
17. mín
Stál í stál. Liðin ekki að gefa færi á sér. Búið að reyna einhverjar vonlitlar skottilraunir. Meira höfum við ekki fengið í þessum leik hingað til.
6. mín
Kassim Doumbia dæmdur brotlegur á miðjum velli. Tíðindalítil byrjun á þessum leik.
1. mín
Leikur hafinn
Þorvaldur Árnason dómari hefur flautað til leiks. Það voru KR-ingar sem byrjuðu með boltann. FH-ingar sækja í átt að félagsheimili Vesturbæjarliðsins.
Fyrir leik
Tvær breytingar á byrjunarliði FH frá sigrinum gegn Breiðabliki. Jón Ragnar Jónsson og Emil Pálsson koma inn. Guðmundur Karl Guðmundsson og Halldór Orri Björnsson fara á bekkinn.

Skoski miðjumaðurinn Robbie Crawford skoraði laglegt mark gegn Blikum. Spennandi að sjá hvernig þessi nýi leikmaður mun finna sig í Hafnarfirðinum.
Fyrir leik
Ein breyting á byrjunarliði KR frá sigrinum gegn Þór. Gunnar Þór Gunnarsson er meiddur og inn í liðið kemur 18 ára strákur, Ástbjörn Þórðarson.

Sóknarmaðurinn Tobias Thomsen er á sínum stað en þessi danski leikmaður skoraði eitt af mörkunum gegn Þór. Hann sagði í viðtali í vikunni að markmið sitt væri að verða markakóngur og Íslandsmeistari með KR.
Fyrir leik
Liðið sem vinnur þennan leik hér í dag mun leika til úrslita við KA eða Grindavík. Þau lið eigast við í Boganum á Akureyri 17:15.
Fyrir leik
KR-ingar hafa verið á flottu skriði í síðustu leikjum og raðað inn mörkum. Þeir unnu afar sannfærandi 4-1 sigur gegn Þór Akureyri í 8-liða úrslitum.

FH hefur átt öflugt undirbúningstímabil og vann Fótbolta.net mótið í febrúar. Liðið vann 3-0 sigur á Breiðabliki í 8-liða úrslitum.
Fyrir leik
Það er stórleikur í undanúrslitum Lengjubikarins klukkan 14 á gervigrasvelli KR-inga. KR-ingar mæta Íslandsmeisturum FH. Áhugasamir geta séð leikinn í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Byrjunarlið:
1. Gunnar Nielsen (m)
Davíð Þór Viðarsson
5. Bergsveinn Ólafsson
6. Robbie Crawford ('69)
7. Steven Lennon
8. Emil Pálsson ('79)
16. Jón Ragnar Jónsson ('79)
18. Kristján Flóki Finnbogason
20. Kassim Doumbia
21. Böðvar Böðvarsson (f) ('86)
26. Jonathan Hendrickx

Varamenn:
12. Vignir Jóhannesson (m)
6. Grétar Snær Gunnarsson ('79)
17. Atli Viðar Björnsson ('86)
22. Halldór Orri Björnsson ('69)
25. Einar Örn Harðarson
29. Guðmundur Karl Guðmundsson ('79)

Liðsstjórn:
Heimir Guðjónsson (Þ)
Ólafur Páll Snorrason
Eiríkur K Þorvarðsson
Guðjón Örn Ingólfsson
Ólafur H Guðmundsson
Róbert Magnússon
Brynjar Sigþórsson

Gul spjöld:
Kristján Flóki Finnbogason ('20)
Davíð Þór Viðarsson ('27)
Böðvar Böðvarsson ('30)

Rauð spjöld: