Kaplakrikavöllur
fimmtudagur 10. maí 2012
kl. 19:15
Pepsi-deild karla
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Áhorfendur: 1520
Maður leiksins: Atli Guðnason
FH 1 - 0 Fram
1-0 Atli Guðnason ('82)
Myndir: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Byrjunarlið:
3. Guðjón Árni Antoníusson
5. Freyr Bjarnason ('90)
7. Pétur Viðarsson
10. Björn Daníel Sverrisson ('79)
11. Atli Guðnason
15. Guðmann Þórisson
17. Atli Viðar Björnsson ('88)
22. Ólafur Páll Snorrason
26. Viktor Örn Guðmundsson

Varamenn:
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
8. Emil Pálsson ('79)
16. Jón Ragnar Jónsson ('90)
18. Einar Karl Ingvarsson
23. Brynjar Ásgeir Guðmundsson ('88)
27. Ingimar Elí Hlynsson

Gul spjöld:
Emil Pálsson ('89)

Rauð spjöld:

Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Komiði sæl og veriði velkomin í beina textalýsingu frá leik FH og Fram í 2. umferð Pepsi-deildar karla. Liðunum er báðum spáð toppbaráttu í deildinni í sumar en hvorugt þeirra náði sigri í fyrsta leik. FH gerði þá 1-1 jafntefli við Grindavík heima og Fram tapaði 0-1 fyrir Val heima.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár hérna sitt hvorum megin við textann.

Hjá FH er gerð ein breyting. Bjarki Gunnlaugsson sem þurfti að draga sig út eftir upphitun í síðasta leik er orðinn góður af meiðslunum og byrjar í dag. Bjarki tekur sæti Alberts Brynjars Ingasonar sem byrjaði í hans stað gegn Grindavík.

Hjá Fram er líka gerð ein breyting. Orri Gunnarsson kemur inn fyrir Kristinn Inga Halldórsson. Kristinn Ingi fékk högg á fótinn í leiknum gegn Val og er á bekknum í kvöld.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson er á bekknum hjá Fram í dag. Hann hefur leikið undanfarin ár með FH þar sem hann er uppalinn og hefur orðið Íslandsmeistari fimm sinnum og leikur sinn fyrsta leik gegn FH síðan hann skipti. Hann er þó ekki eini leikmaðurinn í hópi Fram sem kom til félagsins frá FH því Gunnar Oddgeir Birgisson, sem er tvítugur, kom frá FH til Fram fyrir ári síðan.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fyrsti leikmaðurinn út á völlinn er Hólmar Örn Rúnarsson leikmaður FH. Hann er að senda á milli við ungan son sinn á grasinu en Hólmar er meiddur og ekki í leikmanahóp FH og borgaralega klæddur hér í krikanum.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Það er líf eftir fótboltaferilinn í Krikanum. Tommy Nielsen sem í fyrrahaust lagði skóna á hilluna er kominn með nýtt hlutverk hjá FH því annan heimaleikinn í röð sér hann um að grilla hamborgara fyrir gesti og gangandi.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Af fræga fólkinu... þá er söngvarinn vinsæli Friðrik Dór orðinn vallarþulur í Kaplakrikanum. Það eitt ætti að fjölga áhorfendatölum hérna í dag.
Eyða Breyta
Fyrir leik
Fjörið er alveg að hefjast. Liðin ganga hér inn á völlinn og með þeim koma þeir Guðmundur Sævarsson, Gunnar Sigurðsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson sem fá viðurkenningu fyrir störf sín í þágu FH en þeir hættu sem leikmenn liðsins í vetur. Ásgeir Gunnar er meðal varamanna hjá Fram.
Eyða Breyta
1. mín
Leikurinn er hafinn. Heimamenn í FH byrja með boltann og leika í átt að lögreglustöðinni í Hafnarfirði.
Eyða Breyta
2. mín
Svona stilla liðin upp í dag.

FH:
Gunnleifur
Guðjón Árni - Guðmann - Freyr - Viktor
Pétur - Bjarki
Björn Daníel
Ólafur Páll - Atli Viðar - Atli G

Fram:
Ögmundur
Almarr - Kristján - Lowing - Tillen
Halldór Hermann - Jón Gunnar
Samuel Hewson
Hólmbert - Lennon - Orri
Eyða Breyta
13. mín
Liðin eru að þreifa fyrir sér á vellinum fyrstu mínúturnar. Sam Hewson setti boltann í netið rétt í þessu en var rangstæður svo markið taldi ekki.
Eyða Breyta
16. mín
Atli Viðar Björnsson fell í teignum og fólk í stúkunni vildi vítaspyrnu. Gunnar Jarl dæmdi þó ekkert.
Eyða Breyta
23. mín
Halldór Hermann í góðu færi inni í vítateig FH-inga en skaut framhjá.
Eyða Breyta
29. mín
Framarar fá aukaspyrnu á hættulegum stað fyrir utan vítateig FH.
Eyða Breyta
30. mín
Steven Lennon tók spyrnuna og skaut yfir markið.
Eyða Breyta
37. mín
Leikurinn er frekar líflaus eins og stemmningin í stúkunni hérna í Kaplakrika. Áhorfendur eru eins og áhorfendur í leikhúsi og hafa sig lítið frammi.
Eyða Breyta
40. mín
Magnús Haukur
FH liðið er eins og Liverpool sækja upp kantana og svo er enginn í teignum #fotbolti
Eyða Breyta
42. mín Gult spjald: Jón Gunnar Eysteinsson (Fram)
Jón Gunnar fær gult fyrir brot og FH með aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Framara. Ekkert kom út úr henni.
Eyða Breyta
45. mín
Það er kominn hálfleikur í Kaplakrika. Áhorfendur eru 1520. Skömmu fyrir hálfleik vildi Steven Lennon fá vítaspyrnu eftir að Guðmann Þórisson togaði í peysuna hans innan teigs en ekkert var dæmt.
Eyða Breyta
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Engar breytingar hafa verið gerðar á liðunum.
Eyða Breyta
53. mín
Stuðningsmenn FH að vakna í stúkunni og hvetja liðið sitt áfram. Vonandi að liðin fari að auka tempóið og koma með eitthvað fjör inn í þennan dapra leik.
Eyða Breyta
56. mín
Fram fékk aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig FH eftir að Bjarki braut klaufalega á Lennon. Hewson tók spyrnuna sem var slök, laus með grasinu beint til Gunleifs.
Eyða Breyta
58. mín
Guðjón Árni Antoníusson skallaði rétt framhjá marki Framara eftir aukaspyrnu Ólafs Páls Snorrasonar. Það er að færast líf í leikinn.
Eyða Breyta
63. mín
Björn Daníel Sverrisson spændi sig í gegnum varnarmenn Framara og sendi fyrir á Atla Guðnason sem skallaði rétt framhjá.
Eyða Breyta
66. mín
FHingar vildu víti þegar Atli Guðnason féll eftir viðskipti við Almar Ormarsson, ekkert dæmt en Framarar brunuðu upp og þar féll Hólmbert eftir viðskipti við Guðmann og aftur ekkert dæmt.
Eyða Breyta
69. mín
Framarar fá aukaspyrnu á stórhætulegum stað, við vítateigslínuna, eftir að brotið var á Halldóri Hermanni.
Eyða Breyta
70. mín
Sam Tillen tók aukaspyrnuna en setti boltann yfir markið.
Eyða Breyta
70. mín Ásgeir Gunnar Ásgeirsson (Fram) Hólmbert Aron Friðjónsson (Fram)
Skipting hjá Fram og nú klappa allir í stúkunni því Ásgeir Gunnar Ásgeirsson fyrrverandi leikmaður FH kemur inn hjá Fram.
Eyða Breyta
78. mín
Viktor Örn átti þrumuskot sem Ögmundur rétt náði að verja í þverslá og yfir. FH fékk hornspyrnu og beint í kjölfarið af henni auaspyrnu rétt fyrir utan vítateig.
Eyða Breyta
79. mín
Björn Daníel skaut rétt framhjá úr aukaspyrnunni.
Eyða Breyta
79. mín Emil Pálsson (FH) Björn Daníel Sverrisson (FH)

Eyða Breyta
82. mín MARK! Atli Guðnason (FH)
Það er komið mark í Kaplakrika. Eftir að FH hafði sótt stíft sendi Guðjón Árni boltann þvert á markið þar sem Atli Guðnason kom og setti hann í markið.
Eyða Breyta
82. mín Sveinbjörn Jónasson (Fram) Orri Gunnarsson (Fram)

Eyða Breyta
88. mín Brynjar Ásgeir Guðmundsson (FH) Atli Viðar Björnsson (FH)

Eyða Breyta
89. mín Gult spjald: Emil Pálsson (FH)

Eyða Breyta
90. mín Jón Ragnar Jónsson (FH) Freyr Bjarnason (FH)
Freyr er borinn meiddur af velli í uppbótartíma.
Eyða Breyta
90. mín Leik lokið!
Leiknum er lokið með 1-0 sigri FH. Frekari umfjöllun og viðtöl koma hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Eyða Breyta
Byrjunarlið:
1. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Alan Lowing
6. Halldór Hermann Jónsson
8. Jón Gunnar Eysteinsson
10. Steven Lennon
11. Almarr Ormarsson
15. Samuel Hewson
17. Hólmbert Aron Friðjónsson ('70)
19. Orri Gunnarsson ('82)

Varamenn:
30. Denis Cardaklija (m)
5. Kristinn Ingi Halldórsson
7. Daði Guðmundsson

Gul spjöld:
Jón Gunnar Eysteinsson ('42)

Rauð spjöld: